Bændablaðið - 28.05.2002, Síða 21
Þriðjudagur 28. maí 2002
BÆNDABLAÐIÐ
21
Ferðaþjónusta bænda
r
I Mroddi í umhverfis-
LANDSTÚLPI1W
væniii ferOaHfinuski
Á undanföraum vikum hafa
fulltrúar Ferðaþjónustu bænda, þ.e.
Guðrún og Guðlaugur Bergmann
ferðaþjónustubændur á Brekkubæ,
og Elín Berglind Viktorsdóttir
fulltrúi Hólaskóla, haldið kynning-
arfundi á meðal ferðaþjónustu-
bænda víða um land. Tilgangur
þessara funda er að hjálpa ferða-
þjónustubændum að móta um-
hverfisstefnu í anda Staðardagskrár
21 og stuðla þannig að umhverfis-
vænni ferðaþjónustu. I framtíðinni
mun þetta verða eitt mikilvægasta
gæðatákn samtakanna og því stór
liður í að markaðssetja lands-
byggðina og styrkja ímynd hennar.
Framtíðarsýn og markmið Félags
ferðaþjónustubœnda
Á aðalfundi Félags ferða-
þjónustubænda á Amarstapa þann
12. mars síðastliðinn var skrifað
undir viljayfirlýsingu um að Ferða-
þjónusta bænda yrði leiðandi afl í
umhverfismálum á landsbyggð-
inni. Markmiðið er að allir ferða-
þjónustubændur setji sér um-
hverfisstefnu byggða á Staðar-
dagskrá 21 á næstu tveimur árum
og vinni eftir henni í daglegum
rekstri. Stefnan er svohljóðandi:
Ferðaþjónusta bænda stefnir að
því að vera í fararbroddi í um-
hverfisvænni ferðaþjónustu á
landsbyggðinni. Þessi stefna og
framkvæmd hennar í daglegum
rekstri fyrirtækjanna verður eitt
mikilvægasta gæðatákn framtíðar í
ferðamálum. Þetta er liður í því að
efla gæði í Ferðaþjónustu bænda
og vekja athygli á þeim mannauð
sem blómstrar samhliða fagurri
náttúru um allt land.
Á ferð um landið
Á tímabilinu 9. aprfl - 6. maí
voru haldnir átta fundir fyrir
félagsmenn innan Ferðaþjónustu
bænda, en einnig var ferðamála-
fulltrúum, forstöðumönnum upp-
lýsingamiðstöðva og ferðamála-
samtaka boðin þátttaka. Þessi
fundaherferð hefur gengið mjög
vel og hefur fólk frá um helmingi
þeirra ferðaþjónustubæja sem eru
innan Ferðaþjónustu bænda mætt á
fundina og er nú þegar byrjað að
vinna eftir umhverfisstefnunni.
Það má teljast gott þar sem
markmiðið er að allir
ferðaþjónustubændur komi upp
umhverfisstefnu á næstu tveimur
árum.
Fundimir voru haldnir á eftir-
farandi ferðaþjónustubæjum:
Sveinbjamargerði, Gauksmýri,
Gistihúsinu Egilsstöðum, Smyrla-
björgum, Höfðabrekku, Efri Brú,
Mótel Venus og Seftjöm. Menn
sýndu málefninu mikinn áhuga á
fundunum og voru almennt sam-
mála um að það væri mun auð-
veldara að vera umhverfisvænn en
virtist við fyrstu sýn. Áhersla var
lögð á að byrja að setja fram
umhverfisstefnuna og taka síðan
eitt skref í einu. Engin ástæða væri
til að mikla hlutina fyrir sér. Á
fundinum setti hver og einn niður
sín eigin markmið og dagsetningu
á framkvæmd þeirra. Nokkur dæmi
er að finna hér fyrir neðan:
Ég tek upp umhverfisstefnu
Jyrir fyrirtœkið mitt - 25. apríl
(dagur umhverfisins)
Ég tek upp flokkun á sorpi í
mínu fyrirtæki - ath. lífrœn
flokkunfyrir 15. júní
Ég katina á hvaða hátt er hægt
að vinna að heildarorkusparnaði -
15. niaí
Ég kanna menningarminjar í
nánasta umhverfi mínu - fyrir 1.
júní.
Fundarmenn vom einnig
fræddir um helstu áherslur í um-
hverfisvænni ' ferðaþjónustu. I
stuttu máli má segja að megin-
markmiðið sé að draga úr
neikvæðum áhrifum og ýta undir
jákvæð áhrif. Það er því mikilvægt
að uppbygging sé aðeins leyfileg ef
hún eyðileggur ekki umhverfið.
