Bændablaðið - 14.01.2003, Qupperneq 6

Bændablaðið - 14.01.2003, Qupperneq 6
6 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 14. janúar 2003 Bændablaðið er málgagn íslenskra bænda Viljum við hafa landbúnað á íslandi? Guðni Þorvaldsson, séríræðingur á RALA, ritaði gagnmerka grein um landbúnaðarmál í Morgunblaðið í liðnum mánuði. Þar minnir Guðni á að matur er grundvallarþáttur í lífi mannsins og því vilja flestar þjóðir framleiða sinn eigin mat eftir því sem þess er kostur. „Þegar litið er til jarðarinnar í heild minnkar stöðugt það land sem hægt er að nýta til landbúnaðar, en fólki fjölgar. Talið er að um 800 milljónir manna búi nú við verulegan matarskort. Þessa stundina er hins vegar mikið framboð af landbúnaðarvörum í hinum vestræna heimi og verð því hagstætt. Þetta getur þó breyst á skömmum tíma. Tiltölulega litlar breytingar á veðurfari geta haft afgerandi áhrif, sömuleiðis mengunarslys, náttúruhamfarir, sjúk- dómar í búfé og plöntum, meindýr, styijaldir og pólitískar ákvarðanir um styrki til landbúnaðar. Þá væri óskandi að stærri hluti þeirrar ffamleiðslu sem aflögu er á Vesturlöndum næði til fátækari þjóða sem ekki geta ffamleitt nóg. Til lengri tíma litið er því ekki víst að ódýr matvæli verði jafn auðfengin og nú. Hér á landi er hægt að ffamleiða mikið af landbúnaðarvörum. Veðráttan veldur því hins vegar að hér þarf ffemur dýran húsakost fyrir búfé og vaxtartími gróðurs er stuttur og ffemur kaldur. Aðrir þættir eru hins vegar hagstæðari, hér er t.d. mikið landrými, landið tiltölulega hreint og minna um sjúkdóma í plöntum og dýrum en víða annars staðar. Þetta getur reynst heilladijúgt í ffamtíðinni. Kröfúr um að landbúnaður sé stundaður í sátt við umhverfíð og ffamleiddar séu hreinar og hollar vörur hafa aukist. Fólk vill vera öruggt um að það sé að kaupa góða vöm og jafnvel geta rakið hana aftur til ffamleiðanda. Þetta kostar peninga og verður því að hafa í huga þegar verið er að bera saman verð. Off er talað um að bú þurfi að stækka og ffamleiðsla hvers bónda að aukast. Þessi þróun er eðlileg upp að vissu marki en henni geta fylgt ýmis vandamál ef hún gengur mjög langt. Ef miklum fjölda búfjár er t.d. komið fyrir á einum stað skapast vandamál vegna mikils úrgangs og þar sem gripir em úti verða skemmdir vegna traðks. Þama þarf því að fínna jafnvægi milli hagkvæmninnar af því að stækka búin og gallanna sem fylgja í kjölfarið. Að mínu mati hefur sérhæfíng og stækkun búa gengið of langt í sumum löndum. Eftir því sem bú verða stærri og fólki fækkar í sveitum verður erfíðara að halda uppi félagslífi, skólum og annarri þjónustu sem nauðsynleg þykir. Vegna þessa er mikilvægt fyrir mannlíf sveita að þar búi aðrir en þeir sem hafa ffamfæri af hefðbundnum landbúnaði. Með markvissum hætti þarf að gera dreifbýlið aðlaðandi fyrir þá sem þar vilja búa hvort sem þeir stunda búskap eða aðra vinnu. Þrátt fyrir mikla ffamleiðsluaukningu eru bændur víða um heim láglaunastétt. Stækkun búa og tæknivæðing ffamleiðslunnar hefúr ofí á tíðum ekki fært þeim þann hluta ágóðans sem skyldi. Viljum við landbúnað þar sem bændur eru þvingaðir til hámarks afkasta og lágmarkslauna? Við megum ekki gleyma því að landbúnaður veitir fjölmörgum atvinnu öðrum en bændum, bæði fólki sem stundar þjónustu við landbúnaðinn og hinum sem vinna úr ffamleiðslunni. Hann gegnir einnig veigamiklu hlutverki í því að tengja saman hinar dreifðu byggðir landsins og gera búsetu þar mögulega. A næstu árum munu landbúnaðarvörur ffá öðrum löndum banka hér á dyr í auknum mæli. Við þurfúm því að móta okkur skýra ffamtíðarstefnu og haga undirbúningi í samræmi