Bændablaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 16. febrúar 1999
BÆNDABLAÐIÐ
11
■ i
Skýrsla vegasvæðanefndar um
Vegagerðin kosti
og annist viðhald
Svokölluð vegsvæðanefnd,
sem hefur það hlutverk að fjalla
um leiðir til að halda búfé frá
helstu þjóðvegum landsins, hefur
nú skilað skýrslu. Þar er að finna
nokkrar tillögur til að halda búfé
frá þjóðvegum landsins.
Nefndin var sammála um að
allsherjar bann við lausagöngu
búfjár væri óraunhæft. Einnig voru
menn sammála um að árangurs-
ríkast væri að girða af fjölfömustu
og hættulegustu vegi með veggirð-
ingum. Hins vegar væri ekki hægt
að girða alla vegi landsins.
í skýrslunni kemur fram að
Vegagerðinni er ekki skylt að
girða meðfram vegum nema þegar
hann er lagður um ræktað land og
girt heimalönd. Þess vegna em
víða eyður í annars samfelldum
girðingum sem enginn telur sig
þurfa að loka, einkum við jarðir
þar sem enginn búskapur er. Þar á
búfé hins vegar greiða leið inn á
vegina.
Nefndin telur að helsta leiðin
til að leysa vandamálið sé að setja
upp samfelldar girðingar með
vegum þar sem því verður komið
við. Til þess þurfi samstillt átak
Vegagerðarinnar, sveitarfélaga og
bænda. Nefndin leggur til að upp-
setning og viðhald girðinga verði í
höndum eins aðila. Eftirlit með
vegsvæðum, girðingum, hand-
sömun og ráðstöfun lausagöngu-
fénaðar verði skilgreint sem
hlutverk Vegagerðarinnar, sveitar-
félaga og lögreglu.. Hins vegar
telur nefndin að ábyrgð á eftirliti
þeirra vega sem girtir em með
veggirðingum verði á hendi Vega-
gerðarinnar sem veghaldara. Þegar
girðingar í heimalöndum eru
nýttar sem veggirðingar telur
nefndin að kostnaður við viðhald
og eftirlit vweði greiddur af sömu
aðilum og greiði slíkan kostnað af
veggirðingum.
Nefndin leggur til að Vega-
gerðin og sveitarfélög geri sam-
eiginlega úttekt á stöðunni m.t.t.
var lausaganga búfjár er mest og á
hvaða vegum slys vegna hennar
eru tíðust og alvarlegust. Jafnframt
sé þörf metin fyrir girðingar sem
gagngert er ætlað að halda búfé frá
fjölfömum vegsvæðum. Því verki
eigi að ljúka fyrir 1. júlí 1999.
Meirihluti nefndarinnar leggur
til að Vegagerðin kosti og sjái um
að girða og annast viðhald
veggirðinga sem reistar em til að
friða vegsvæði fyrir ágangi búfjár.
Uppsetning og viðhald girðinga
fjarri vegum í þeim tilgangi að
gera lokuð hólf verði hins vegar á
hendi sveitarfélaga nema um
annað sé samið.
Ýmislegt annað er lagt til í
skýrslunni, eins og að
sveitarfélögum verði gert skylt
með lögum að setja sér samþykktir
um búfjárhald, sérstakt umferðar-
merki verði lögleitt sem geft til
kynna hættu af lausu búfé, gefið
verði út fræðsluefni um búfé á
vegsvæðum og að skipulögð
fræðslu- og kynningarstarfsemi
verði hafin meðal bænda um laga-
lega og siðferðilega skyldu þeirra
til að halda búfé frá þjóðvegum
landsins.
FRAMTÍÐARFJÓSIN
PRADO .......stálgrindarhús
SPINDER ..milligerði, stíur og
jötugrindur
DEBOER .........básadýnur
SUEVIA ......brynningartæki
MALGAR...... __flórskofur og
mykjutankar
Vélaval -
Varmahlíð HF
Sími: 453 8888 Fax: 453 8828
Greiðslumark
Kaupfélag Eyfirðinga óskar eftir að kaupa greiðslumark í
mjólk. Þeir sem hafa áhuga á að selja er bent á að hafa
samband við Þorstein Guðbjörnsson í síma 460-3331 milli kl.
9.30 og 16.00 alla virka daga.
Kaupfélag Eyfirðinga
Eigum fyrirliggjandi mikið úrval af Hl-Spec haugsugum.
Einnig Hi-Spec og Warfuma mykjudreifurum.
VELAR&
PJwNUSTAhf
Járnhálsi 2, Reykjavík, sími 587-6500, fax 567 4274
Útibú á Akureyri, sími 461 4040, Óseyri 1 a
BETRI VERÐ - BESTA ÞJ0NUSTAN - LEITIÐ UPPLYSINGA
Nú er rétti tíminn..
til að panta velbúinn J0HN DEERE traktor fyrir sumarið!
Dragflu ekki að panta draumatraktorinn!
Vegna mikillar eftirspurnar eftir JOHN DEERE traktorum er afgreiðslutími um 4
mánuðir. Til að tryggja JOHN DEERE traktor fyrir sumarið er rétti tíminn til að
pantanúna.
Nú er tækifæri til að eignast John Deere traktor á hagstæða verðinu. Sökum
hagstæðs gengis á þýska markinu er verð á John Deere traktorum lægra en áður.
Þeirtraktorarsem viðgetum boðiðaflagereða með stuttumfyrirvaraeru:
5000 línan - stærðir 60,70 og 80 hö.
6010 SE línan - stærðir 75,80,90,100 og 105 hö.
6010línan-stærðir 75,80,90,100,105,115,125og 135hö.
Hafið samband við sölumenn okkarog kannið nánarbúnað, verð og greiðslukjör.
ÞÓR HF
Reykjavík - Akureyri
REYKJAVÍK: Ármúia 11 - Sími 568-1500 - AKUREYRI: Lónsbakka - Sími: 461-1070 - Vefsíða: www.thor.is
Láttu drauminn rætast -
fjárfestu í John Deere
traktor! Hann stendur
fyrirsínu.
iiíiflnÉlili