Bændablaðið - 14.03.1995, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 14.03.1995, Blaðsíða 2
2 Bœndablaðið Þriðjudagur 14. mars 1995 Starfsmannaspjall Dr. Ólafur R. Dýrmundsson landnýtingarráðunautur Olafur lauk prófi í forspjalls- vísindum frá HÍ, búfræði- kandidatsprófi frá University College of Wales, Abery- stwyth, 1969 og doktorsprófi frá sömu stofnun 1972. Hann var yfirkennari búvísinda- deildar Bændaskólans á Hvanneyri 1972 til 1977 og landnýtingarráðunautur Bún- aðarfélags íslands frá 1977. Auk þess sauðfjárræktarráðu- nautur frá 1985 að hluta. Ólafur hefur skrifað á þriðja hundrað ritgerðir og greinar, einkum um sauðfjárrækt, æxl- unarlíffræði, beitarmál, land- búnað og umhverfismál, í tímarit, bækur og dagblöð bæði á íslensku og ensku. Græna hugmyndafræOin er framhOarstefna Á liðnum árum hefur æ oftar verið rætt um lífrænan landbúnað og nú er svo komið að búið er að setja lög um hann og innan tíðar verður gefin út reglugerð þar að lútandi. Ólafur situr í þeirri nefnd sem vinnur að þessum málum. "Undanfama mánuði má segja að töluvert af mínum tíma hafi farið í vinnu vegna nýju laganna og reglugerðarinnar og annað varð- andi lífrænan landbúnað. Fullyrða má að þessi lög marki viss þátta- skil," sagði Ólafur í samtali við Bændablaðið." - Hvað er lífrœnn landbúnaður? “Lífrænn landbúnaður verður ekki skilgreindur í stuttu máli. Um er að ræða ákveðna búskaparhætti þar sem gæðaafurðir eru fram- leiddar samkvæmt ákveðnum reglum er taka mjög mið af um- hverfisvemd. Þetta er vistvænasta form landbúnaðar og gengur næst því sem kallað hefur verið sjálfbær þróun. Nýju lögin og væntanleg reglugerð fela í sér þær lág- markskröfur sem gerðar verða við íslenskar aðstæður.” - Hvaða þýðingu hafa þessi lög fyrir íslenskan landbúnað? “Lögin og reglugerðin sem við þau verður sett mynda formlegan ramma um lífrænan landbúnað. Þar er ekki aðeins fjallað um fram- leiðslu og vinnslu heldur einnig vottun, eftirlit og notkun sérstakra lífrænna vömmerkja. Við verðum að fá hin miklu gæði íslenskra bú- vara viðurkennd, bæði innanlands og utan, og þetta er ein þeirra leiða sem em færar. Það sýnir reynslan erlendis þar sem markaður fyrir lífrænar vömr fer hraðvaxandi.” - Er tekið mið af sambœri- legum, erlendum lagabálkum ? Hvað með alþjóðlega staðla og vottun. Hvað þýðir t.d. vottun fyrir landbúnaðinn ? “Já, við semjum okkar reglur innan ramma reglugerða Evrópu- sambandsins og innan gmnnstaðla IFOAM, Alþjóðasamtaka lífrænna landbúnaðarhreyfinga. Sjálfstæðar innlendar vottunarstofur eiga að votta afurðimar og þurfa þær að sækja um starfsleyfi og faggildinga hjá landbúnaðarráðuneytinu og löggildingarstofunni. Vottunin er nauðsynleg eins og ég vék áður að, það er ekki nóg að segja að vömr- nar séu góðar. Með gæðaeftirliti er tryggt að neytendur fái að njóta þeirra gæða og hollustu sem þeir em að sækjast eftir. Við reglu- gerðarsmíðina höfum við einnig haft til hliðsjónar lífrænar reglur frá mörgum löndum, bæði austan hafs og vestan. Það er því al- þjóðlegt yfirbragð yfir þessu öllu. - Er lífrœnn búskapur það sem koma skal he'r á landi eða binda menn e.t.v. of miklar vonir við hann? “Ég tel það verðugt markmið að feta sig í þá áttina. Slíkt bætir einnig umhverfisímynd landbún- aðar og þetta er ein ákjósanlegasta leiðin til að bæta samband og skilning á milli bænda og neyt- enda. Að mínum dómi er græna hugmyndafræðin, sem lífrænn landbúnaður byggir á, framtíðar- stefna. Hún er í sókn. I mínum huga er lífrænn landbúnaður það sem koma skal en sú þróun gerist ekki á fáeinum ámm og leysir ekki allan vanda. Þetta er ljós í myrkr- inu ef svo mætti segja.” - Hvað með beitarþol og lífrœnan landbúnað? “Lífræni landbúnaðurinn fellur vel að starfi mínu því að í honum felst leið til alhliða landbóta. Hann er búskapur í sátt við náttúmna. Meta verður ástand