Foringinn - 01.06.1973, Page 9
- Hvers vegna voru þessar breyt-
ingar gerðar ?
Við teljum,að allir þessir
þættir séu nauðsynlegir í þjálfun
æskulýðsleiðtoga,og að þjálfun í
hinum almennu skátastörfum sé
engan veginn fullnægjandi sem
leiðtogaþjálfun, ekki einu sinni
fyrir skátaforingja.
- Hvaðan fáið þið skátaforingja ?
Víða að, bæði innan úr
hreyfingunni og eins utan frá,
fólk, sem aldrei hefur verið skát-
ar sjálft. Ég er ekki frá því
að farsælustu foringjarnir séu einmitt úr röðum þessara síðast töldu,
því að þeir geta haldið áfram óhikað í slnu starfi, en hinir, sem hafa
verið skátar áður, staldra of oft við til að reyna að láta skátana
sína endurupplifa "gamla o| góða skátadaga", - sem yfirleitt mistekst.
Meðalaldur sveitaforingja I Bretlandi er 25-30 ár og þeir starfa að
meðaltali 2 ár í einu.
'f'PÍW
- Viltu segja eitthvað að lokum ?
Skátastarf er fyrst og fremst samstarf á milli fólks,og fólk
þarfnast alltaf samstarfs hvert við annað, þess vegna er skátastarfið
sígilt.
Frh. Tjaldbúðalíf.
yfir miklu stærra svæói en tjöldin þöktu og hreinsiö allt burt,
sem ekki á heima í ósnortinni náttúru. Gangið frá mold, grjóti og
túnþökum,svo aö ekki sjái lýti á, rakið yfir svæöiö, svo að gróöur
jafni sig fyrr og minna beri á mannaferöum, sjáiö um aö sorp og
skólp eöa annar úrgangur sjáist ekki. Snærisbútar, spænir, pappírs-
sneplar, aska o.fl. rotnar og hverfur aö lokum, en á okkar kalda
landi tekur þaö óratíma. Þetta á allt aö hverfa undir yfirborö
jaröar - og nógu djúpt.
Aö lokum: Hafið samband viö landeigandann og þakkið honum fyrir
lániö á landi hans. Hann gleðst óumræðanlega, undir niðri a.m.k.,
því að hann bjóst alls ekki viö þessu af ykkur
Góöa ferö, góða skemmtun, góða skátun.
B.J. LANDNEMI.
v a r ú (T !
Hér birtast myndir af
Birni Finnssyni, en hann
er alræmdur fyrir að troö-
fylla sífellt pósthólf
FORINGJANS, svo aðrir
komast vart að.