Bændablaðið - 01.08.1994, Qupperneq 14
3. TÖLUBLAÐ - SEPTEMBER 1994.
HEIMAMAÐUR
(FRAMHALD ÚR SÍÐASTA BLAÐI.)
Langferðamaður gengur upp bryggju í
mannmergð fjölþjóðlegrar hafnarborgar innan
um fólk af margvíslegum litum, stærð og gerð.
Þaö er gaman að vera alþjóðlegur, reyndur í
viðskiptum við allra þjóða kvikindi og geta talið
sér trú um að maður sé á heimavelli hvar sem er.
Það var ekki síst gaman á árunum kringum 1968
þegar afl blómanna þóttist nokkurs megnugt í
veröldinni og menn eins og Jón Lennon sungu af
alefli, gegnum tvö hundruð desibela háspennu-
rafkerfi, hitasóttarkenndan áróður sinn um
yfirburði þeirrar aðferðar að meika löw í staðinn
fyrir war og minntu raunar á Hitler í heilögu of-
stæki sínu þótt einkennisbúningurinn væri
ólíkur. Og sefjunin, sem þeir félagar voru í foiystu
fyrir hjá skrílnum, hin sama og minnti kaldlynd-
an einfara í þessari ógnvænlegu, villtu mannkær-
leika-halelújahjörð oft á tíðum á þá dýrategund
sem læmingjar eru nefndir og fjölga sér hraðar en
rottan meðan vel árar og ekkert er til fyrirstöðu,
en rjúka svo af stað í óstöðvanda ofboði, þegar
um fer að þrengjast, ryðjast, troðast og traðka
hver yfir annan, án þess nokkur sjái til þeirra
nokkurt skipulegt vit, nema stefnan er undan-
tekningarlaust í segulátt, yfir hvað sem er, einnig
hræ hinna dauðu, uns allur heili herinn steypist
fyrir björgin blá, líkt og fossamir í Niagra. Mikið
sjónarspil. Líkindin líka auðséð við ýmsa atburði
mannkynssögunnar. Make love. Það gera læm-
ingjamir óspart. Rottan ekki síður.
Þannig er, á streymandi torgum hinna fjöl-
þjóðlegu leiða, - (eða í iðandi kös meðal hljóm-
leikagesta hjá bróður Johni Lennoni eða stríðs-
æsingafiindi hjá Adolf Hitler) - nokkuð „sælt að
vera til,” einn, bamlaus, landlaus og ættlaus, án
fjölskyldu, annarrar en hinnar stóru fjölskyldu
þjóðanna og berast með henni hvert sem hún fer,
- það þarf bara að vera mír í drúsba, eins og þeir
sögðu í Sovét í gamla daga, (friður og vinátta).
Nokkurn veginn þannig vildi líka margur
skilja meininguna í alþjóðahyggju þeirri sem var
eitt af aðalsmerkjum hinnar nýju pólitíkur í
upphafi þessarar aldar, þar sem fremstir fóru
sósíalistar-öreigavinir-menntamenn og þeir sem
kunnu esperantó. Vel að merkja; það vom ekki
upphafsmennimir sem hugsuðu þannig, ekki
höfundamir eða sá verkalýður sem með afli sínu
fylgdi öreigasameiningu allra landa eftir. Nei,
þessi skilningur kom seinna. Hann kom með fólki
sem kom í sporin og ímyndaði sér lífið erfiðis-
laust, enda alið upp við allsnægtir og áhyggju-
ieysi, af kynslóð hins örvæntingarfúlla heljar-
átaks.
Innst inni er manninum á bryggjunni heldur
ekki rótt, þrátt fyrir sólskin og blíðviðri. og ömggt
skipulag feija og jámbrauta á þeim Ijúfú, dönsku
eyjum. Einhversstaðar í þessari þröng em liprir
fmgur að fara ofan í rassvasa trúnaðartraustsins,
manns sem þjófurinn getur verið ömggur um að
aldrei verður á vegi framar. Einhversstaðar, í sól-
skininu, hrifsar einhver þekkilegur ungur maður
veskið eða myndavélina af gamalli konu, fyrir fram-
an augun á fjölda sem kemur málið ekki við, hefúr
öðmm erindum að sinna, er að missa af lest, kærir sig
ekki um að veróa barið eða stungið hvesstu skrúf-
jámi í kviðinn.