og beitarþol allra jarða sem fara í lífræna að- lögun. Hún gæti tekið allt að 10 ár og á þeim tíma mætti vinna að líf- rænni uppgræðslu, sé hennar þörf, þannig að beitilandið fái viður- kenningu, t.d. fyrir lífræna sauð- fjárbeit. Því þarf að þróa aðferðir til að meta beitarþol með skjótum hætti án mikils tilkostnaðar. Þetta er kjörið verkefni fyrir þá sem stunda rannsóknir á sviði land- nýtingar.” Enn mikil óvissa um framkvæmd GATT ðtfærslan ðkvarSar stuOningsstig landbúnalarins GATT-samningurinn kemst ekki til framkvæmda fyrr en upp úr næstu áramótum. Þá verður ár liðið frá því íslensk stjórnvöld fullgiltu samning- inn. Dragist framkvæmdin enn frekar á langinn eiga íslend- ingar á hættu að verða kærðir fyrir World Trade Organization, arftaka GATT, fyrir seinagang- inn. Verið að ákvarða stuðningsstigið við landbúnaðinn Það er einkum á tvennu sem fram- kvæmdin strandar á. I fyrsta lagi hefur ráðuneytanefndin svokallaða, samráðsnefnd hlutaðeigandi fimm ráðuneyta (forsætis-, landbúnaðar, utanríkis-, viðskipta- og fjármála- ráðuneytis) ekki náð innbyrðis samkomulagi um útfærslu á tollum sem koma skulu í stað inn- flutningsvemdarinnar og svo- kölluðum tollkvótum. Útfærslan á þessu tvennu, þ.e.a.s. tollunum og tollkvótunum, jafngildir í raun ákvörðun um gildandi stuðnings- stig við landbúnaðinn, þ.e. á hvaða verðforsendum keppt verður við 'innflutning. Nefndin aðhefst því varla neitt fyrr en eftir kosningar, þegar ný ríkisstjóm hefur lagt línumar. Dragist myndun nýrrar ríkisstjómar á langinn gæti fram- kvæmdin því frestast fram yfir ára- mótin. I öðm lagi verður að breyta heilum lagabálkum töluvert til samræmis við GATT-samninginn, s.s. búvörulögunum, tollalögunum og lögum sem lúta að vörnum gegn dýrasjúkdómum. Það tímafreka getur ekki hafist fyrr en nefndin hefur lokið störfum og bíður því nýs löggjafarþings. Fyrirheit um nauðsynlega vernd Norsk stjómvöld kynntu útfærslu sína á GÁTT-samningnum þegar í desember sl. Framleiðendur þar í landi geta því gert sér nokkra grein fyrir stöðu sinni og framtíðar- horfum en samkvæmt norsku út- færslunni er leitast af fremsta megni við að verja ríkjandi stuðningsstig. Sömu eða svipaða sögu er að segja af útfærslu annarra, t.a.m. Evrópusambandsins og Bandaríkjanna. Það eina áþreifanlega sem liggur fyrir hér á landi, þar til ráðuneytanefndin hef- ur lokið sér af, er samþykkt ríkis- stjórnar og ályktun Alþingis sama efnis frá því desember um full- gildingu samningsins. Þar em gef- in fyrirheit um framkvæmd sem veitir innlendri framleiðslu "nauð- synlega" vernd. Mikið verk enn óunnið Sem dæmi um þá vinnu sem enn eeftir má nefna útfærslu á lág- marksaðgangi en svo nefnist ákveðið magn sem flytja skal inn á lágum tollum. Þessi lágmarksað- gangur á að ná til 3-5% af heildar- neyslu tiltekinnar vöm eða vöm- flokka; skilgreiningin liggur enn ekki fyrir. Þá er heldur ekki ljóst með hvaða hætti staðið verður að sjálf- um innflutningnum. Ymsir mögu- leikar hafa verið nefndir, s.s. að út- hluta innflutningsleyfum annað hvort samkvæmt umsóknum, þá fengju væntanlega þeir sem fyrstir sæktu um, eða samkvæmt mark- aðshlutdeild. Það síðamefnda myndi vitaskuld útiloka nýliða frá þátttöku. Þá hefur nokkurs konar inn- flutningshappdrætti eða lottó-leyfi verið nefnt, eða að bjóða upp. í því tilviki hreppti hæstbjóðandi hnossið. Þótt uppboðsleiðin sé einfoldust í framkvæmd þá étur hún fljótlega upp ávinninginn af lágum tollum þar sem greiða þarf fyrir innflutningsleyfið. Það er því talið óliklegt að uppboðsleiðin verði farin og virðist lottó-leiðin einna líklegust til að verða fyrir valinu. Forsvarsmenn afuróastöóva: Fastir í hugarfari sjóðakerfisins Er unnt að lækka verð á land- búnaðarvörum í landinu án þess að skerða kjör bænda og með hvaða hætti þarf að vinna að þessum, að því er virðast, ósamræmanlegu