Hún þarf að vera í takt við samfé-
lagsþróun á svæðinu þar sem tekið
er tillit til heimamanna sjálfra, og
saga, menning og náttúra
svæðisins em lagðar til gmndvallar
í framtíðamppbyggingu. Þá var
velt upp ýmsum þáttum sem hafa
ber í huga við fram-
tíðarskipulagningu og markaðs-
setningu. Horfa þarf til lengri tíma
og skoða framtíðamppbyggingu
svæða í einni heildarmynd og við
markaðssetningu þarf m.a. að huga
að dreifingu ferðamanna,
kortlagningu viðkvæmra svæða,
miðlun upplýsinga til ferðamanna
og íbúa svæðisins og síðast en ekki
síst samstarfi við sveitarfélögin.
Með hugmyndinni um um-
hverfisvæna ferðaþjónustu er ekki
verið að steypa öllum í sama farið.
Fjölbreytnin er í fyrirrúmi og
rúmast t.d. náttúmtengd, menning-
artengd, heilsutengd, landbúnaðar-
tengd og fjölskylduvæn ferða-
þjónusta undir þeirri hugmynda-
fræði sem liggur að baki um-
hverfisvænni ferðaþjónustu.
Álit fundarmanna
Þegar Guðrún og Guðlaugur
Bergmann vom búin að kynna
umhverfisstefnuna og mikilvægi
þess að Ferðaþjónusta bænda stígi
þetta skref, fengu ferðaþjónustu-
bændur og aðrir gestir að segja álit
sitt á þessu verkefni. Allir vom
jákvæðir og kom m.a. annars fram
að þetta væri „tímabært", „áhuga-
vert“, „stórkostlegt“, „vekur mann
til umhugsunar" og „hvetjandi“.
Það kom einnig vel fram í þessari
umræðu að margir em að gera
margt gott, svo sem að huga að
orkuspamaði, ásýnd staðarins og
rækta eigið grænmeti. En alltaf má
gera eitthvað betur og því eru öll
lítil skref fram á við þýðingarmikil.
Framhaldið
Fulltrúar Ferðaþjónustu bænda
og Hólaskóla munu fylgja þessari
kynningarherferð eftir, t.d. með
ráðgjöf, fræðslu, hugmyndabanka
á netinu, könnun og ekki má
gleyma undirbúningi að
sameiginlegum innkaupum t.d. á
hreinlætisvömm og hugsanlega
matvælum. Þá hafa ferðaþjónustu-
bændur verið hvattir til þess að
taka þátt í átaksverkefninu Fegurri
sveitir sem snýr að hreinsun á landi
og fegmn mannvirkja (sjá
http://www.simnet.is/ umhverfi).
Næsti kynningarfundur verður
haldinn í Reykjavík þann 13.
nóvember en daginn eftir verður
hinn árlegi nóvemberfundur hald-
inn þar sem ferðaþjónustubændur
koma saman, til að fræðast og eiga
saman góðar stundir.
Að lokum
Ferðaþjónustubændur geta
sinnt mikilvægu hlutverki í
umhverfisvænni ferðaþjónustu þar
sem þeir geta verið leiðandi með
því að sýna umhyggju fyrir um-
hverfinu í verki og miðlað þannig
áfram til ferðamanna og íbúa
svæðisins. Samstaða á meðal
ferðaþjónustubænda er nauðsynleg
en ljóst er að ef vel á að verki
standa þarf einnig að koma til
samstaða og vilji sveitarfélaga og
annarra hagsmunaaðila.
Elín Berglind Viktorsdóttir,
ferðamálabraut Hólaskóla,
berglind@holar.is
- Fjós eru okkar fag -
• Weelink fóðrunarkerfi
• Innréttíngar og básadýnur
- ath! bæði í legubásafjós og básafiós.
• Steinrimlar og flórsköfukerfi í gripahús
• Veitum aðstoð og ráðgjöf við hönnun fjósa
- hafið samband, við mætum á staðinn
• Loftræstingar
- í nýjar og eldri byggingar
Lárus Arnar Bjarni
s: 437 0023 / 869 4275 s: 486 5656 / 898 9190
www.bondi.is
RAYIMOR
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
fyrir vélageymsiur og skemmur
Sterkar - Léttar - Þéttar
Timbur, steinull, þakjárn, panill,
vatnsklæðning, pallaefni, listar,
grindarefni, saumur, skrúfur, boltar.
Sími 577 1770
Fax 557 3994
rum á svæði
burðarverksmiðjunnar
í Gufunesi.
Ætk
MEISTARAEFNI
BYGQINGAVÖRUR
ZrOoLdcR
PR0PASTE
Fæðubótaefnið sem farið hefur
sigurför um Norðuriöndin
Fæst hjá dýraiæknum
Umboðsaðili Vetis sími: 461-1290
ALHLIÐA SÓTTHREINSIEFNI
Frekari upplýsingar á viww.antecint.com
og hjá dýralækninum þínum.
FRAMLEIÐANDI:
Antec
Intemational
www.antecint.com
HEILDSÖLUDREIFING:
Pharmaco
SlMI 53S 7000
JARÐVINNSLUTÆKI
Úðunartæki
Fjaðraherfi
Sáningarvélar
Piógar 3, 4 og 5 skera
Taðdreifari 8 - 12t.
G.SKAPTASON S CO
Tunguháls 5
sími 577 2770
<