Bændablaðið - 28.05.2002, Side 20
-I
20
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 28. maí 2002
Dmskir búskapur mei ísMnm augum
Frá því ég kom út hef ég unnið
á búi á Norður-Jótlandi, nánar
tiltekið fyrir norðan Limafjörðinn.
Hér eru u.þ.b. 200 svartskjöldóttar
mjólkurkýr af SDM-kyni (Sort-
broget Dansk Malkerace) og annar
eins fjöldi af kvígum í uppeldi.
Kýrnar ganga í einangruðu lausa-
göngufjósi með steinbitagólfi og
legubásum. Fjósið og mjalta-
básinn, sem er 2x10 tækja fiski-
beinabás, voru byggð 1976. Breið-
ur fóðurgangur er eftir endilöngu
fjósinu og eru tvö hólf með pláss
fyrir tæplega 50 kýr hvoru megin
gangsins. Síðastliðinn vetur voru
gerðar endurbætur á fjósinu. Básar
voru hækkaðir um 20 cm, skipt
var um milligerðir og tvöföld
motta lögð ofan á þar sem kýrnar
lágu áður á hörðum steininum.
Við þetta batnaði júgurheilbrigði
kúnna í fjósinu. Burðarstíur og
smákálfar eru í eldra fjósi sem
tengir kúafjós og uppeldisfjós
saman. Uppeldisfjósið er
óeinangrað stálgrindarhús með
breiðum fóðurgang. I því ganga
kvígurnar á hálmi til 12 mánaða
aldurs og svo á steinbitum þar sem
þær hafa aðgang að djúpum legu-
básum með hálmi í. Auk þess eru
á búinu tvö stór stálgrindarhús,
annað vélageymsla og hitt hálm-
hlaða.
Jöfn framleiðsla er yfir allt
árið og eru að meðaltali 180 kýr
mjólkaðar. Greiðslumarkið nemur
1.283.879 kg og á síðastliðnu
verðlagsári var notkunin rúm 99%.
Venjan er að framleiða megi 4-5%
umfram kvótaeign en eftir það
taka við sektir af innveginni
mjólk. í ár gekk, víðar en hér, illa
að fylla kvótann svo að lokum
mátti framleiða 8% fram yfir
kvótaeign. Þess má geta að kvóta-
eign í Danmörku er tæplega 4.500
milljón lítrar og tvívegis á kvóta-
árinu er opnað fyrir verslun með
kvóta. í byrjun og um miðbik
kvótaárs senda þeir sem vilja
kaupa kvóta tilboð inn til Danska
Mjólkurkvótaráðsins (Danske
Mejeriers Mælkeudvalg) og hið
sama gera þeir sem selja vilja
kvóta og síðan fá þeir sem hæst
buðu, kvóta á meðalverði boðnu af
kaupendum og seljendum. Við
síðustu kvótainnkaup, í nóvember
2001, var meðalverðið 3,58 d.kr.
Lág nyt á búinu kom mér á
óvart þegar ég kom út en hún er
töluvert undir landsmeðaltali.
Meðalnytin síðustu tólf mánuði
var 7330 kg eftir kú og 7051 kg til
mjólkursamlags, með 4,12% fitu
og 3,40% prótein. Af þeirri mjólk
sem færð er á skýrsluhaldi komu
því 97% hennar til mjólkursam-
lags, Þess má geta að bú sem
senda óeðlilega lágt hlutfall
mjólkur til mjólkursamlags fá ekki
að taka þátt í skýrsluhaldi. Meðal-
tal gerla var 12.000 síðustu tvo
mánuði og meðaltal frumu
327.000 síðustu þrjá mánuði.
Mjólkin er sótt annan hvem dag,
óháð helgidögum, þannig að ekki
þarf að fjárfesta í óþarflega stórum
mjólkurtanki. Auk þess keyra
mjólkurbílamir allan sólarhringinn
og mjólkurbflstjórinn sér um að
kveikja á sjálfvirku þvottakerfi
þannig að tankurinn er tilbúinn í
næstu mjaltir.
Jörðin er í allt 140 hektarar
(ha) og þar af er um þriðjungurinn
leigður. Gróffóður er ræktað á
jörðinni, auk beitar yfir sumar-
tímann, en allt kjamfóður og
hálmur er aðkeypt. í Danmörku
skylda lög bændur til þess að eiga
eða leigja ákveðið marga hektara
fyrir hverja dýraeiningu, nú má að
Að loknu búfræðinámi og eftir að hafa unnið á
fyrirmyndar kúabúum í helstu
mjólkurframleiðsluhéruðum landsins leitaði
hugur Sæmundar Jóns Jónssonar út fyrir landsteinana.
