Bændablaðið - 01.08.1994, Blaðsíða 4

Bændablaðið - 01.08.1994, Blaðsíða 4
VÖKVASTJÓRNLOKAR fyrir allar gerðir dráttarvéla! LAAfDVELARHF SMIÐJUVEGI66, KÓPAVOGI. SÍMI: 76600 1941 1991 Rafvélaverkstæði og verslun Fljót og góð þjónusta nn?a 101 Reykjavík Eyjasióð 7 Símar: 91-15460 og 91-19477 Myndsendir: 91-26282 CLAAS RÚLLUBINDIVÉLAEIGENDUR Eigum til á lager flestar gerðir af rúlluvölsum í CLAAS rúllubindivélar. Vélsmiðja Jóns Bergssonar hf. Borgartúni 27. Sími 91-22120 — Eftir kl. 17 91- 42781 og 91-44813. Gömul skotvopn óskast Vil kaupa gömul vopn, t.d. eins og það sem myndin sýnir. Allt kemur til greina. Þurfa ekki að vera í lagi. Skráðar eða ekki. Trúnaði heitið. Byssusmiðja Agnars Kársnesbraut 100 — 200 Kópavogur Simi 91-4 32 40 Bændur athugið! Veitum alhliða þjónustu á rafhreyflum, rafölum og öðrum raftækjum til sveita. Eigum ávallt fyrirliggjandi allan búnað til raflagna, m.a. mikið úrval af lömpum til notkunar innan- og utanhúss. Sækjum og sendum til vöruflutningastöðva í Reykjavík. UMBOÐSMENN UM LAND ALLT r Istex: Meiri sala, betri nýting og sauðalitirnir í tísku GÚMMÍVINNUSTOFAN RÉTTARHÁLSI2-SÍMI 91-875588 FAX91 -875585 SKIPHOLTI 35-SlMI 91-31055 Afkoma ullarvinnslunnar virð- ist á uppleið. Hjá ístex liggja endanlegar tölur fyrir fyrri hluta ársins ekki enn fyrir en framkvæmdastjórinn segist hafa á tilfinningunni að þær verði ofan við núllið. Salan hefur farið vaxandi á þessu ári og stefnir í 10-15% aukningu frá því í fyrra. Þá virðast íslensku sauðalitirnir vcra að komast í tísku aftur því ístex vill nú fá til sín alla hreina, mislita ull og fyrirtækið sjálft er farið að greiða sama verð fyrir mis- lita ull og hvíta. Niðurgreiðslur eru hins vegar enn mun hærri á hvíta ull. Að undanfomu hafa staðið yfir viðræður milli þýsku hluthafanna sem eiga 20% í fyrirtækinu og dansks fyrirtækis sem sýnt hefur því áhuga að kaupa hlut Þjóð- veijanna. Ef af kaupunum verður munu Danimir hafa áhuga fyrir að gera viðskiptasamning við ístex til langs tíma. Raunar er samstarf Istex og danska fyrir- tækisins þegar hafið þótt enn hafi ekki verið gengið frá hlutafjár- kaupunum. Að sögn Guðjóns Kristinssonar, framkvæmda- stjóra Istex, framleiðir ístex gólf- teppaband sem danska fyrirtækið tekur síðan til eftirmeðferðar. I eftirmeðferðinni er bandið með- höndlað við mjög hátt hitastig og verður áferðarfallegra auk þess sem snúningur bandsins heldur sér betur og lómyndun verður minni. Guðjón Kristinsson sagði í samtali við Bændablaðið að tækjabúnaður til þessarar með- höndlunar væri allt of dýr til þess að það borgaði sig fyrir ístex að koma sér honum upp, sérstaklega ef tekið væri tillit til þess hve markaðurinn væri ótryggur. „En með þessari viðskiptasamvinnu við Danina skapast okkur bæði markaður fyrir lakari ullina og auk þess atvinnahérheimaviðað forvinna þetta band.” Talsverð söluaukning hefur orðið hjá ístex það sem af er árinu og segir Guðjón Kristinsson að nú stefni í að salan verði á bilinu 10- 15% meiri í ár en í fyrra. „Eg get nefnt sem dæmi að rétt núna var að berast nokkuð stór pöntun frá Ameríku sem við áttum ekki von á vegna þess að við vorum nýbúin að afgreiða þangað allstóra send- ingu. Umboðsmaðurinn þar á von á 40% söluaukningu á Banda- ríkjamarkaði á þessu ári.” Það er handprjónagamið sem mest selst og að sögn Guðjóns fer sala þess vaxandi bæði innan- lands og utan. Um 60% af hand- prjónagaminu er flutt út en á inn- anlandsmarkað fer um 40% og er það mest svokallaður plötulopi. Sá lopi sem fluttur er út er meira unninn. Guðjón Kristinsson segir upp- gjör fyrir fyrri hluta þessa árs ekki liggja fyrir ennþá „en það er mín tilfinning að afkoman fyrstu sex mánuðina muni að minnsta kosti verða ofan við núllið.” Islensku sauðalitirnir virðast vera að komast aftur í tísku. ístex greiðir nú sama verð fyrir „hreina” mislita ull (ekki flekk- ótta) og fyrir hvíta ull. Því fer þó fjarri að bændur fái sama verð fyrir þessa ull því niðurgreiðslur, sem eru langstærsti hluti ullar- verðs til bænda, em miklum mun hærri fyrir hvíta ull. Guðjón Krist- insson segir hins vegar að ístex vilji gjama frá til sín alla hreina mislita ull sem til fellur í landinu. Eins og fram kemur annars staðar í þessu blaði stendur nú til að breyta niðurgreiðslum eitthvað að því er mislitu ullina varðar. Mun nú helst til skoðunar að hækka niðurgreiðslur á mislita ull eitthvað en lækka á móti niður- greiðslur á hvíta þriðja flokks ull. Guðjón Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Istex, segir á hinn bóginn að hlutfall mislitrar ullar af heildarframleiðslunni sé svo lágt að niðurgreiðslur á hvítri ull þyrftu ekki að lækka nema mjög lítið til að unnt væri að unnt væri niðurgreiða mislita ull jafnmikið og hvíta. u JÖFUR HF NÝBÝLÁVÉGI 2, KÚPAV0GI. SÍMI (91)42600

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/910

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.