Dagsbrún - 31.05.1957, Blaðsíða 5
DAGSBRTJN
5
Skýrsla Dagsbrúnar
Framhald af 2. síðu.
liðnar væringar erfa ekki verkamenn og
samtök þeirra við andstæðinga sína þegar
annað og betra er boðið.
Vaktavinna eykst —
Glersteypan enn
Vaktavinna af ýmsu tagi hefur aukizt tölu-
vert á síðari árum og hefur félagið því orðið
að hafa margskonar afskipti af samning-
um þess vegna. Á síðasta starfsári voru ýmist
gerðir samningar af hálfu Dagsbrúnar um
vaktavinnu eða þeir ræddir við eftirfarandi
aðila: Olíufélagið h.f., verktaka, sem steypa
upp hús með skriðmótum, flugfélögin, h.f.
Shell og Mjólkursamsöluna. Slíkar samn-
ingagerðir eru oft ærið tafsamar þó ekki séu
þær gerðar fyrir stóra hópa.
Þá fékkst á árinu lagfæring á samningi
símalagningamanna vegna atriðis, sem deilt
hafði verið um.
í síðustu ársskýrslu voru ítarlega rakin við-
skipti Dagsbrúnar við Glersteypuna h.f. Mál
stóðu þá þannig, að Framkvæmdabankinn
hafði tekið við rekstri verksmiðjunnar og
eftir það fengu verkamenn vinnulaun sín
greidd reglulega. En fyrirtækið hefur í raun-
inni verið að vezlast upp allt árið og nú um
áramótin var verksmiðjunni lokað, verka-
mönnuum sagt upp og lýst yfir gjaldþroti
Glersteyunnar h.f. — Ágreiningur hefur
orðið varðandi lokauppgjör til verkamanna
og ekki útséð um nema það kosti ný mála-
ferli. Enn eiga verkamenn ógreiddar tug-
þúsundir króna í vinnulaunum og orlofsfé,
að mestu frá árinu 1955, hjá Glersteypunni
h.f. og vandséð hvort það næst.
Þess var getið í skýrslunni í fyrra hve ó-
trúlega illa verkalýðsfélögin standa að vígi
til að koma í veg fyrir samningsbrot varð-
andi greiðslu vinnulauna, vegna þess að
Vinnulöggjöfin heimilar ekki vinnustöðvanir
í slíkum tilfellum, nema að undangengnum
dómi. Reynsla okkar af Glersteypunni og
reynsla annarra verkalýðsfélaga, einkum úti
á landi, gerir það að brýnni nauðsyn, að
Vinnulöggjöfinni verði breytt þannig, að
þegar samningar eru brotnir varðandi
greiðslu vinnulauna sé verkalýðsfélögunum
tryggður verkfallsréttur, án undangenginna
dóma.
Atvinnuleysistryggingar o.fl.
í fyrra vetur samþykkti Alþingi lög um
atvinnuleysistryggingar og staðfesti þar með
hinn mikilvæga sigur, sem vannst í verk-
fallinu mikla 1955. Tryggingamar áttu að
taka til starfa 1. október s.l., en atvinnuá-
standið hefur, sem betur fer, verið þannig,
að ekki hefur þurft að greiða úr þeim ennþá.
Samkvæmt lögunum um atvinnuleysis-
tryggingar eru úthlutunamefndir verkalýðs-
félaganna skipaðar 5 mönnum, eru 3 kosnir
af viðkomandi verkalýðsfélagi og 2 af at-
vinnurekendum, annar af Vinnuveitenda-
sambandi íslands og hinn af Vinnumálasam-
bandi samvinnufélaganna. Nefndin fyrir
Dagsbrún er þannig skipuð: Eðvarð Sigurðs-
son, sem er formaður nefndarinnar, Vilhjálm-
ur Þorsteinsson og Guðmimdur J. Guð-
mundsson, frá Vinnuveitendasambandinu er
starfsmaður þess Einar Ámason lögfræðing-
ur og er hann ritari nefndarinnar, frá Vinnu-
málasambandinu er Baldvin Þ. Kristjánsson,
framkvæmdastjóri. Nefndin hefur fyrir
nokkru samið og samþykkt reglugerð um
úthlutun atvinnuleysisbóta en annað mark-
vert er ekki ennþá af störfum hennar að
segja. Reglugerðin þarf að fá staðfestingu fé-
lagsmálaráðherra og þegar það hefur verið
gert verður hún birt félagsmönnum.