Með kúabúskap sem aðaláhugamál lá beinast við að leita
sér að vinnu í Danmörku og með því að víkka
sjóndeildarhringinn ennþá meira. Eftir að hafa unnið
ytra í rúmlega hálft ár ákvað Sæmundur að greina
lesendum Bændablaðsins aðeins frá því sem á daga hans
hefur drifið, landbúnaðarmálum í Danmörku og því sem
hefur komið honum mest á óvart. Myndina hér að ofan
tók Sæmundur í haust sem leið.
hámarki eiga 2,3 dýraeiningu á
hektara og í október 2002 verða
reglumar hertar þannig að
einungis má eiga 1,7 dýraeiningu
á hektara. Þetta er einkum gert til
þess að menn geti losnað við þann
húsdýraáburð sem til fellur á
búinu. Af þessu landi þarf 10% að
vera óræktað og gera fjölmargar
aðrar reglur auk þéttbýlisins verð á
landi mjög hátt. Kaupverð er
u.þ.b. 80-100.000 d.kr./ha og
ársleiga 5-10.000 d.kr/ha.
Akuryrkjan hófst óvenju
snemma hér á Norður-Jótlandi eða
í byrjun aprfl en veðurfar er svipað
hér og sunnarlega í Svíþjóð.
Veturinn hefur verið óvenju mild-
ur og því var ákveðið að láta hluta
af rýgresi frá fyrra ári standa
áfram en yfirleitt drepst svo stór
hluti þess að sá verður aftur til að
ná hámarksuppskeru. Smárajurtir
saman með venjulegum gras-
tegundum geta þó lifað nokkur ár
og em þá yfirleitt notaðar til
beitar. Hér, líkt og víða annars
staðar þar sem skortir land, er þó
fyrst og fremst spáð í hve margar
fóðureiningar (Fe) er hægt að fá af
hverjum hektara. Fyrsti sláttur var
tekinn 15. maí af rýgresi frá fyrra
ári og eru jafnvel vonir um að það
verði slegið fiórum sinnum í
viðbót.
Aður en akrar eru plægðir em
þeir sprautaðir með Raundup til að
drepa allan gróður sem getur veitt
nytjaplöntunni samkeppni. Þegar
búið er að plægja er farið með
sambyggt herfi með sáningsvél og
að lokum er valtað. Lítið er lagt
upp úr fínvinnslu eða að jafna.
Byggi var sáð í 62 hektara og með
því rýgresi. Byggið er svo slegið
sem heilsæði, þ.e. þegar efstu 10-
15 cm af stönglinum auk axins eru
slegin, og síðan votverkuð eins og
vothey. Þetta er gert þegar fylling
er komin í axið og ennþá hægt að
kreysta kjamann úr kominu með
góðu móti. Seinna er svo hægt að
Hlýjung í úúaskm Ijósum
í vetur heimsótti ég á opið fjósi þar sem verið
var að kynna algjöra nýjung í fjósbyggingu.
Nokkrar staðreyndir um bygginguna: Byggingin
er 3000 fermetrar, hringlaga með 62 metra
þvermál og mestu lofthæð í 22,5 metrum.
Stálgrind með einangruðu þaki og náttúrulegri
loftræstingu. Legubásarnir eru í þremur röðum,
fyrir 300 kýr í allt. Mjaltahringekja með 60
tækjum þar sem mjólka á tvisvar á dag. Hring-
ekjan snýst allan sólarhringinn þar sem kýrnar
koma inn og eru fóðraðar eftir nyt og stöðu á
mjaltaskeiði.
slá rýgresið og síðan beita. í ár
byrjaði akuryrkjan mánuði fyrr en
í fyrra og verður líklega hægt að
slá rýgresið, sem sáð er með
bygginu, tvisvar og ætla má að
þessi mánuður gefi aukalega allt
að 1.000 Fe/ha. Maís var svo sáð í
13 hektara. Reiknað er með að
heilsæði gefi mest 8.000 Fe/ha,
maís 10.000 Fe/ha og rófur 12.000
Fe/ha. Þó eru flestir hættir að
rækta rófur í Danmörku enda
veitir Evrópusambandið engan
styrk með rófum.
