Bændablaðið - 14.01.2003, Qupperneq 23

Bændablaðið - 14.01.2003, Qupperneq 23
Þríðjudagur 14. janúar 2003 BÆNDABLAÐIÐ 23 Þoplinnur Guflnason vinnur að nýrri náflúrulífsmynd Eitt ár í líli folalds A síðasta ári hófust tökur á nýrri heimildar- og náttúrulífsmynd sem áformað er að verði tilbúin til sýninga á þessu ári. Vinnu- heiti myndarinnar er Hesta- mvndin og mun hún taka tæpa klukkustund í sýningu. Fram- Ieiðendur hennar eru Guð- mundur Lýðsson og Jón Proppé sem er handritshöfundur, en leikstjóri er Þorfinnur Guðna- son. Þeir Jón og Þorfinnur hafa unnið talsvert saman á undan- fornum árum og gerðu m.a. fyrir nokkrum árum mynd um íslcnsku hagamúsina sem sýnd var í sjónvarpinu og vakti mikla athygli og hefur nú verið sýnd í um eitthundrað löndum Einnig hefur Þorfinnur gert náttúru- lífsmyndina Húsey og síðast myndina um Lalla Johns sem fékk m.a. tvenn Edduverðlaun á sínum tíma, en báðar fengu þessar myndir menningarverð- laun DV. Það er kunnara en frá þurfi að segja að einstök veðurblíða hefur ríkt að undanförnu og nánast snjólaust um allt land. Skagfirsk hross, rétt eins og aðrar skepnur á landi hér, hafa kunnaö að meta góða veörið. Myndin var tekin fyrir tæpum tveimur vikum. Basndablaðið/Örn Til framleiðenda mjólkur og kindakjöts Um nokkurt skeið hafa ýmsir aðilar beðið um lista með nöfnum búvöruframleiðenda. Frá og með 1. febrúar 2003 áforma Bændasamtök islands að verða við slíkum óskum, enda sé um að ræða aðila sem telja sig þurfa að ná til bænda s.s. vegna markaðsstarfsemi. Á fyrirhuguðum nafnaskrám verða nöfn þeirra sem framleiða mjólk og/eða kindakjöt. Þeir sem ekki vilja vera á slíkum lista geta komið upplýsingum þar að lútandi (nafn og kennitala) til félagssviðs Bændasamtaka íslands, netfang eb@bondi.is BÆNDUR! Eigum kjötsagir og hakkavélar á lager. Alflex og Dalton sauðfjármerki. NORDPOST / SKJALDA POSTVERSLUN Amarberg ehf OPIÐ 09:00 - 17:00 sími 555 - 4631 & 568 - 1515 Dugguvogi 6-104 Reykjavík í nýju myndinni segir ffá fyrsta árinu í lífi folalds í stóði í íslenskri náttúru. Markmið myndarinnar er að sýna hinn stórbrotna íslenska hest og jafnffamt að ffæða áhorf- endur um hegðun og eðli hjarð- dýra. Fylgst er með því hvemig folöldin læra smátt og smátt á stóðið og hver staða þeirra er í virðingarstiganum. Myndin er byggð upp sem dramatísk ffásögn þar sem hestar eru aðalpersónur. Áherslan er á merina Kolku og folaldið hennar. Með augum þeirra er fylgst með lífsbaráttu hestanna jafht í byggð sem óbyggðum sumar og vetur. Þetta fyrsta ár í lífi folaldsins er viðburðaríkt því að móðir þess strýkur með það til fjalla ásamt annarri nýkastaðri hryssu og einum stóðhesti. Hrossin fara víða um fjöll og óbyggðir þetta sumar og lenda í ýmsum hættum. Eftir erfiðan vetur þar sem stóðið sem hryssan er í gengur sjálfala í eyði- byggð kemur aftur vor og ný folöld fæðast. Folaldið er nú orðið veturgamalt og er hærra sett í virðingarstiganum en áður. Þegar sumarið tekur völdin fara öræfin að ffeista á ný og stóðið heldur til fjalla á vit nýrra ævintýra. Þó svo að Kolka og folaldið hennar séu í aðalhlutverkum fær hin stórbrotna og ægifagra íslenska náttúra að njóta sín í myndinni. Hluti myndarinnar er tekinn á hálendinu en að öðru leyti voru upptökur að stærstum hluta á þremur stöðum á landinu þ.e. í Biskupstungum, við Héraðsflóa og í Skagafirði. Áætlað er að tökum ljúki í júlímánuði og myndin verði afhent í nóvember. Að sögn framleiðenda er kostnaður við gerð myndarinnar áætlaður 27 milljónir. Helstu styrktaraðilar eru Kvikmynda- sjóður íslands, Framleiðnisjóður landbúnaðarins og landbúnaðar- ráðuneytið. Þrátt fyrir góðar undirtektir þessara aðila nægir það ekki til að fjármagna gerð myndarinnar en á svokölluðum kynningarmessum í Finnlandi og í Hollandi fyrir skömmu þar sem ffamleiðendur sýndu kafla úr myndinni var henni afar vel tekið og tókst að selja hana fyrirffam til um 12 sjónvarpsstöðva, m.a. á öllum Norðurlöndunum. Þar nutu þeir félagar vel þeirra ffábæru undirtekta sem músamyndin fékk erlendis á sínum tíma. Það er Hilmar Öm Hilmarsson sem semur tónlist við myndina. /ÖÞ. Úisvarsprósentur sveitarfélaga Nú liggja fyrir útsvarspró- sentur sveitarfélaga fyrir tekju- árið 2003. Meðalútsvar hækkar úr 12,79% í 12,80%. Af 105 sveitarfélögum fullnýta 64 sveit- arfélög hámarksheimild (13,03%) til innheimtu útsvars, en fjögur sveitarfélög nýta sér lágmarksheimild (11,24%) til innheimtu. Fábu þér sæti Fyrir flestar dráttavélar kr. 12.960 m/vsk loulsen Skeifan 2 • 108 Reykjavík S. 530 5900 • Fax 530 5911 www.poulsen.is 28. janúar Næsta Bændabiað

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.