Bændablaðið - 28.05.2002, Page 23
Þriðjudagur 28. maí2002
BÆNDABLAÐIÐ
23
Þröstur Eysteinsson, fagmálastjóri
Skógræktar ríkisins
Skðgrækt í
570 inni og
500 il Mtt
Skógrækt er vaxandi búgrein á
íslandi. Að sögn Þrastar
Eysteinssonar, fagmálastjóra
Skógræktar ríkisins, er stunduð
skóg- og/eða skjólbeltarækt á
um 570 jörðum á Islandi. Um
500 jarðir eru á biðlista eftir að
geta hafið skógrækt, en það eru
fjárveitingar frá ríkinu sem
stjórna því hve hratt gengur á
þennan biðlista. Þessar rúmlega
eitt þúsund jarðir skiptast
nokkuð jafnt niður á
landshlutana.
Nokkur svæði á landinu eru
heldur á eftir í skógræktarmálum
vegna þess að þar hefur engin
skógrækt verið, engar hefðir og
engar fyrirmyndir. Á þessum
svæðum eru menn seinir að taka
við sér. Nefna má
Húnavatnssýslumar og Strandir í
þessu sambandi. Á móti má benda
á svæði eins og Tálknafjörð þar
sem næstum hver einasta jörð er
komin inn í verkefnið. Sömuleiðis
innanvert Hérað, en þar er elsta
skógræktarverkefnið og um 60%
bænda þátttakendur í því.
Um 60% jarða í skógrækt
eftir nokkur ár
„Við sjáum enga sérstaka
ástæðu til að ætla að áhugi annars
staðar á landinu verði minni en á
Héraði. Ef að líkum lætur, og
peningar koma frá ríkinu, getur
farið svo að 60% bújarða á íslandi
verði þátttakendur í skógrækt eftir
einhver ár, kannski innan tíu ára,"
segir Þröstur.
Á þessu ári verður veitt frá
ríkinu tæpum 300 milljónum
króna til landshlutabundnu
skógræktarverkefnanna.
Betra kerfi
Hér er um að ræða
landshlutabundin
skógræktarverkefni sem sjá um
úthlutun til bænda á
ríkisframlögum til skógræktar.
Áður var í gangi kerfi sem
Skógrækt ríkisins rak og hét
Nytjaskógrækt á bújörðum en var
alltaf í of miklu fjársvelti til að ná
sér almennilega á strik. En með
því að gera skógræktarverkefnin
sjálfstæð frá móðurstofnuninni og
setja yfir þau stjómir sem í eru
heimamenn hefur gengið mun
betur að ná í íjárframlög til
verkefnisins.
„Segja má að mest jafnvægi sé
komið á varðandi Héraðsskóga því
þeir bændur sem vilja vera með í
því verkefni em komnir inn. Þar er
um að ræða gamla verkefnið innan
Eiða. Síðan stækkaði það verkefni
um allt Hérað fyrir þremur árum
síðan. Þess vegna bíða einhverjir á
Úthéraði og Jökuldal eftir að
komast inn," segir Þröstur.
Byggðaverkefni
Landshlutabundnu
skógræktarverkefnin heita
Austurlandsskógar,
Norðurlandsskógar,
Vesturlandsskógar,
Suðurlandsskógar og Skjólskógar
á Vestljörðum, auk Héraðsskóga.
Á þessum svæðum er enn verið að
byggja verkefnin upp, enda em
þau ung og alls staðar eru biðlistar
um að komast að.
„Hér eru á ferð
byggðaverkefni þar sem um er að
ræða stuðning við byggðir
landsins. Það felst í fjárhagslegum
stuðningi núna þar sem bændur fá
greitt fyrir að gróðursetja plöntur,
bera á o.fl. Þeir sem eru virkir
þátttakendur geta haft nokkrar
tekjur af því að rækta skóg á sínum
eigin jörðum. Framtíðarsýnin er
svo að hafa tekjur af skóginum
þegar fram líða stundir og bæta
þannig tekjumöguleika bænda um
allt land. En einhverjir áratugir em
í það," segir Þröstur Eysteinsson.
Gúmmídreglar fyrir
lausagöngufjós
Erum farin að framleiða gúmmídregla
í ýmsum breiddum og lengdum.
Gúmmímottur
Við framleiðum mottur í stíur bása hestakerrur og fl.
U bitar
Framleiðum bita fyrir 15cm bita margfaldar
endingu timbursinns.
Gúmmímótun ehf
Gúmmivörur, Snittbútar.Garðsláttuvélaviðgerðir
Kaldbaksgötu 8 600 Akureyri
Sími 4536110 Fax 4536121
Netfang gummimotun@gummimotun.is
www.bondi.is
Auglýsing um
beingreiðslur í garðyrkju
Bændasamtök íslands auglýsa eftir umsóknum um beingreiðslur
vegna framleiðslu á gúrkum, tómötum og papriku samkvæmt XI
kafla laga nr. 99/1993.
Rétt til beingreiðslna á árinu 2002 eiga þeir framleiðendur sem
framleiddu gúrkur, tómata eða papriku á árinu 2001 eða hófu
framleiðslu þessara afurða fyrir 1. mars 2002.
Umsóknarfrestur er til 7. júní n.k. Eyðublöð og nánari
upplýsingar fást hjá Bændasamtökum íslands, Bændahöllinni
v/Hagatorg og Sambandi garðyrkjubænda,
Garðyrkjumiðstöðinni, Reykjum, Hveragerði. Eyðublöðin er
einnig að finna á www.bondi.is.
Tilboð óskast
Tilboð óskast í New Holland TS110 108 hestafla
dráttarvél sem er skemmd eftir veltu.
Dráttarvélin er árgerð 2002 og ekin 243 vinnustundir.
Dráttarvélin er til sýnis hjá Vélaver h.f.. Lágmúla 7,
Reykjavík þar sem tekið verður við tilboðum í vélina.
s
Arsfundur
2002
*
Arsfundur Lífeyrissjóðs bænda verður haldinn í B-sal á 2. hæð í
Bændahöllinni við Hagatorg í Reykjavík, þriðjudaginn
11. júní 2002 og hefst kl. 16:00.
Dagskrá ársfundarins verður eftirfarandi:
1. Flutt skýrsla stjórnar
2. Kynntur ársreikningur
3. Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri úttekt
4. Gerð grein fyrir fjárfestingarstefnu sjóðsins
5. Önnurmál
Allir sjóðfélagar, jafnt greiðendur sem lífeyrisþegar, eiga rétt til
fundarsetu. Sjóðfélagar eru hvattir til að nýta sér rétt sinn og mæta á
ársfund sjóðsins.
Þeir sem vilja nýta sér þennan rétt þurfa að tilkynna það skrifstofu
sjóðsins í síðasta lagi 4. júní og munu þeir fá afhent fundargögn í
upphafi fundar.
Lífeyrissjóður bænda