Bændablaðið - 01.08.1994, Page 5

Bændablaðið - 01.08.1994, Page 5
3. TÖLUBLAÐ - SEPTEMBER 1994. Sala á kindakjöti hér á landi hefur dregist saman um allt að fjórðung á rúmum áratug. Heildartekjur sauðfjárræktarinnar hafa minnkað um hátt í helming miðað við mcðaltal áranna 1985 til 1991. Sjötti hver sauðfjárbóndi licfur hætt búskap á sama tímabili og laun þeirra sem enn starfa að sauðfjárrækt hafa lækkað um það bil 40%. Eftir smávægilega söluaukningu kindakjöts á árinu 1993 stefnir í minni sölu á þessu ári og allar líkur eru á að birgðir af kindakjöti verði hátt í 1600 tonn nú í upphafi sláturtíðar. Engar aðstæður eru því til að auka framleiðsluheimildir sauðfjárafurða og hefur aðalfundur Stéttarsambands bænda þegar lagt til að greiðslumark verðlagsársins 1995 til 1996 verði 7.400 tonn. Halldór Blöndal, Iandbúnaðarráðherra, gerði vanda sauðfjárræktarinnar að umtalsefni í ræðu á aðalafundi Stéttarsambands bænda og kvað framvindu mála ekki í samræmi við þær vonir er menn hafi gert sér þegar búvörusamningurinn var undirritaður og nægi að nefna tekjumarkið eins og það sé skilgreint í búvörulögum í því sambandi. Þá kvað landbúnaðarráðherra tekjulækkun sauðljárbænda ískyggilega. Bændablaðið fékk Ilalldór Blöndal til að ræða þennan erfiða vanda landbúnaðarins nú að loknum aðalfundum bændasamtakanna. Eftir Þóro Ingimarsson FrA MLElfíSl, UK VÖDIN OF STRÖNG Nú hefur komið fram gagnýni á búvörusamninginn varóandi sauðfjárrœktina þar sem aukinn vandi hefur safnast fyrir. Geta stjórnvöld með einhverju móti brugðist við þessum vanda. Þarj' að auka uppkaup framleiðslu- réttar eða er áframhaldandi flatur niðurskurður ef til vill eina leiðin til að mœta minnkandi sölu á kindakjöti og vaxandi birgða- vanda? ,,Eg tel óhjákvæmilegt að brugðist verði við þessum vanda. Mín skoðun er að rýmka verði beingreiðslukerfið og beita meiri sveigjanleika hvað neðri mörk þess varðar. Ég hef beitt mér fyrir því að fá lagaheimildir til þess. Stjórn Stéttarsambands bænda hefur nú fengið heimild aðal- fundar til samninga við landbún- aðarráðuneytið um lækkun á neðri mörkum greiðslumarks einstakra bænda án skerðingar á beingreiðslum. Með þessu er ætlunin að bændum, sem búa á viðkvæmum gróðursvæðum, verði heimilað að draga úr framleiðslu sauðfjárafurða og auka þátttöku í verkefnum við gróðurvemd og landgræðslu án þess að greiðslumark þeirra skerðist. A hinn bóginn fékk stjórn Stéttarsambandsins ekki heimild til að semja um sambæri- lega rýmkun á greiðslumarki hjá öðrum bændum; þar á meðal bændum sem sökum aidurs eða annarra orsaka búa við skerta starfsorku en eru nánast til- neyddir til að halda álram fram- leiðslu sinni. Ég tel aðgerðir af þessu tagi; að leyfa bændum með sérstökum samningum að halda greiðslumarki sínu en draga nokkuð úr framleiðslu, vera mjög jákvæðar og þær mundu hjálpa til við að leysa þann bráða vanda sem nú er framundan hvað kindakjöts- framleiðsluna varðar.” Leysa verður ÆRKJÖTSVANDANN Landbúnaðarráðherra sagði miklar birgðir af kindakjöti innan greiðslumarks hafa safnast fyrir. Þar á meðal verulegt magn af ærkjöti sem erfitt væri að sjá hvemig hægt yrði að losna