Dagsbrún - 31.05.1957, Page 2

Dagsbrún - 31.05.1957, Page 2
2 DAGSBRTJN SkýrslaDagsbrúnar 1956 Flutt ai iormanni, Hannesi M. Stephensen, á aðaliundi 11. iebrúar 1957 Góðir Dagsbrúnarmenn! Á starfsárinu hafa 235 nýir félagsmenn verið samþykktir í félagið, þar af hafa 55 verið yfirfærðir úr öðrum sambandsfélögum. 25 félagsmenn hafa látizt á árinu, sem við vitum um. Nöfn hinna látnu félaga eru þessi: Árni Vigfússon, Laugavegi 28D Bjarni Ásgrímur Eyjólfsson, Bólstaðahl. 5 Gísh Ó. Thorlacius, Sogavegi 30 Gissur Sigurðsson, Nesvegi 48 Guðjón Guðmundsson, Laugavegi 99 Guðmundur Jóhannesson, Þvervegi 12 Guðmundur Jónsson, Ásvallagötu 5 Guðmundur Ólafsson, Grenemel 35 Hallsteinn Sigurðsson, Langholtsvegi 35 Ingimundur Pétursson, Framnesvegi 67 Jón Hjálmsson, Bröttugötu 6 Jón Ólafsson, Laufásvegi 48 Kristján Hermannsson, Árbæjarbletti 67 Kristleifur Jónsson, Borgarholti v. Engjav. Magúns Ottósson, Hraðfrystihús. í Kópav. Matthías Arnórsson, Eskihlíð 9 Nikulás Illugason, Reykjahlíð 12 Ölafur Guðbrandsson, Brekkustíg 14B Páll Hannesson, EskihHð 14A Pálmi Kristjánsson, Hringbraut 50 Sigurður Árnason, Njálsgötu 5 Sigurður Lýðsson, Snorrabraut 22 Sigurður Pálsson, Hringbraut 50 Sigurður Straumfjörð, Laufásvegi 48 Þorkell Sigurðsson, Þórsgötu 10 Eg bið fundarmenn að heiðra minningu hinna látnu félaga með því að rísa úr sætum. Á starfsárinu hafa verið haldnir 4 félags- fundir, 5 trúnaðaráðsfundir, 14 stjórnar- fundir hafa verið bókaðir og einn fundur í trúnaðarmannaráði. 40 Dagsbrúnarmenn hafa á árinu fengið styrk úr Stóra sjóði að upphæð samtals kr. 18.150.00 og úr Styrktarsjóði Dagsbrúnar- manna hafa 36 félagsmenn fengið styrk á ár- inu er nam samtals kr. 18.600.00. Heildartekjur félagsins á árinu voru kr. 576.876.19 en gjöldin hinsvegar kr. 418.430.84 og nemur því sjóðsaukningin kr. 158.447.35. Skuldlaus eign félagsins í árslok nam kr. 1.036.870.01. Vinnudeilusjóður hefur aukizt um tæp 112. þús. kr. á árinu og er nú kr. 614.697.64. 1 sambandi við reikningana ber að geta þess, að heildar tekjur eru raunverulega hærri en þar segir og er ástæðan sú, að nú eru afskrifaðar í reikningunum útistandandi skuldir eins og þær voru 1 janúar 1956 og nemur sú upphæð röskum 58 þús. kr. Heild- artekjurnar eru því raunverulega hærri sem þeirri upphæð nemur. Af sömu ástæðu eru nú bókfærðar 14 þús. kr. í haUa á félagssjóði, en raunverulega hefur hann aukizt um 44 þús. kr. á árinu, ef ekki er tekið tillit til afskriftanna. Nánari skýringar er að finna í reikningum félagsins á þessu atriði. Hið liðna starfsár er ekki varðað neinum stórviðburðum í félagslífinu og verður í sög- unni að teljast til hinna rólegri ára. Næsta starfsár, var sjálfkjörin í febrúar í fyrra þar á mindarlegan hátt 50 ára afmælis félagsins og var frá því sagt í síðustu ársskýrslu. Stjórnin, sem stýrt hefur félaginu þetta starfsár, var sjálfkjörin í febrúar í fyrra þar sem ekki komu fram aðrar tillögur. Kosn- ingabarátta setti því ekki svip sinn á félags- lífið að þessu sinni, en ekki ber að líta á það sem merki deyfðar eða áhugaleysis, heldur miklu fremur sýnir það einhug og styrkleika Dagsbrúnarmanna. Hitt er svo annað mál, að hvorki stjórnin eða aðrir fé- lagsmenn mega láta slíka velgengni stíga sér til höfuðs og verða andvaralausir um málefni félagsins og stéttarinnar, en á því gæti verið nokkur hætta. Samningar við Áburðar- verksmiðjuna Enda þótt hinir stærri kjarasamningar fé- lagsins væru ekki hreyfðir á starfsárinu hef- ur þó ýmislegt verið unnið að samningamál- um fyrir nokkra starfshópa innan félagsins. Ber þá fyrst að nefna, að 30. júní í sumar voru undirritaðir nýir samningar við Áburð- arverksmiðjuna um vaktavinnu við fram- leiðslustörf verksmiðjunnar, en samningar þessir áttu sér æði langan aðdraganda. Eins og menn rekur minni til voru í febrúar 1955 gerðir samningar við Áburðarverksmiðjuna eftir að fyrirtækið hafði í rösklega eitt ái með öllum ráðum reynt að koma sér undan því að semja við Dagsbrún og voru þau við- skipti allmjög á annan veg en Dagsbrún á almennt að venjast af atvinnurekendum. Með samningunum í