við það. Þegar nóg ffamboð er af einhverjum nauðsynjum fínnst okkur gjaman að svo muni verða áffam. Það er hins vegar ekki sjálfgefið og farsælt hverju heimili og hverri þjóð að hafa það i huga. Verð og hagkvæmni eru mikilvægir þættir í umræðunni um landbúnað, en í þessu efni þarf að horfa til Iangs tíma. Það þarf að standa þannig að þróun og uppbyggingu greinarinnar að ekki sé gengið á gæði landsins og ffamleiddar séu hollar og góðar vörur. Einnig þarf að búa fólkinu sem við atvinnuveginn starfar mannvænt umhverfi. Þetta eykur kostnað til skemmri tíma litið en skilar sér þegar til lengdar lætur,“ segir Guðni. Grein Guðna er þess virði að henni sé haldið á lofti. Það gerist nefnilega æ sjaldgæfara að sjá fjallað um landbúnaðarmál á jafn yfirvegaðan hátt. Því miður. /áþ. Bændablaöið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjölmargra annarra er tengjast landbúnaði. Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu. Árgangurinn kostar kr. 5.200 en sjötugir og eldri greiða kr. 2.250. Sími: 563 0300 - Fax: 552 3855 - Kt: 631294-2279 Ritstjóri: Áskell Þórisson (ábm.) Auglýsingastjóri: Eiríkur Helgason, blaöamaöur: Sigurdór Sigurdórsson Netfang blaðsins er bbl@bondi.is Prentun: Prentsmiöja Morgunblaösins Nr. 168 Bændablaöinu er dreift i tæpum 8000 eintökum. islandspóstur annast þaö verk aö mestu leyti. ISSN 1025-5621 Ari Teitsson, formaður BÍ, í spjalli í upphafi nýs árs „Síðasta ár var landbúnaðinum að mörgu leyti erfitt. Þetta á einkum við um þá sem ffamleiða kjöt, en síðustu mánuði hefur það of oft verið selt undir kostnaðar- verði. Afleiðingin er sú að margir bændur hafa orðið fyrir miklu tekjutapi. Eins og verðlag var fyrir jólin fengu fáir ffamleiðendur eitthvað fyrir sína vinnu. Það var og er óviðunandi ástand,“ sagði Ari Teitsson, formaður Bænda- samtaka íslands í samtali við Bændablaðið. „Margt jákvætt gerðist líka í landbúnaði á liðnu ári. Þar vil ég nefna grænmetis- samninginn og þau áhrif sem hann hafði á grænmetismarkaðinn. Með þessum samningi tókst að lækka verð á grænmeti til neytenda og sátt náðist í þjóðfélaginu um íslenska garðyrkju. Um leið tókst að tryggja kjör flestra garðyrkju- bænda.“ Það kom fram hjá Ara að sala á mjólk og mjólkurafúrðum hefði aukist á liðnum árum þar til á síðari hluta nýliðins árs - þá virtist sem toppnum hefði verið náð a.m.k. í bili. Hins vegar var í ljósi góðrar sölu ákveðið greiðslumark sem hljóðar upp á 106 milljónir lítra. „Olíklegt er að það takist að halda þessu greiðslumarki á næsta verðlagsári,“ sagði Ari. Dregið úr möguleikum á beinum stuðningi - Nú er Island aðili að samningum Alþjóðaviðskipta- stofnunarinnar um viðskipti, m.a. með búvörur, og nú er unnið að gerð nýs samnings. Mun hann hafa áhrif á stöðu mjólkur- framleiðslu á Islandi? Og hvaða áhrif hefði það á framleiðsluna ef ísland gengi í ESB? „Jú, því verður ekki neitað að ýmsar blikur eru á lofti. Nýr alþjóðasamningur WTO mun líklega draga úr möguleikum á að styðja framleiðsluna beint, en framleiðslutengdur stuðingur við mjólkurffamleiðslu er tiltölulega mikill hérlendis. Umræða um mögulega aðild íslands að ESB hefur aukist og að sjálfsögðu höfúm við skoðað hvaða afleiðingar slík aðild gæti haft á mjólkurframleiðslu og landbúnað í heild. Það er skemmst frá því að segja að aðild gæti orðið erfið fyrir íslenskan landbúnað. Bcettar samgöngur draga úr fjarlœgðarvernd Á þessari stundu er ekkert sem bendir til þess að íslendingar séu á leiðinni í ESB en það breytir því ekki að íslenskur landbúnaður mun í ríkari mæli þurfa að taka mið af landbúnaðarstefnu og stuðningi við landbúnað í ESB. Bæði draga bættar samgöngur úr fjarlægðarvemd og einnig emm við bundin af því að taka upp ýmsar reglur og hætti ESB, vegna aðildar okkar að EFTA. Því þurfa mjólkurframleiðendur - rétt eins og aðrir búvöruframleiðendur - ætíð að vera reiðubúnir til að aðlaga sig breyttum aðstæðum. Breytingar mega þó ekki gerast of hratt.