markmiðum? Er hægt að halda landbún- aðarframleiðslunni í landinu með tilkomu aukinnar er- lendrar samkeppni í kjölfar EES- og GATT- samninganna? Þessum spurningum velti Björn Arnórsson, hagfræðing- ur BSRB, fyrir sér á Ráðu- nautafundi bændasamtakanna á dögunum. í spjalli við Bændablaðið ítrekar hann nokkuð af því sem hann telur að vinna þurfi að á næstunni eigi bændur að halda viðun- andi kjörum og framleiðsla landbúnaðarafurða ekki að flytjast í auknum mæli úr landi á næstu árum. Bjöm segir að þessum markmiðum verði ekki náð án umtalsverðrar hagræðingar. í því efni sé ekki hægt að undanskilja fækkun bænda. Samdráttur í landbúnaði á undanfömum árum hafi orsakað það að mörg bú em orðin óhag- kvæmar einingar rekstrarlega séð. Sala á framleiðslurétti hafi ekki náð að þjappa framleiðslunni saman þannig að nægileg hag- kvæmni náist. Verð á framleiðslu- rétti sé einnig óeðlilega hátt og hafi sveitarfélög og aðrir aðilar út um byggðir landsins stuðlað að háu verði vegna byggðasjónarmiða. Framleiðslukvóti sem losni eigi að fara á markað en ekki dreifast flatt til allra bænda eins og nú sé gert við úreldingu framleiðslutækja kúabænda. Engin leið sé hins vegar til þess að ætla landbúnaðinum að halda byggðastefnunni uppi; hvorki með háu verði á fram- segir Bjöm Amórsson hagfræðingur BSRB leiðslurétti eða eftir öðmm leiðum. Kostnað af byggðaaðgerðum verði að greiða með beinum hætti en landbúnaðurinn þurfi á öllu sínu að halda til þess að ná fram þeirri hag- ræðingu sem nauðsynleg sé til þess að lægra vömverð geti staðið undir sómasamlegum kjömm bænda og ekki síður að gera framleiðslu ís- lensks landbúnaðar samkeppnis- færa við innflutning. Alltof margar vinnslustöðvar Bjöm sagði að á sama hátt og framleiðslugeta búanna sé umfram þarfir þá sé vinnslugeta afurða- stöðvanna langt umfram þarfir þar sem margar þeirra hafi verið byggðar á verðbólgutímum þegar menn voru ekki famir að velta fyrir sér samdrætti í landbúnaði. Mikil tregða hafi síðan ríkt hvað sam- einingu varðar og jafnvel verið bent á að verkalýðshreyfingin væri að vinna gegn sjálfri sér, þegar hún væri að fjalla um þessi mál, þar sem fólk missti vinnu sína og tapaði jafnvel eignum vegna sam- einingar vinnslustöðva. Bjöm sagði að sjálfsögðu yrði að kanna á hvem hátt nýta megi mannvikri sem þannig losni til annarrar at- vinnustarfsemi og mun betra sé að vinna að þessu á rneðan flestar af- urðastöðvar séu sæmilega á vegi staddar hvað fjárhag varðar en þegar farið verði að þrengja meira að og gjaldþrot blasi við ein- hverjum þeirra. Slíkt sé óhjá- kvæmilegt vegna aukinnar sam- keppni og spumingin sé einungis um hvort við ætlum að framleiða og vinna þessar vömr sjálfir eða eftirláta Dönum, Skotum eða Hollendingum það. Fastir í hugarfari sjóðakerfisins Af þessum ástæðum komst sjö manna nefndin að þeirri niðurstöðu að leggja fram hálfan milljarð úr Verðmiðlunarsjóði til úreldingar í mjólkuriðnaði. Aðeins mjólkurbú- ið í Borgamesi óskaði eftir úreld- ingu og nokkur bú á Austurlandi óskuðu eftir fresti til íhugunar þar sem 100% úrelding stóð aðeins til boða fram að síðustu áramótum en 80% á þessu ári. Bjöm segir hluta skýringarinnar felast í hreinum hreppa- og héraðaríg. Einnig komi fram sjónarmið manna sem unnið hafi í samræmi við sjóðakerfi; haft allt sitt á þurru og ekki þurft að treysta á markaðinn því rekstrinum verði einhvem veginn bjargað. Forsvarsmenn í mjólkuriðnaði vilji greinilega ekki nýta sér þá sérstöðu sem hann einn iðngreina búi við hvað möguleika til hagræðingar varðar. Þeir séu fastir í hugarfari sjóðakerfisins. Menn megi hins vegar ekki einblína á sjóðakerfið lengur heldur verði þeir að læra að vinna í samræmi við forsendur markaðarins. Að treysta á sjálf- gefnar greiðslur sé það sama og koma landbúnaðinum á vonarvöl.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.