febrúar 1955 má segja að þessari styrjöld hafi lokið og síðan hafi sambúðin verið með eðlilegum hætti og góð. Samningurinn frá 17. febrúar 1955 við Aburðarverksmiðjuna fól i sér að bráða- birgðasamkomulagið, sem gert var 16. febrú- ar árið áður, var staðfest sem samningur með nokkrum viðbótum, en á árinu 1954 hafði Félagsdómur fellt úrskurð þess efnis, að það jafngilti ekki samningi. Enn var þó eftir að koma varanlegu skipulagi á þessi mál, að gera fullkominn samning um kaup og kjör vaktavinnumannanna. í þeim tilgangi óskaði Dagsbrún að nýju eftir samningavið- ræðum í nóvember 1955. Öformlegar við- ræður hófust þá við framkvæmdastjóra verksmiðjunnar og héldu síðan áfram eftir áramótin. Viðræður þessar fóru eingöngu fram milh framkvæmdastjóra verksmiðjunn- ar annarsvegar og ritara Dagsbrúnar og trún- aðarmanns verkamannanna hinsvegar. Stjórnir samningsaðila fjöUuðu oft um máUð hvor í sínu lagi á hinum ýmsu stigum þess. Viðræðum þessum lauk, eins og fyrr segir, með því að nýir samningar voru undirritaðir 30. júní s.l. en gilda þó frá 1. júní. Nokkrir fundir höfðu verið haldnir með starfsmönn- um verksmiðjunnar meðan á samningunum stóð og að lokum voru samningarnir ræddir á fundum, sem alhr verkamennirnir voru boðaðir á og voru þeir samþykktri þar nær einróma. Nýi samningurinn var gerður án þess að þeim eldri væri sagt upp, en hann var uppsegjanlegur hvenær sem var með eins mánaðar fyrirvara. Helztu atriði — Fyrsta stóriðjuíyrirtækið Helztu atriði nýja samningsins eru þessi: Vinnutími er 48 klst. á viku og fer vinnan fram á þrískiptum vöktum aUan sólarhring- inn aHa daga og er hver vakt 8 klst. Mánað- arkaupið er kr. 3400.00 í grunn og fyrir aUa yfirvinnu, þ. e. aUa vinnu umfram 8 klst. vaktina, er greitt með kr. 25.00 á klst. 1 grunn. Vaktavinnumenn eiga frí einn dag í hverri viku. Auk 18 vinnudaga orlofs fá þeir frí í 12 vinnudaga á ári, eða einn dag fyrir hvern unninn mánuð, vegna vinnu sinnar á helgi- dögum. Þessir dagar eru veittir með sam- feUdu fríi á tímabiHnu frá 16. september til 31. maí. I venjulegum veikindatilfellum halda vaktavinnumenn óskertu kaupi í 14 daga, en sé um slys eða atvinnusjúkdóm að ræða, halda þeir óskertu kaupi 1 aUt að tvo mánuði. í samningnum sjálfum og skjölum, sem honum fylgja eru skír ákvæði um til- högun vaktavinnunnar, frídaga, öryggisregl- ur á vinnustað og margt annað. .Samningur- inn er yfirleitt greinilegur og afdráttarlaus í öllum atrðium, enda ekki orðið neinn á- greiningur um framkvæmd hans. JafnhUða samninngum um vaktaskipta- vinnuna við Aburðarverksmiðjuna, var einn- ig gerður mánaðarkaupssamningur fyrir verkamenn, sem vinna þar önnur störf og ekki í vaktavinnu. Segja má að Áburðarverksmiðjan sé fyrsta stóriðjufyrirtækið hér á landi og var því áríðandi að vel tækist til um samninga, því ætla má að þeir verði fyrirmynd að samning- um við önnur slík fyrirtæki, sem væntan- lega eiga eftir að rísa hér upp áður en langt Hður. Það hefur sýnt sig við starfsrækslu Aburðarverksmiðjunnar, að íslendingar eru fljótir að ná valdi yfir og tileinka sér hina margbrotnu tækni nútíma verksmiðjuiðnaðar — og eru verkamennirnir þar engir eftirbát- ar. Á fyrstu starfsárum hafa afköst verk- smiðjunnar farið verulega fram úr áætlun- um. En verkamenn Áburðarverksmiðjunnar hafa ekki aðeins reynzt góðir starfsmenn síns fyrirtækis, heldur einnig góðir félagsmenn síns stéttarfélags, enda á þetta tvennt æf- inlega að fara saman, annað verður naum- ast uppfyllt án hins. Það ber sérstaklega að þakka hve vel verkamenn Áburðarverk- smiðjunnar hafa staðið saman um hagsmuni sína í hinum æði misjöfnu viðskiptum við fyrirtækið á undanförnum árum. Án þess- arar samstöðu hefði árangurinn orðið annar og lakari. Samskipti Dagsbrúnar og Áburðarverk- smðijunnar eru nú með eðlilegum hætti og góð, eins og fyrr var sagt. Hið liðna heyrir sögunni til. Óhjákvæmilega eru alhr reynsl- unni ríkari, sem þar hafa nærri komið, en Framhald á 5. síðu.

x

Dagsbrún

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/936

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.