Foringinn - 01.06.1973, Síða 2
Loksins, loksins gerðist það, sem allir skátar
hafa beðið eftir. Fyrst var ráðinn erindreki til B.l.S.
og svo kom þetta tölublað FORINGJANS át. Það má því
með sanni segja að hver stóratburðurinn reki annan
í heimi skáta um þessar mundir. Við erindrekann virðast
menn binda miklar vonir, enda vart við öðru að báast,
eins og nú er £ pottinn búið. Sama verður ekki sagt
um FORINGJANN. Fólk virðist algjörlega sætta sig við
núverandi ágæti blaðsins og hreyfir ekki svo mikið sem
litlafingur til að benda ritstjórninni á það, sem betur
má fara. Undirrituðum er ekki kunnugt um nema u.þ.b.
tvo menn utan ritstjórnarinnar, sem virðast geta haldið
vatni af hrifningu á blaðinu. - Nóbelsverðlaunanefndin
ætti sko ekki að verða í vandræðum með næstu úthlutun.
Nei, lesendur góðir. Ritstjórnina skortir
hvorki hugmyndir um blaðið né efni í það. Það eina,
sem vantar eru ykkar hugmyndir og ykkar tillögur um
umbætur á blaðinu. Starf erindrekans og útgáfa FORINGJANS hafa
það sameiginlegt, að þau byggjast á samvinnu við skátana £ landinu,
fyrst og fremst gagnkvæmri aðstoð. Sendið okkur þv£ l£nu eða sláið
á þráðinn. - Við bitum ekki.- Takmarkið er betra blað, sem er £
lffrænum tengslum við skátastarfið.
Hafðu þetta £ huga, þegar þú flettir blaðinu o| aðgættu,
hvort þú finnur á s£ðum þess það, sem þú þarfnast £ þmu skatastarfi.
Ef svo er ekki,skulum við reyna að bæta úr þvi næst i sameiningu.
Sjáumst seinna.
títgefinn af:
Ritnefnd:
Heimilisfang:
Áskriftargjald:
Forsfða:
Bandalagi islenzkra skáta
Andrés Þórarinsson
Ásta Björnsdóttir
Guðmundur Ketill Guðfinnsson
Kjartan Júliusson
Maria Sophusdóttir
Sigurjón Mýrdal
Pósthólf 831 - Rv£k.
200.oo kr. (aðeins)
fyrir árg.1973 (5 tbl.)
Hnútakennsla að ölfljótsvatni.