Foringinn - 01.06.1973, Síða 16
Vikuna 8.-14. juní s.l. var haldið
að dlf1jótsvatni útilífsnámskeið, en til-
gangur þess var að kenna nokkur atriði
útistarfs og ferðamennsku. Má þar nefna
útieldun, meðferð korts og kompáss, hjálp
í viðlögum, tjöldun, merkjasendingar,
hnútar og reiringar. Einn daginn fóru
allir í dagferð til að reyna nýlærða kunn-
áttu. - Reyndist hún í góðu lagi.
Aðbúnaður að Úlf1jótsvatni var
ekki hinn fullkomnasti nú fremur en lengi
áður. Sárstaklega er þörf á nýjum flokks-
skálum, því tveir þeirra elztu eru hvorki
vind- né vatnsheldir og ekki má hlaupa þar
á dyr, því að þær gætu hrokkið úr. En
hvað um það, námskeiðið tókst hið bezta,
enda veður hagstætt og matur góður.