Kýmar eru fóðraðar með heil-
fóðri tvisvar á dag auk þess sem
þær fá kjarnfóður eftir nyt. Heil-
fóðrið stendur saman af 4 Fe
heilsæði, 2 Fe grasvotheyi, 3 Fe
rófukögglum, 3 Fe repjukökum
auk steinefna, vítamína, salts og
krydds. Meðalkúin sem auk þess
fær 5 Fe úr kjarnfóðri í fóður-
básnum, mjólkar 25 kg á dag af
þessum 17 Fe sem hún étur eða
1,5 kg mjólk fyrir hverja fóðurein-
ingu. Verðið á fóðureiningu í
þessu fóðri er tæpar 1,30 d.kr.
Kvígumar eru mestmegnis fóðrað-
ar á hálmi og kjamfóðri auk vot-
heys.
Vélaeignin má teljast mikil þó
í heild sé flotinn ódýrari en á
meðalkúabúi á Islandi. Fjósvél
(skriðstýrð) og ámoksturstækjavél,
sem notuð er yfir 1.500 tíma á ári,
eru einu vélamar yngri en 20 ára.
Annars eru tvær stórar vélar sem
notaðar em í akurvinnu, önnur er
notuð um 500 tíma á ári og hin um
1.000, auk tækja til akurvinnu og í
vor var keyptur notaður skíta-
dreifari með niðurfellingartæki.
Víðast sjá verktakar um votheys-
gerð og mykjuútkeyrslu en í haust
taka gildi lög sem banna notkun
hcfðbundinna mykjudreifara, þ.e.
án slöngu- eða niðurfellinga-
búnaðar.
Að lokum vil ég hvetja þig
lesandi góður sem áhuga hefur á
búskap og trúir á framtíð íslensks
landbúnaðar að vfldca sjóndeildar-
hringinn og vinna fjarri heima-
högunum innan- eða utanlands.
Það er engu að tapa á því, í versta
falli kemstu að því að hlutimir eru
bestir eins og þeir em gerðir
heima hjá þér. Ef áhugi er fyrir að
fá vinnu í Danmörku vil ég benda
á vefsíðunar www.jobstafetten.dk
og www.jobpaalandet.dk, og þér
er einnig velkomið að senda mér
tölvupóst á saejon@visir.is
Sœmundur Jón Jónsson.
Sýndu búhyggindi
/
I júní og júlí fá bændur
sem eru í reikningsviðskiptum
15% staðgreiðsluafslátt
af öllum vörum hjá Bílanausti.
Verslaöu þar sem úrvalið ergott og verðið hagstætt.
www.bitanaustis
Simi 535 9000
Notaðar heyvinnuvélar
Á Betri bílasölunni á Selfossi eru seldar notaðar
heyvinnuvélar og traktorar. Sýnishorn úr söluskrá:
NOTAÐAR HEYVINNUVELAR
Krone 203 diskasláttuvél, árg
1997. Verð 210.000+vsk.
Khun gmd 700 diskasláttuvél.
Árg 2000 verð 330.000.+vsk
Kverneland UN 7335
Pökkunarvél árg 1999. verð
530.000. +vsk
Claas Rolant 46 rúlluvél árg.
1997verðkr 500.000.+vsk
Claas Rolant 46 rúlluvél árg
1990. Verð kr 300.000.+ vsk
McHale be 991 pökkunarvél árg
1998. Alsjálfvirk vél
Verð 690.000.+ vsk
Weckman Sturtuvagn árg 1996
11 tonn verð 350.000.+ vsk
Krone turbo 5000 heyhleðslu-
vagn gott útlit, geymdur inni,
verð kr 450.000.+vsk
TRAKTORAR
Massey Ferguson 375, árg
1996 með Trima 3,40. Ekinn
2300 tíma.
Verð 1.750.000. + vsk
Massey Ferguson 6150, Árg
1997 með Trima 1790. Ekinn
aðeins 1000 tíma.
Verð 2.900.000+vsk
Massey Ferguson 399. Árg
1996 með Trima 1420.
Verð 2.400.000.+ vsk
Case 695 XL árg 1991. Ekinn
3000 tíma.
Verð 950.000. + vsk
Tökum við notuðum búvélum á
söluskrá og á staðinn.
Seljum notaðar og nýjar vélar
frá Ingvari Helgasyni hf
Betri bílasalan s 482-3100.
email: betri@betri.is
Heimasíða: www.betri.is
Betri
BÍLASALAN:
- B- 482 3100