Bændablaðið - 14.01.2003, Síða 13
Þriðjudagur 14. janúar 2003
BÆNDABLAÐIÐ
13
6. Önnur lán
Lánasjóðurinn veitir lán til ýmis konar framkvæmda og
atvinnustarfsemi í sveitum sem tengjast landbúnaði.
■ Lán til fjárrétta og leitarmannahúsa. Lánað til
byggingar íjárrétta, leitarmannahúsa og
tiiheyrandi aðstöðu að mati sjóðsins.
■ Lán til fiskiræktar í ám og vötnum. Lánað til
byggingar veiðihúsa og annarra mannvirkja í eigu
félagssamtaka bænda.
■ Hlunnindi. Lánað til bygginga og búnaðar til
nýtingar á hlunnindum, s.s. byggingar
dúnhreinsunarhúsa og kaupa á
dúnhreinsunarvélum.
■ Vatns- og hitaveituframkvæmdir. Lánað til
ffamkvæmda frá stofnæð/lind/holu að húsi, þ.m.t.
hvers konar lagnir, dælur, dæluhús og
nauðsynlegur búnaður í þeim. Ekki er lánað til
borunar á vinnsluhoium, né búnaðar í þeim, og
ekki er lánað vegna kostnaðar sem kann að
hljótast af inntaki eða breytinga sem kunna að
vera gerðar innanhúss.
■ Rafstöðvar í sveitum. Lánað til byggingar
heimarafstöðva og markaðsrafstöðva, þ.m.t. gerð
vatnsmiðlunar, stöðvarhúss og búnaðar. Skilyrði
fyrir lánveitingu er að fyrir liggi ffumathugun og
faglegt mat á virkjunarkostinum sem staðfest er af
viðurkenndum sérfræðingum, að gert hafi verið
arðsemismat af aðila sem Lánasjóðurinn
viðurkennir, að gerður hafi verið samningur til
a.m.k. 10 ára um sölu raforkunnar og að allra
tilskilinna leyfa til ffamkvæmdanna hafi verið
aflað. Lánshlutfall allt að 50% af matsverði
ffamkvæmda.
7. Til afurðastöðva ojg
þjónustustofnana vio landbúnað
Lánatafla 2003
Lánasjóðurinn veitir lán til byggingar afurðastöðva, þ.e.
mjólkurstöðva, sláturhúsa, kjötfrystihúsa,
kjötvinnslustöðva og birgðageymslna fyrir jarðávexti og
grænmeti. Einnig veitir sjóðurinn lán til byggingar
ýmissa þjónustustofnana við landbúnað, s.s.
sæðingastöðva, dýraspítala, kynbótastöðva og
búnaðarsambanda.
Lánað er til byggingar húss, frárennslis-, vatns- og
raflagna, loftræstingar, hitakerfis, fastra innréttinga og
færibanda, undirstaða véla, véla og vélbúnaðar, ffágangs
á umhverfí, teikninga og eftirlits.
Lánshlutfall er allt að 50% af matsverði lánshæffa
framkvæmda, lánstími allt að 20 ár. Vextir 7,25% eða
effir ákvörðun sjóðsstjómar hverju sinni.
Annað
Sala greiðslumarks
Áður en greiðslumark er selt eða flutt af jörð verður að
afla skriflegrar heimildar Lánasjóðsins, sbr. reglugerð nr.
363/1996 og lög um samningsveð, hvíli lán ffá sjóðnum
á viðkomandi jörð.
Sjóðurinn setur sem skilyrði fyrir samþykki sínu að öll
lán séu í skilum eða tryggt að við söluna verði þeim
komið í fúll skil.
Ennffemur er veðmat jarðarinnar endurmetið og
áhvílandi lán hjá sjóðnum og á veðréttum á undan, verða
að rúmast innan 65% af nýju mati jarðarinnar.
Um heimild til sölu greiðslumarks verður að sækja
skriflega og beiðni þarf að fylgja veðbókarvottorð.
Lán flutt milli jarða
Lánasjóðurinn hefur heimilað að lán séu flutt með
greiðslumarki milli jarða. Skilyrði fyrir því að slíkt sé
heimilað er að öll lán hjá sjóðnum á báðum jörðum séu í
skilum og að fúllnægjandi veð sé í þeirri jörð sem
greiðslumarkið er flutt á. Við slíka flutninga eru vextir á
niðurgreiddum lánum hækkaðir í 6,35% og lánstími
styttur í 12 ár eftir því sem við á.
Skriflegri beiðni um lánaflutning þarf að fylgja
veðbókarvottorð þeirrar jarðar sem Ián flyst á.
Veðbandslausnir
Lánasjóðurinn getur heimilað veðbandslausn á jörðum
eða jarðahlutum. Sjóðurinn setur sem skilyrði fyrir
samþykki sínu að öll lán séu í skilum. Lóðir undir
íbúðarhús jarðar og öll aðal útihús eru að jafhaði ekki
leystar úr veðböndum, en ef um er að ræða lóð undir nýtt
íbúðarhús eða ef á jörðinni eru tvö íbúðarhús, getur
komið til greina að leysa þessar eignir úr veðböndum.
