Foringinn - 01.06.1973, Síða 8
99
Síðari hluta maímánaðar var hér staddur
John Huskins yfirmaður Gilwell Park og fyrir-
liði foringjaþjálfunar í Bretlandi.
FORINGINN hitti hann að máli á hótelherbergi
í Reykjavík.
Segðu okkur eitthvaö af Gilwell Park.
Gilwell Park, sem stendur í átjaðri Lundúna,hefur nú í rúma
hálfa öld verió miðstöð foringjaþjálfunar brezku skátahreyfingar-
innar. Hvort tveggja er, að þar hefur farið fram alls konar for-
ingjaþjálfun og svo að þaðan hefur allri foringjaþjálfun um gjörvallt
Bretland verið stjórnað. Á Gilwell Park eru hað námskeið af ýmsum
gráðum allan ársins hring, en þeirra viðamest eru skógarmerkis-
námskeiðin (Wood Badge Course) og leiðbeinendanámskeiðin (Training
the Teame Course), sem þjálfa leióbeinendur foringjanámskeiða víðs
vegar um landið. Þessi tvö síðast töldu námskeið eru eingöngu haldin
á Gilwell Park. Árlega sækja um 1000 skátaforingjar vikulöng
námskeið á Gilwell Park og um 500 til viðbótar sækja styttri námskeió.
Sumir þessara skátaforingja koma frá fjarlægum heimshornum, því að
Gilwell Park hefur á sér alþjóðlegan blæ.
- Þú sagðir að allri foringjaþjálfun í Bretlandi væri stjórnað
frá Gilwell Park.
Já, á Gilwell Park eru 6 skátaforingjar í fullu starfi, hver
einstakur þeirra er sérfræðingur á ákveðnu sviði skátastarfs. Þeir
mynda yfirforingjaþjálfunarráð Bretlands og er ég foringi þess.
Við stjórnum svo leiðbeinendanámskeiðunum, sem áðan var minnst á og
þeir sem þaðan hafa útskrifast, sem núna eru um 4000 foringjar,
mynda foringjaþjálfunarráð út um allt landið. Þeir skipuleggja
ýmis konar námskeið úti í héruðunum í samráði við okkur og stjórna
þeim.
- Hvernig byggið þið foringjaþjálfunina upp í Bretlandi ?
Foringjaþjálfun er miklu yfirgripsmeira hugtak en flestir
virðast gera sér grein fyrir. Almennt má skipta foringjaþjálfuninni
í fimm innbyröis tengda þætti:
1. Sjálfsþjálfun (t.d. lestur bóka og skátablaöa).
2. Foringjanámskeið af ýmsu tagi.
3. Örvinnsla verkefna í tengslum við námskeið eða erindrekstur.
4. Stuðningur frá og önnur samvinna við erindreka.
5. ðformleg þjálfun, sem foringinn fær í skátastarfinu, sérstak-
lega í samskiptum við aöra foringja.
Þannig eru t.d. foringjanámskeið ekki nema einn þáttur foringja-
þjálfunar.
- Hafa ekki orðið ýmsar breytingar í Gilwell Park í seinni tíö ?
Árið 1970 má segja að orðið hafi bylting á Gilwell Park, því
að þá var gerö afgerandi breyting á fyrirkomulagi foringjanámskeiða.
í staö fyrirlestra í stórum stíl var tekin upp vinna í umræðuhópum
og dregið var úr hinni miklu áherzlu, sem hingað til hefur verið
lögð á verklega þjálfun í skátastörfum, þannig aö öðrum þáttum þjálf-
unar er núna meiri gaumur gefinn. Á undirbúningsnámskeiöum leggjum
við mesta áherzlu á að skerpa skilning á starfi skátaforingjans og
skátahreyfingarinnar, auk þess sem við þjálfum i almennum skátastörfum
og áætlanagerö^ Á framhaldsnámskeiðum er svo, auk þess, lögð áherzla
á eflingu samskipta- og stjórnunarhæfileika foringjans. Þessar breyt-
ingar eru enn í mótun og við verðum nokkur áraö aðlaga okkur að þeim.
8