Það er ekki svo afleitt að deyja. Slíkt hendir oss
alla. En flestum er óbærileg sú hugsuh að hníga
stunginn, með lungun full af blóði og geta ekki kom-
ið upp orði í kveðjuskyni einu sinni - og mannfjöld-
inn muni haldi áfram að streyma eftir sem áður, - í
sólskininu. Sem hann ömggléga gerir.
Þung vinna, sorg, þjáning, dauði, - við kvíðum því
ekki svo mjög. Það er misskilningur. Við vitum fúll-
vel að undan slíku verður ekki ekist og að hin glamr-
andi krafa um eilífa hamingju, velsæld og hin svo-
nefndu „mannsæmandi laun” sem hinir gull-
tryggðu á jötunni em sýknt og heilagt að heimta, - er
bull. Það sem við kvíðum, aftur á móti, er að verða
ein á hinum erfiðu stundum: Enginn nærri sem telur
sér skylt að deila með okkur áhyggjunni einu sinni,
hvað þá kjömnum.
Það eitt að uppgötva sjálfan sig auralausan (sem
varla getur ella talist nein stórhremming) á svona al-
þjóðlegri bryggju, er sjokk. Þúsundir manna allt um
kring og ekki einn einasti sem hægt væri að víkja sér
að með slíkt hégómlegt vandamál. Og það myndi
engu breyta hversu mörg þúsund bættust í fjöldann.
Það er kannski hægt að betla en það þýðir að skipta
um gerfi. Enginn fer að gefa ffakkaklæddum ungum
manni með ferðatöskur ölmusu. Þá er hitt ráðið, að
bíða í mannfjöldanum, líkt og skipreika maður á
gúmmíbát á opnu hafi, stappa í sig stálinu og segja
við sjálfan sig (mitt í mannhafinu): „Það hlýtur
einhver að eiga leið hjá.”
Og svo gerist það allt í einu!
Innan um streymandi fjölda óviðkomandi
„meðbræðra” sérð þú sigla höfuð og herðar þess
kyns sem þú kannast við. Þaðan er komið orðið „við-
kunnanlegur.” Eitthvað kunnuglegt, þótt þú hafi
aldrei manninn séð. Göngulagið, - líka þess kyns. Þú
ávarpar þennan kunnuglega „ókunnuga” mann, án
formála: „Áttu hundraðkall?” - og það svínvirkar!
Hann hváir ekki, fúrðar sig ekki, - hann skilur mál
þitt fyrirhafnarlaust, hann skilur vandamálið jafn
fyrirhafnarlaust og viðurkennir það, hann leggur
formálalaust frá sér ferðatöskumar, fer inná sig og
nær í fjögurhundruðkallinn sem einhver annar bað
hann fyrir, að borga með gamla skuld af einhverju
svipuðu tagi. Svo heldur hann áffam sína leið, snýr
sér við augnablik: „Umslagið er ekki lokað, adressan
er utan á því, þú setur bara svipaða upphæð í, límir
aftur og hendir í póstinn þegar þú kemur heim.”
Svona einfalt. Þar sem menn þekkja sig heima.
Þegar ég nú kem niður á heimsfrægar bryggjur
Kaupmannahafnar, þar sem heimsflotinn allur hef-
ur viðkomu, undir hundruðum fána (eftir ofan-
skrifað lítið ævintýri í Gedser) þá liggur Gullfoss
þar. Ég man vel að mér þótti þetta tiltölulega litla
skip fara betur í sjó en önnur og fáninn í skutnum
miklu smekklegar settur. Það sem meira var. Skipið
hafði allt öðru vísi áru en nokkurt annað. í kringum
þaó, langt upp á bryggjur, var friður og öryggi. Það
var meir að segja annað veður, - miklu fallegra en
annarsstaðar í nánd. Það var líkt og þegar gnýrinn af
stillingu óskyldra hljóðfæra breytist í samhljóm í
upphafi tónleika. Fólkið sem ætlaði með stilltist um
leið og það nálgaðist hina langþráðu landgöngubrú.