“ - Það er ekkert launungarmál að nú er meira ffamleitt af kjöti en hægt er að afsetja. „Það er rétt. Kjötmarkaðurinn er ein heild og ffamleiðsla á einni tegund hefúr óhjákvæmilega áhrif á aðra. Nú er mikið ffamleitt af kjúklingum og þar á sér stað birgðasöfnun. Á liðnu ári var offramleiðsla á svínakjöti og er raunar enn og birgðir dilkakjöts hafa safúast upp, en sala á því dróst saman um 10% á nýliðnu ári. Auk þess var tekin óraunhæf ákvörðun varðandi útflutnings- skyldu á dilkakjöti. Allt er þetta ógnun við kjötmarkaðinn og möguleika bænda á að fá viðunandi verð fyrir sínar afúrðir.“ Tvœr leiðir fœrar - Hvað geta Bændasamtökin gert þegar svo er komið málum? „Bændasamtökin hafa ekkert vald til að stjóma kjötffam- leiðslunni en þau reyna að upplýsa sem flesta um hvað er að gerast og hvað sé líklegt að gerist. Meginmálið er að það þýðir ekki að framleiða meira kjöt en markaður er fyrir - og það gildir um allar kjöttegundir. I raun eru tvær leiðir í þessu máli. Annars samningurinn var gerður árið 1999, en þá var ákveðið að stefna að því að flytja leiðbeininga- þjónustu búnaðarsambandanna saman í færri en öflugri einingar. Menn voru sammála um að sérhæfing leiðbeininga í landbúnaði væri nauðsynleg og þyrfti að gerast sem fyrst. Aukin sérhæfing hefúr svo aftur í för með sér að skilin á milli leiðbeiningastarfs á landsvísu og héraðavísu hafa minnkað," sagði Ari og lagði á það áherslu að forsvarsmenn bænda, sem bæm ábyrgð á þeim fjármunum sem fara til leiðbeiningastarfs, yrðu stöðugt að leita leiða til að nýta þá fjármuni sem best. „Eg sé það fýrir mér að í framtíðinni verði í ríkari mæli litið á leiðbeiningar í landbúnaði sem eina heild. Þetta mun gerast þannig að stærri hluti leiðbeiningastarfsins verður unninn á leiðbeiningamiðstöðvum úti í héruðunum." Öflugri leiðbeiningastöðvar Oflugri leiðbeiningastöðvar kalla á meira samstarf við vísindamenn í landbúnaði, segir Ari, og ætla má að kjarnamir verði a.m.k. fjórir. I fyrsta lagi má nefna Stóra-Ármót en náið samstarf er á milli rannsóknarmanna þar og starfsfólks Búnaðarsambands Suðurlands. í annan stað má benda á samstarf leiðbeiningamiðstöðvar Vesturlands og Landbúnaðar- háskólans á Hvanneyri, í þriðja lagi starfsemina í Búgarði á Akureyri og Möðruvelli í vegar að ffamleiðendur vinni saman og komist að niðurstöðu um magn sem skynsamlegt er að láta á innlendan markað. Hin leiðin er að halda áfram offramleiðslu og undirboðum þar til nógu margir eru orðnir gjaldþrota. Það er dýr og sársaukafúll leið.“ Leiðbeiningar sem ein heild Ari gerði málefni leið- beiningaþjónustunnar að umtalsefni og sagði að á árinu kæmu vonandi betur í ljós þær breytingar sem forsvarsmenn hennar hefðu unnið að á liðnum mánuðum. „Upphaf breytinga má rekja til þess þegar fyrsti búnaðar- Hörgárdal. „í minna mæli en þó nátengd er samvinna Búnaðar- sambands Austurlands og margháttaðrar skógræktar- starfsemi á Egilsstöðum,“ sagði Ari og vildi að lokum minna á öflugt starf á Hólum í Hjaltadal. „Hólar eru uppspretta þekkingar sem nýtist mjög víða.“ „Hér er á ferð þróun sem í raun var mörkuð í búnaðarlögum og búnaðarsamningi. Markmiðið er að styrkja faglegar leið- beiningar til bænda landsins,“ sagði Ari Teitsson, formaður Bændasamtaka íslands að lokum.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.