Foringinn - 01.06.1973, Qupperneq 26
Við hrin^dum í Ingeborg Sigurösson í Fossbúum, en
kvaðst hun ekki lengur vera fálagsforingi. Við gætum
þó notað símtalið því nýi aðstoðarfálagsforinginn væri
staddur þarna,en það er Margrét dóttir hennar.
FORINGINN rabbaði við Margreti: Starfið hefux’ verið
hálfdauft í vetur, hin sigildi foringjaskorturhrjáir
okkur, enda þarf nokkurt lið til að stjórna 100 manna
felagi. Reyndar höfum við ágætis húsnæöi, sem er eitt af Búrfells-
húsunum svonefndu, en það var reist hér 1970. St. Georgsgildið kom
því á staðinn en d.s. Cassiopeia gerði húsið í stand. í sumar ætlum
viöá Birkibeinamótið og í haust byrjar starfið af fullum krafti
undir stjórn nýja félagsforingjans en hann heitir Þórmundur Skúlason.
Björn Stefánsson, skólastjóri, er félagsforingi títvarða
á Olafsfirði og hefur verið það samfleytt síðan 1949.
FORINGINN rabbaði við hann: Gullaldarárin okkar voru
1949-1955 enda voru þá um 45 skátar í félaginu, en síðan
hefur fækkað nokkuð og erum við nú 24 talsins. Þetta
eru allt strákar, en stúlkur höfum við engar og er því
að kenna, að engin kona hefur fengizt til að stjórna
starfi þeii'ra. Við höldum fundi í skólahúsinu og er það sæmileg
aðstaða. Það er erfitt að reka skátafélag hér, því táningarnir fara
flestir burt I skóla á vetrum og auk þess eru nokkur ungmennafélög
á staðnum, sem keppa við okkur um hylli þeii’i’a,sem eftir eru.
Gjarnan vildi ég fá aðstoð rrá öðrum félögum eða B.Í.S. til að hleypa
meira fjöri I starfið og sérstakur fengur væri að fá í heimsókn
áhugasama skáta til að starfa með okkur, þótt ekki væri nema eina
helgi. Slíkt fólk er velkomið hér hvenær sem er og mætti garnan
gera boð á undan sér, svo að kaffið verði heitt.
Skátafélagið Ásbúar var endurreist í fyrra.
Jósep L. Marinósson.félagsforingi,sagði okkur,að þar á
Egilsstöðum störfuðu um 120 skátar, en mikill foringja-
skortur og óviðunandi húsnæðisaðstaða væru miklir drag-
bítap á starfið. En allt um það kvað jósep áhugann
ódrepandi og þeir Ásbúar ætla m.a. að heimsækja skáta-
mótin I Atlavík og Hegranesi í sumar. Ásbúarnir eru
bjai’tsýnismenn og eru staðráðnir í að byggja séi' félagsheimili og
þá helzt í samvinnu við önnur félagasamtök á Héraði og ku það mál
vera að komast á rekspöl. Að lokum kvaðst jósep binda miklar vonir
við hinn nýja erindreka B.Í.S. og þá sérstaklega með bætta foringja-
þjálfun á landsbyggðinni í huga.