Allt mas óþarft. Allt kunnuglegt óg auðvelt. Þrír
föngulegir hásetar stóðu við rekkverkið, þegjandi og
gerðu ekki neitt nema vera þama og það var nóg. Þeir
réttu engum farþeganna hönd nema sá allra stærsti
kippti tösku gamallar kerlingar úr höndum hennar
innfyrir borðstokkinn. Svo mátti hún halda áfram
að braska með byrði sína sjálf. Hver skyldi sjá um
sig. Hitt var mér jafnvíst að hefði borið að
ófriðarsegg eða fordrukkinn slæpingja, þá hefðu
þessir menn jafn sallarólega tekið hann í
bóndabeygju og háttað í koju og hver sem var gat
öruggur dottið í sjóinn; þeir hefðu kastað sér á
eftir og fiskað hann upp. Mínir menn.
Og allt í einu, þar sem ég stend þama á dekkinu,
með töskumar mínar og kominn heim, - dettur
mér nokkuð hrikalegt í hug: Þetta skip getur ekki
sokkið. Eða öllu heldur: Ég kvíði því ekki neitt
þótt það sökkvi, ég er með mínum mönnum. Ég
verð ekki einn í hafinu.
Ég er ekki að segja þessa sögu, hér og í síðasta
tölublaði, í því skyni einu að rifja upp fallega hluti
um sjálfan mig eða fama félaga ffá genginni tíð.
Nei. Ég geri þetta til að reyna að skýra það að sú
þjóðemiskennd og útlendingaandúð sem nú und-
anfarið hefúr verið að skjóta upp kolli (og það
heldur betur) bæði í Serbíu, Bosníu, Alsír, Eystra-
saltslöndum, já og út um öll Sovétríkin, - hún staf-
ar ekki af fávisku, þröngsýni, hroka eða neins
konar dularfullum trúarbrögðum eða stjómmála-
kreddum á við islam, nasisma eða fasisma.
Orsakimar liggja dýpra, í þeim hlutum sem meira
þarf til en „fordómaleysi” og almennan óskil-
greindan húmanisma - að útrýma. Menn vilja
heldur falla, sem heimamenn, með sínum, heldur
en komast af, sem útlagar, með einhverjum. Og
nú, sem frelsið hefúr aukist í heiminum og fólks-
flutningar milli landa orðnir trúaratriði, þá finnur
fólk enn meir en nokkm sinni fyrir þeirri eðlis-
ávísun sem leitar heim, - eftir sínum réttbomum
samastað í tilverunni,
Og ástæðunnar fyrir andúð manna á fyrirbær-
um eins og ESB er líka að leita í þessu.
Ekki get ég stillt mig um að segja hér sögu í
lokin, enda þótt hún ómerki, í augum einhverra,
þetta blinda traust á „sínum mönnum.”
Gamall maður var í ökuferð með syni sínum,
Guðmundi, ásamt konu hans og einhveijum af
bömum fjölskyldunnar. Guðmundur tók sig til,
gáði ekki að stöðvunarskyldumerkjum, og ók
beint inn á iðandi hraðbraut og lenti í þrem
árekstmm, hveijum eftir annan, bíllinn hoppaði
og skoppaði út um víðan veg. Betur fór en á
horfðist. Enginn slasaðist alvarlega. Þegar gamli
maðurinn var spurðúr eftir á hvort hann heföí
ekki orðið hræddur um sig, að ekki sé nú talað urri
blessuð bömin, meðan á ósköpunum gekk, svar-
aði hann: „Hræddur? Ég? Með hann Guðmund
minn við stýrið? Nei. Ég vissi vel að ég hef alltaf
getað treyst honum hundrað prósent.”
UlVlhVERflSVERNd í VERkl!
Þriggja hólfa, 3000 lítra ROTÞRÓ
Framleiðum rotþrær,
VATNSTANKA, OLÍUSKILJUR OG
BRUNNA í ÖLLUM STÆRÐUM.
Hönnum og smíðum úr trefjaplasti samkvæmt óskum viðskiptavina.
Tökum að okkur viðgerðir á hlutum úr trefjaplasti, t.d. bátum.
Vanir menn - vönduð vinna.
HAGPLAST h/f.
Gagnheiði 38, 800 Selfossi
Sími 98-21760
VEND7- .. þegar gæðin skipta máli
Einstakur tæknibúnaður, verkhæfni og endingargæði.
Hágæðavélar á hagstæðu verði. - Pantið tímanlega.
búvélar_________________
SÍÐUMÚLA 27, REYKJAVÍK
SÍMI 91-687050 - FAX 91-813420