Bændablaðið - 14.01.2003, Page 1

Bændablaðið - 14.01.2003, Page 1
1. tölublað 9. árgangur Þriðjudagur 14. janúar 2003 ISSN 1025-5621 Ráðunautalundur í byrjun febrúar Árlegur ráðunautafundur verð- ur haldinn á Hótel Sögu dagana 5. til 7. febrúar nk. Á fundinum verður ijallað um eftirfarandi meginefhi: Landnýtingu frá ýmsum sjónarhomum en þó með megináherslu á tengsl hennar við gæðastýringu í sauðfjárrækt, sprota, nýjungar og ný viðhorf í landbúnaði og nautgriparækt, verktakastarfsemi í búrekstri og rekstur kúabúa. { Bændablaðinu 28. janúar verður fjallað ítarlegar um einstök viðfangsefni fundarins. Kúabúum fækkar Enn fækkar kúabúum og í árslok 2002 voru kúabú landsins 953, en voru í árslok 2001 972 og árslok 2000 1.039. Fækkun býla síðastliðið ár er verulega minni en undangegnin ár eða 0,4 á viku, en árið 2001 hættu að meðaltali 1,3 býli á viku og árið 2000 hættu að meðaltali 1,6 býli á viku. /SS SveiMliig hera ðbyrgl á Helga Halldórsdóttir, sem sat á þingi ekki alls fyrir löngu, spurði landbúnaðarráðherra hvort fyrirhuguð væri frekari breyting á lögum um bú- fjárhald á þann hátt að bú- fjáreftirlit heyri alfarið undir landbúnaðarráðuneytið. Landbúnaðarráðherra sagði að 2. maí 2002 hafi Alþingi sett ný lög um búfjárhald,. Með lögunum er sveitarfé- lögunum falin ábyrgð á bú- fjáreftirliti. Hann sagði að ekki væru ráðgerðar breyt- ingar á þeim lögum. Bændur sýna nýja bðkhalds- ng upplýsingnkerfinu dkBúbút mikinn áhuga Þó ekki séu Iiðnir nema rúmir níu mánuðir frá því sala á dkBúbót hófst eru vel á sjötta hundrað eintök þegar komin í notkun hjá bændum. Aðsókn á grunnnámskeið í notkun forritsins hefur verið gríðarmikil en á næstu mánuðum verða haldin framhaldsnámskeið í öllum héruðum landsins. Þar verður m.a. farið í uppgjör og skattframtöl. I samtali við Gunnar Guðmundsson, forstöðumann ráðgjafarsviðs BI, kom fram að viðtökur bænda væru langt umfram væntingar og þær gæfu vissulega tilefni til að fylgja verkefninu vel eftir. „Á námskeiðunum er jöfnum höndum lögð áhersla á kennslu í grunnþáttum tvíhliða bókhalds, en það teljum við afar þýðingarmikið, og hagnýtingu þess sem stjórntækis í búrekstrinum. Einnig er farið yfir helstu vinnuþætti nýja bókhaldskerfísins. I áframhaldandi þróun á dkBúbót munum við leggja áherslu á aðlögun þess við sérþarfír einstakra búgreina. Átak verður gert í að samræma og bæta lyklun og færslur. Slík samræming er mikilvæg upp á rekstrarsamanburð og hagrannsóknir sem við þurfum vissulega að efla í okkar búrekstri," sagði Gunnar að lokum. Bændablaðið/örn Ört vaxandi þekkingarþorp á Hvanneyri Skipulagsbreydngan til að mæta rekstrarepfiðleikum Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri hefur aukið við starfssvið sitt og býður nú upp á nám á sviði náttúruvísinda og umhverfísmála auk hinna hefðbundnu búvísinda. Þessi áherslubreyting hefur átt þátt í að auka aðsókn að skólanum, sem var eins og margar aðrar háskóla- stofnanir rekinn með halla á síðasta ári. Nemendur við Landbúnaðarháskólann eru nú um 140 talsins, þar af stunda um 35 nemendur fjarnám. Á Hvanneyri hefur með árunum myndast byggðar- kjarni í kringum starfsemi skólans og þar búa nú tæplega 300 manns og af þeim eru langflestir tengdir starfssemi skólans á einhvern hátt. Einnig hafa ýmsar stofnanir á náttúru- og landbúnaðarsviði aðsetur á Hvanneyri og kemur starfsfólk þeirra að kennslu við skólann. Að sögn Magnúsar B. Jónssonar rektors hefúr sú uppbygging sem átt hefúr sér stað á Hvanneyri undanfarin ár orðið þrátt fyrir að fjárveitingar til skólans hafi í raun einungis fylgt verðlagsbreytingum og mjög lítið fjármagn hafi fengist aukalega til þess að mæta hinum sívaxandi umsvifum. Þó fékkst á síðasta ári fjarmagn til að hefja byggingu tjóss og verður það fúllgert á árinu 2004 og mun gjörbreyta aðstöðu til kennslu og rannsókna í nautgriparækt á staðnum. Magnús segir Landbúnaðarháskólann eins og margar aðrar háskólastofnanir rekinn með halla á síðasta ári. Á árinu 2002 og nú í ffamhaldi af fjárlögum fyrir komandi ár hefur verið og er unnið að margvíslegum skipulagsbreytingum og endurskoðun verkefna með það að leiðarljósi að efla meginviðfangsefni skólans þ.e. kennslu og rannsóknir en draga saman í margs konar stoðverkefnum. Óhjákvæmilegt reyndist að loka loðdýrabúi skólans þar sem aðsókn í nám í loðdýrarækt er mjög lítil og önnur verkefni búsins hafa dregist saman. Þá hefur mötuneyti skólans hefur verið leigt út til einkarekstrar og hefur það reynst vel. Það er ekki hægt að segja að á Hvanneyri sé hefðbundið skólaumhverfi, þar sem þama er um að ræða bújörð í sveit, þar sem rekinn er háskóli. Staðsetning skólans í miðjum Borgarfirði skapar honum bæði sérstakt og fallegt umhverfi og nándin við búreksturinn á jörðinni hefur sitt að segja. Nemendur LBH njóta ýmiss hagræðis af að búa og starfa á staðnum og góð nánd er á milli nemenda og starfsfólks. Boðið er upp á heimavist, en einnig em fyrir hendi nemendagarðar með einstaklingsherbergjum og fjölskylduíbúðum, tengdum við tölvunet skólans. Á Hvanneyri er bæði leikskóli og gmnnskóli og þar er rekin lítil verslun með nauðsynjavömr. Þar er því að myndast ört vaxandi þekkingarþorp.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.