Bændablaðið - 13.03.1996, Qupperneq 16

Bændablaðið - 13.03.1996, Qupperneq 16
Bændablaðið Sími 588 7090 0-1^ Valmet Rafgirðingar hafa verið að ryðja sér til rúms í högum landsins og á heiðum á undanförnum árum. Koma þær í stað gaddavírs- og net- girðinganna þekktu sem um áratugi hafa verið notaðar tii þess að hefta ferðir búfjár. Rafgirðingar hafa lengi verið þekktar og lengi hafa ein- strengja kúagirðingar verið notaðar til þess að afmarka beitarhólf nautgripa á túnum. Með öflugri spennugjöfum, sem komu á markað um 1980, jukust möguleikar á því að nota rafgirðingar í stað hefð- bundinna vírgirðinga. Á síðustu árum hefur verið unnið verulegt starf við að kanna hagkvæmni þess að nota raf- girðingarnar. Fjótlegri í uppsetningu Lárus Pétursson vinnur nú að slíku verkefni sem verkefnisstjóri á vegum Bútæknideildar RALA á Hvanneyri. Hann segir einn af meginkostum rafgirðinga þann að stofnkostnaður sé mun minni en við hefðbundnar girðingar. Á síðasta sumri var mæld vinna við uppsetningu á um 5,6 kílómetrum af rafgirðingum á Haukadalsheiði og um það bil 2,4 kílómetrum af hefðbundnum net- og gaddavírs- girðingum með jámstaurum í Hvalfirði. I ljós kom að nettóvinna við uppsetningu rafgirðinganna var að meðaltali um 25 klst. á hvem kflómetra en um 47 klst. við hina hefðbundnu girðingu. Við hefðbundnu girðinguna var beitt stórvirkari tækjum þannig að raunvemlegur munur er meiri en sem þessu nemur. Þama er ein- ungis átt við nettóvinnu við sjálfa uppsetninguna á staðnum. Vanir menn áttu í hlut. Hefðbundin girðing 342 þúsund en rafgirðing 161 þúsund Allt að helmings munur er á kostnaði við uppsetningu raf- girðinga miðað við hefðbundnar girðingar. í athugunum, sem gerð- ar hafa verið hjá Bútæknideild RALA, kemur fram að heildar- kostnað við uppsetningu hefð- bundinnar girðingar úr jámstaur- um, neti og gaddavír má áætla um 342 þúsund krónur á kílómetrann en um 315 þúsund krónur ef notaðir em tréstaurar. Til saman- burðar var kannaður kostnaður við uppsetningu á rafgirðingu og er hann áætlaður um 161 þúsund krónur á kflómetra miðað við notkun tréstaura (rekastaura), en um 159 þúsund ef notaðir em harðviðarstaurar. Rétt er að taka fram að í kostnaðaráætlunum sem þessum em nokkrir stórir óvissu- þættir sem erfitt er að meta. Ráðast þeir mjög af aðstæðum hverju sinni þannig að eðlilegt er að líta á þetta sem lágmarkstölur. Láms Pétursson segir þennan kostnaðar- mun geta valdið byltingu nú þegar kröfur um girðingar aukist vem- lega í tengslum við breyttar reglur um lausagöngu búfjár. Lækkun girðingarkostnaðar komi öllum til góða; skógrækt, landgræðslu, vegagerð, sveitarfélögum og ekki síst bændum sem oft þurfi að leggja umtalsverða fjánnuni í girðingarframkvæmdir. Auk þessa er unnið að prófun á hvers konar girðingarefni hjá Bú- tæknideildinni á Hvanneyri, m.a. íslenskum girðingarstaumm. Stauramir em íslensk uppfinning, framleiddir úr endumnnu efni, aðallega netadræsum og rúllu- plasti. Unnið er að því að prófa styrk og þol stauranna og hefur sérstakur strekkibekkur verið þróaður til þess. Við bekkinn er tengdur rafeindabúnaður sem skráir mælingar sem koma jafn- óðum fram á tölvuskjá. Að sögn starfsmanna bútæknideildar RALA lofa þær athuganir góðu en mikilvægt er að unnt sé að endur- vinna efni á borð við rúlluplastið. Kartöflubændur kanna verð Úeðlilega mikill munur á framleiðendaverði Stjórn Landssambands kart- öflubænda kannaði fram- leiðendaverð á 1. flokki ópakkaðra matarkartaflna í janúar og komst að því að verðið var lægst kr. 31 en hæsta verðið var kr. 60. “Lægstu verðin em til skamm- ar - ekki síst í Ijósi þess að það em fyrirtæki í eigu framleiðenda sem greiða þau,” sagði Sighvatur Hafsteinsson, formaður félagsins,” Könnunin leiddi í ljós að Ágæti greiddi frá kr. 31 til 38, Sölufélag Garðyrkjumanna, Bananar hf., Mata hf„ Ongull og Kartöflusala Þykkvabæjar kr. 50 en Kartöflusala Svalbarðseyrar kr. 55 og (Gljá) Jens Gíslason kr. 43 til 60. “Það getur verið að einstaka framleiðandi, sem selur beint í verslanir, sé að fá hærra verð en hér um ræðir en segja má að 55 krónur eða hærra sé ásættanlegt. Könnunin sýndi að í sumum tilvikum lækkaði framleiðenda- verð á milli desember og janúar. Þetta er að okkar mati óskiljanlegt ekki síst þar sem markaðurinn var afar rólegur á þessum tíma,” sagði Sighvatur. Létt og frískandi Fjöf.i'fc íIíí 01 íI líkist léttmjólk hvað varðar lit og bragð og hún er fitulítil eins og undanrenna. Þú getur því, innihaldsins vegna, drukkið mörg glös af Fjörmjólk á hverjum degi. * »v Fjörmjólk - drykkur dagsins MlS" Gagnleg forrit frá Bl fyrir framsækna bændur! Einka-Fengur Búbót Fjárvís Forrit fyrir hrossaræktendur Sérhannað bókhaldsforrit fyrir bændur Afurða- og ættbókarforrit fyrir sauðfjárbændur

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.