við. „Þetta getur ekki gengið til ffam- búðar vegna þess hve mikill vaxta- og geymslukostnaður fylgir birgðahaldi af þessu tagi. Ég mun því taka upp viðræður í ríkisstjóminni og við bændasam- tökin um að finna leiðir til að minnka birgðimar með útflutn- ingi. Auðvitað með því fororði að af slíkri birgðasöfiiun verði ekki aftur. Þetta þýðir útvíkkun á bú- vömsamningnum en bæði bænd- ur og ríkisvaldið hafa hag af lausn þessa vanda og því sjálfsagt að framkvæma hana." Yngri bændur stækki en ELDRI FÁI AÐ DRAGA SAMAN „En víkjum aftur að greiðslu- markinu sjálfu. Þegar ég var ungur var talið eðlilegt að yngri bændur stækkuðu bú sín en þeir sem eldri væm drægju saman í samræmi við minnkandi starfs- getu. Ég er þeirrar skoðunar að þetta eigi jafn vel við í dag og fyrir þremur til fjórum áratugum og framleiðslukerfið, sem kemur meðal annars ffam í ákvörðunum um mörk greiðslumarksins, má því ekki vera það ósveigjanlegt að komið sé í veg fyrir slíka þróun. Ég er sannfærður um að fram- leiðslukvöðin í beingreiðslukerf- inu er of ströng. Bændur myndu ná betri tökum á ffamleiðsluvand- anum ef þeir hefðu ffjálsari hend- ur. í dag verða bændur beinlínis að viðhalda ákveðinni fram- leiðslu eigi þeir ekki að tapa ffam- leiðsluréttinum.” Halldór Blöndal, LA NDBÚNA DA RRÁDHERRA, í VlÐTALl VIÐ Bændablaðið UM VANDA SA UÐFJÁRRÆKTARINNAR Bændureru ákveðniríað bjargasér Endurskodun á tveggja ÁRA FRESTI Landbúnaðarráðherra kvað eðlilegt að hver búvörusamn- ingur gildi í allt að sex til átta ár. Nauðsynlegt sé þó að endur- skoða hann á tveggja ára ffesti eða svo til þess að endurmeta þau á- kvæði sem ekki hafi reynst nægi- lega vel og aðlaga samninginn breyttum aðstæðum en samtímis framlengdist samningurinn um tvö ár. Með því móti myndi skap- ast meiri sveigjanleiki er geri bændum auðveldara að skipu- leggja starfsemi sína og að takast á við þær fjárhagsskuldbindingar sem óhjákvæmilega séu samfara búrekstri eins og öðrum atvinnu- rekstri. Afkomumöguleikar niður FYRIR ÖLL VIÐUNANDI MÖRK „Til að svara því beint sem þú lagðir fyrir í upphafi þá tel ég nauðsynlegt að athuga vel mögu- leika á að auka uppkaup á fram- leiðslurétti sauðfjárafurða á nýjan leik auk þess að leita fleiri ráða til að auðvelda bændum búskapar- lok. Hvað áframhaldandi flatan niðurskurð varðar þá getur hann ekki gengið lengur. Ef við hugs- um okkur að einstakir bændur eigi að geta staðið fjárhagslega undir sér þá eru afkomumöguleikar þeirra í mörgum tilvikum komnir niður fyrir öll viðunandi mörk. Ég geri mér einnig grein fyrir að vax- andi fjöldi sauðfjárbænda er farinn að treysta á aðra tekjuöflun en af búunt sínum en þar setja bú- seta og atvinnumöguleikar í nærliggjandi þéttbýlisstöðum hverjum og einum bónda ákveðn- ar skorður. Við núverandi að- stæður er þó ljóst að verði neðri mörk greiðslumarksins ekki rýmkuð, uppkaup ekki aukin á nýjan leik eða annarra leiða leitað til að draga úr kindakjötsfram- leiðslunni í samræmi við sölu- horfur eins og þær líta út í dag getur farið svo að ffekari flatur

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/910

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.