Bændablaðið - 14.01.2003, Side 7

Bændablaðið - 14.01.2003, Side 7
Þriðjudagur 14. janúar 2003 BÆNDABLAÐIÐ 7 Kempur prjár Myndina hér að ofan tók Björn Bergmann í Húnaþingi nokkru eftir miðja síðustu öld. Þarna má sjá kempur þrjár að nýlokinni hrútasýningu. T.v. er Guðbjartur Guðmundsson. Segja má að hann sé þarna sem fulltrúi hins vonarhýra æskumanns, nýlega genginn fulllærður frá prófborði Framhaldsdeildarinnar á Hvanneyri, og hefur tendrað sér eina sjésterfíld eftir átök dagsins. Árni G. Pétursson í Hekluúlpu og með skinnhúfu líklega frá sama firma að hætti samvinnumanna. Árni G. er glaðbeittur en íbygginn, enda með niðurstöðu hrútadóma í skinntösku sinni, líklega sem formaður dómnefndar. Hins vegar leikur tvírætt glott um varir hins innfædda Húnvetnings, Aðalbjörns ráðunauts Benediktssonar, sem í samræmi við virðuleik atburðarins hefur klæðst hvítri skyrtu og lakkrísbindi að hætti loðhæringanna fjögurra frá Grútartjörn (Liverpool), er á þessum árum hrærðu hjörtu ungmenna víða um fjársveitir landsins. Aðalbjörn hefur þó gert sér grein fyrir hinum praktíska hluta dómstarfanna og íklæðst klofstígvélum svo varist gæti sauðafitu og ullarló. Af holningu hans allri stafar þvi alkunn staðfesta og traust í hvívetna. Er sauðkindin lykillinn að sjálfstæði pjúðarinnar? Á að útrýma sauðijárbændum? Ert þú ábyrgur fyrir því, lesandi góður? Ég meina, þið sem viljið leggja niður sauðijárbúskap og flytja inn ódýrt kjöt á kostnað ís- lensks landbúnaðar - hvert stefnið þið? Nýlega kom ffam í fréttum að samkeppni á Norðurlöndunum væri hvað mest hér á landi en verð á matvöru hvað hæst. Að minnsta kosti einn forsvarsmaður kaup- manna sagði ástæðuna vera þá að ekki væri leyfður óheftur inn- flutningur á landbúnaðarvörum til samkeppni við þær íslensku. Er þetta skynsamleg afstaða og ábyrg? Hvað kostar að vera sjálf- stæður? Hvað kostar að nota ís- lensku sem tungumál? Er kannski sauðkindin lykillinn að sjálfstæði þjóðarinnar? Nokkuð ljóst er að fjöldafram- leiðsla á svínum og kjúklingum sem alast upp og lifa allan sinn aldur við þröngar aðstæður í inni- lokun og á innfluttu fóðri sem kostar gjaldeyri, með mismunandi loftræstingu og hreinlæti með lág- marks launakostnaði, kostar færri krónur á kíló heldur en heiðar- lambið sem nærist á íslensku fóðri eingöngu með tilheyrandi kostnaði og fyrirhöfn, og andar að sér hreinu og tæru fjallalofti. Hvaða áhrif hefúr það til langs tíma á sjálfstæði þjóðarinnar ef við hættum að ffamleiða þær afúrðir sem nærast á íslensku fóðri, vatni og lofti? Hvar stöndum við, ef til dæmis verður eitthvert umhverfis- slys á borð við kúariðuna í Bret- landi, kjamorkuslys eða styrjaldir? Eða ef eitthvað yrði til þess að setja á okkur viðskiptabann til að kúga okkur til hlýðni við stór- veldi? Er það ekki nokkurra króna virði að halda í það öryggi sem ræktun garðsins heima gefúr okkur? Sennilega ber enginn á móti því að íslenska lambið er úrvals- vara. En til þess að það njóti sín sem slíkt þarf úrvinnsla að vera við hæfi. Varan sem boðin er til kaups má ekki líta út fyrir að vera aðallega fita og bein. Vanda þarf frágang á því sem kaupendum stendur til boða og þjóðin þarf að rifja upp hvemig nýta má lambið og afúrðir þess sem best. Bömin okkar þurfa að læra að borða ekki Hluti af starfsfólki MR-búðarinnar. Valdimar A. Kjartansson, íris Ósk Gunnarsdóttir, Lilja Gunnarsdóttir og Guðrún Katrín Jóhannesdóttir Hjónin Anna Guðmundsdóttir og Björn Björnsson verslunarstjóri. MR-búðin stækkar til muna MR- búðin á Lynghálsi hélt á dögunum upp á stækkun verslunarinnar. Velunnurum var boðið til veislu þar sem skemmtikraftamir Hilmir Snær Guðnason og Jóhann Sigurðsson léku og sungu. Með stækkuninni hefúr verið m.a. verið tekið í notkun nýtt