Við veðbandslausn er veðmat jarðarinnar endurmetið og
áhvílandi lán hjá sjóðnum og á veðréttum á undan verða
að rúmast innan 65% af nýju mati jarðarinnar.
Um veðbandslausn verður að sækja skriflega og beiðni
þarf að fylgja veðbókarvottorð og uppdráttur eða
nákvæm lýsing á þeirri eign sem leysa á úr veðböndum.
Yfirlit yfir helstu lánaflokka og lánskjör
Öll lán eru verðtryggð miðað við lánskjaravísitölu.
Lántökukostnaður er samtals 2,5% (stimpilgjald 1,5% og
lántökukostnaður 1,0%)
Gjalddagar eru 4 á ári nema óskað sé eftir færri gjalddögum.
Lánaflokkur Lánað Vextir Veð Láns- Láns- Afb.
vegna tími hlutfall frestur
Jarðakaupalán Jarðakaup 4,00% Ijörð 40 ár 65% Já
Jarðakaupalán Jarðakaup 7,25% í jörð 25 ár 65% Já
Bústofnsk.lán Bústofnskaup 5,00% í jörð 10 ár Sjá lánareglur Nei
Vélakaupalán Skráðar vélar 7,25% I jörð 10 ár 65% Nei
Vélakaupalán Óskráðar vélar 7,25% I jörð 10 ár 65% Nei
Framkvæmdalán Fjós 4,00%-7,25% I jörð 20-30 ár 65% Já
Framkvæmdalán Búnaður í fjós 4,00%-7,25% í jörð 12 ár 65% Nei
Framkvæmdalán Fjárhús 4,00%-7,25% I jörð 20-30 ár 65% Já
Framkvæmdalán Búnaður í fjárhús 4,00%-7,25% Ijörð 12 ár 65% Nei
Framkvæmdalán Svínahús 4,00%-7,25% I jörð 20-30 ár 65% Já
Framkvæmdalán Bún. í svínahús 4,00%-7,25% I jörð 12 ár 65% Nei
Framkvæmdalán Alifuglahús 4,00%-7,25% I jörð 20-30 ár 65% Já
Framkvæmdalán Bún. í alif.hús 4,00%-7,25% I jörð 12 ár 65% Nei
Framkvæmdalán Hesthús 4,00%-7,25% I jörð 20-30 ár 65% Já
Framkvæmdalán Reiðskemmur 7,25% I jörð 25 ár 65% Nei
Framkvæmdalán Gróðurhús 4,00%-7,25% I jörð 20-30 ár 65% Já
Framkvæmdalán Bún. í gróðurhús 4,00%-7,25% I jörð 12 ár 65% Nei
Framkvæmdalán Garðáv.geymslur 4,00%-7,25% I jörð 20-30 ár 65% Já
Framkvæmdalán Bún. í garðáv.g. 4,00%-7,25% I jörð 12 ár 65% Nei
Framkvæmdalán Loödýrahús 4,00%-7,25% Ijörð 20-30 ár 65% Já
Framkvæmdalán Bún. í loðd.hús 4,00%-7,25% I jörð 12 ár 65% Nei
Framkvæmdalán Loðdýrabúr 4,00%-7,25% Ijörð 12 ár 50% Nei
Framkvæmdalán Hlöður 4,00%-7,25% I jörð 25-30 ár 65% Já
Framkvæmdalán Búnaður í hlöður 4,00%-7,25% I jörð 12 ár 50% Nei
Skuldbr.lán Endurfjármögnun 7,40% I jörð 15 ár Sjá lánareglur Nei
Skuldbr.lán Sk.br. höfuðstóls 7,80% I jörð 15 ár Sjá lánareglur Nei
önnur lán Leitarmannahús og fjárréttir 7,25% Sv.sj. 15-20 ár 65% Nei
önnur lán Veiðihús 7,25% Fasteign 15-20 ár 65% Nei
önnur lán Veituframkvæmdir 7,25% Ijörð 20 ár 50% Nei
önnur lán Rafstöðvar 7,25% I jörð 40 ár 50% Nei
Afurðastöðvar Afurðastöðvar 7,25% Fasteign 20 ár 65% Nei
Lánstími framkvæmdalána er almennt 30 ár vegna nýbygginga, 25 ár vegna við- bygginga og 20 ár vegna
endurbóta.
Nánari upplýsingar er að finna í lánareglunum á heimasíðu
Lánasjóðsins www.llb.is. Einnig er hægt að hafa samband við
skrifstofu sjóðsins, Austurvegi 10, Selfossi, sími 480 6000, fax 480
6001, netfang llb@llb.is
A
M