Foringinn - 01.06.1973, Qupperneq 5

Foringinn - 01.06.1973, Qupperneq 5
þurr, og vestlæg átt er fremur sjaldgæf. Hins vegar eru norövestan- og suóvestanvindar oft leiöinlegir, og þeim fylgja oft hvöss snjóél eöa regndembur. Ekki er ástæöa til aö hafna skemmtilegum útilegustaö, þó aö vatnsból sé ekki nærri, ef útilegan er ekki mjög löng. Ef vatn er tekiö meö og reiknaö meö tveimur lítrum á mann á dag, mun enginn skrælna úr þurrki, en víst er þaö, aö ekki má sulla eins mikiö meö vatniö og þiö geriö heima hjá ykkur. - Auövitaö voruö þiö buin aö biðja landeiganda um leyfi til aö tjalda, og ekki eruð þiö þeir tarfar, að þiö gangið ekki snyrtilega um grassvöröinn og ristiö vandlega ofan af, fyrir eldstæöi eöa öörum þeim mannvirkjum, sem eyöileggja stærri grassvörð en hundraökall ^etur þakiö. Skólpgryfjan og ruslagryfjan þurfa aö vera hæfilega djupar. Viö gerö þessara mannvirkja koma verk- fræöileg einkenni manna bezt í ljós. Skólpgryfja í leirkenndum mold- arjarövegi verður aö vera býsna djúp,til aö hægt sé aö setja mold í hana eftir notkun. Ef vatniö hefur ekki sigiö niður, veröiö þiö aö koma á vikufresti næsta hálfa áriö og bæta mold í feniö, sem þiö geröuö í útilegunni. Þess vegna veröur aö velja skólpgryfjunni staö, þar sem vatniö sígur örugglega niöur á tæpum 3 tímum. Sorp þarf aö brenna stöö- ugt,en ekki aöeins í lokin, þegar haugurinn hefur myndazt. Þá brennur þaö ekki nema á yfirboröinu. Þegar þiö hafiö svo rótaö mold yfir afganginn, sér regn, vindur og tófan fyrir því aö sorpiö sér von bráöar aftur dagsins ljós. - Rakinn frá jöröinni er ótrúlega mikill. Þess vegna verðið þiö aö sjá um, aö enginn farangur, og því síður matur, liggi á jöröinni, jafnvel ekki inni í tjaldi. Þaö þarf aö lofta undir kassa, poka eöa annaö, sem stendur ekki á vatnsheldu efni á jörðinni. Þó aö þau skorkvikindi, sem skríöa hér á landi, séu ekki mjög hættuleg heilsu manna, vel flest, er óþarfi aö auövelda þeim um of aðgang aö þeim matvælum, sem þió ætluðuð ykkur. Þess vegna geymió þió allan mat í , viöeigandi pokum eóa ílátum ofan í stærra íláti, t.d. bakpokanum eöa kassa, sem þió tókuö meö ykkur í bíln- __2^_um. Gleymiö þiö samt af ásettu ráói stóra trékistl- .inum heima, ef þió ætlió aó ganga mikið. Hann sígur í, þó aö fallegur sé og góöur til síns brúks. - Líkaminn þarf aö losna viö úrgang, líka í útilegu. Því máli þarf aö gefa nokkurn gaum. í stuttri útilegu og langt uppi til heiöa, þarf oft aóeins aó taka meó skóflu og vandinn er leystur. X sameiginlegum útilegum karla og kvenna, og í nokkurra daga útilegum eöa lengri, eykst vandinn í réttu hlutfalli viö þátttakendafjölda, og tvöfaldast enn, ef bæöi kynin eru saman í útilegu. Ýmsar hugmyndir eru til lausnar, og er ekki ætlun aó gera þeim skil hér, en tæpa á þeim til áminningar. - Til að auóvelda tjaldbúóastörfin eóa fegra tjaldbúðina, hafa ýmsir góó o^ skemmtileg ráö á hraóbergi Þar skalt þú, lesandi góóur, safna 1 þinn eiginn sjóó. Finndu eitthvað nýtt og kenndu öórum. Hvernig á aö ganga frá pottum, pönnum, diskum, drykkjarmálum hnífapörum, gastækinu, uppþvotta- áhöldum og öllu ööru, sem þarf aó vera til reióu, geymast vel og þorna ? Hvar og hvernig á aö sitja og matast eöa sitja vió varóeldinn aö kvöldi, þar sem þió steikið pylsur yfir glóö eöa bakió brauó á teini ? Svona má halda áfram en mál er aö linni. III. VIÐSKILNAÐUR Viöskilnaöur getur verió á ýmsan hátt. Hér veröur minnst á þann, sem lýtur aö frágangi tjaldsvæóisins. Gefió ekki öórum tilefni, til aö kenna ykkur viö ákveöna dýrategund, þegar þeir koma á tjald- búöasvæói ykkar, eftir aö þió eruó farin heim. Gangió skipulega frh. á bls. 9 5

x

Foringinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foringinn
https://timarit.is/publication/905

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.