afgreiðslukerfi sem bætir aðgang að fóðri og bætiefnum. Vöruúrval hefúr aukist töluvert. Horka reiðfatnaður og hjálmar ásamt Leovet hreinsiefnum og vítamínum fyrir hross eru dæmi um nýjar vömr sem nú eru á boðstólum. MR-búðin er í eigu Mjólkurfélags Reykjavíkur og er bændum að góðu kunn í gegnum tíðina. Þar er m.a. seldar hestavörur, girðingarefni, sáðvara og fóður. Mikið gekk á þegar Kínaforseti kom í heimsókn til landsins á liðnu ári og félagar í Falun Gong vildu koma til landsins og mótmæla mannréttindabrotum í Kína. Viðbrögð íslenskra stjómvalda vom umdeild en Hjálmar Freysteinsson lét sína skoðun í ljós í þessari vísu: Verðskuldaði vœnan koss, vorn lét rœtast drauminn, Falun Gong sem færði oss ferðamannastrauminn. bara kjötið heldur líka svið og inn- mat á borð við blóðmör og liffar- pylsu. Því meiri nýting sem verður, þess lægra getur verðið orðið. Þetta höfúm við í hendi okkar. Ef nýjar aðferðir þarf til þess að nýta afurðir heiðarlambsins til fulls þurfum við að flnna þær upp. Þróunin verður að vera sú að við fáum betri og eftirsóknarverðari vöm sem við sættum okkur við að kosti meira en fjöldaffamleitt kjöt. Ekki er hægt að saka sauð- fjárbændur eingöngu um verðið á lambakjöti. Fækkandi sauðfé hefúr einnig fækkað sláturhúsum, hækk- að flutningskostnað og sláturverð. Hlutur bændanna sjálffa er ekki öfundsverður. Við verðum sjálf að axla hluta af ábyrgðinni og kaupa íslenskt lambakjöt í stað þess að hugsa í sífellu um innflutt kjöt. Kannski er það lykillinn að áffam- haldandi sjálfstæði íslensku þjóð- arinnar. Þórarinn Guðmundsson matreiðslumeistari Mælt af munni fram Stefán Vilhjálmsson matvæla- fræðingur, kjötmatsformaður og hagyrðingur setti þessar limrur og vísur á Leirinn á dögunum I tilefni þess að Ingi Kristinn Stefánsson tannlæknir sótti um inngöngu í Leirinn en þeir Stefán og Ingi eru skólabræður. Gefum Stefáni oröið: Ég minnist limru eftir inga að ioknu stúdentsafmæli, sem hópurinn heldur hátíðlegt á fimm ára fresti: Við höldum þá sama siðnum og sjáumst að fimm árum liðnum, ungir I anda og edrú að vanda með alltof mörg kíló á kviðnum. Annað dæmi um kveöskap Inga Kr. langar mig að tilfæra og læt fylgja litla „jólasyrpu” sem ég tók saman nýlega. Á þessum tölvupóststímum hafa ýmsir tekið sér fyrir hendur að nota netföng sem rlmorð. Á aðventunni í hitteðfyrra tóku ábyrgðarlausir aðilar sig til og ímynduðu sér netföng æðri máttarvalda. Stefán Vilhjálmsson setti fram fróma ósk: Ég vil jóla- finna -frið svo fari ekki neins á mis, en játa að mikils ég þig bið ó jesuskristur.is Gunnar Frímannsson kvað heilræðavísu. Út á götu aktu sist ef þú hefur drukkið romm. Gerirðu það þig grípur vlst gud@himnum.com Stefán V. fann annað rímorð og gerði jólavísu: Nú er hátíð heims um ból og hæfir ekki að vera domm, gleðileg þvi gefur jól gud@himnum.com Ingi Kr. Stefánsson tók upp þráðinn: Marlu fylgdi maður sem til manntals gekk I Betlehem, en geistlega hana gerði bomm gud@himnum.com Og Sverrir Páll Erlendsson bætir þessari i safnið: Pakka munu flestir fá sem forðast Reykjavlkurborg! Mitt er nafnið Máríá @Magdalena.org Gamla konan Friðrik Steingrímsson I Mývatnssveit og Jóhannes Sigfússon á Gunnarsstöðum voru saman á vlsnakvöldi og þeim var sagt frá danskri konu sem náði 120 ára aldri og þakkaði það því að hún reykti ekki, drakk ekki og stundaöi ekki kynlif. Þá orti Jóhannes: Þetta er orðinn aldur hár, enn er hún samt að tifa. En til hvers var hún öll þessi ár eiginlega að lifa? Friðrik hafði skýringu sem eiginiega lá í augum uppi og sagði: Allir verða eitthvert sinn Amorskalli að hlýða. Hún er ennþá auminginn eftir því aö bíða. Umsjón Sigurdór Sigurdórsson. Netfang: ss@bondi.is

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.