Eins og kunnugt er úthlutaði bæjarstjórn-
in Dagsbrún lóð í fyrra á 50 ára afmælinu.
Húsnefnd félagsins hefur ásamt stjórninni
unnið að þessum málum, en það er helzt af
þeim að frétta, að skipulag lóðarinnar er enn
ekki endanlega ákveðið af bæjarins hálfu. í
sumar var Sigvaldi Thordarsen arkitekt ráð-
inn af félaginu til að fylgjast með skipulagn-
ingunni og gera frumdrætti að væntanlegu
húsi og hefur hann þegar unnið allmikið að
þeim málum.
í sambandi við afmælið í fyrra var sam-
þykkt að stofna húsbyggingasjóð og er hann
röskar 20 þúsund krónur, en það eru afmælis-
gjafir frá nokkrum verkalýðsfélögum og
framlög einstakra Dagsbrúnarmanna. Enn
hafa ekki verið teknar ákvarðanir um hvern-
ig húsbyggingarsjóðnum verður aflað tekna,
en öllum má ljóst vera, að til að koma þessu
stórmáh Dagsbrúnarmanna í framkvæmd
duga ekki samskotin ein.
Enn er bókasafn Héðins Valdimarssonar,
sem Dagsbrún var gefið í fyrra, niðurpakkað
í geymslu. Sótt hefur verið um styrk til Al-
þingis til að koma safninu upp og standa
nokkrar vonir til að hann fáist. Fari svo verð-
ur undinn bráður bugur að því að setja safn-
ið upp og gera það öllum aðgengilegt í sam-
bandi við lesstofu.
Góð gjöf — Gott boð
Dagsbrún barst í haust góð gjöf frá Al-
þýðuhúsi Reykjavíkur h.f., eru það 10 þúsund
krónur gefnar í tilefni þess að 20 ár voru
liðin frá vígslu Alþýðuhússins við Hverfis-
götu og til minningar um Odd Ólafsson fram-
kvæmdastjóra þess, sem lézt á árinu. í bréfi
gefandans segir að gjöfina eigi að nota til
menntunarauka starfsmanna félagsins með
utanferðum eða Öðru að dómi félagsstjórn-
arinnar.
í sumar barst Dagsbrún boð frá sambandi
byggingaverkamanna í Moskvu um að senda
6 manna nefnd til Sovétríkjanna. Þessu
ágæta boði var tekið með þökkum og fór
nefndin utan í ágústmánuði og dvaldi um
þriggja vikna skeið í landinu og ferðaðist
víða um. í nefndinni voru Hannes M. Steph-
ensen, er var formaður hennar, Arinbjörn
Guðbjartsson, Emil Ásmundsson, Marinó
Erlendsson, Sigurður Gíslason og Sveinbjörn
Sveinbjörnsson. Þetta er 1 fyrsta sinn, sem
Dagsbrún berst slíkt boð frá erlendum verka-
lýðssamtökum, en æskilekt væri að meira
væri að því gert að skipuleggja utanferðir
verkamanna héðan og að bjóða hingað er-
lendum stéttarbræðrum til gagnkvæmra
kynna.
Frumkvæði ASÍ til að koma á
vinstra samstarfi
Hér að framan hafa verið raktir nokkrir
þættir varðandi starfsemi félagsins og ann-
að á starfsárinu, en ekki væri öll sagan sögð
ef ekki væri minnst á þá atburði, er hæst hafa
borið á árinu. Er hér átt við frumkvæði Al-
þýðusambandsins til að koma á vinstra sam-
starfi í kosningunum í sumar, úrsht kosn-
inganna, ríkisstjórnarskiptin og viðskipti
verkalýðshreyfingarinnar við ríkisstjórnina
um úræði í efnahagsmálunum. AUir þessir
atburðir eru mönnum í svo fersku minni að
óþarfi er að rekja þá nákvæmlega, en minna
verður þó á nokkur aðalatriði.
Eftir verkfallið mikla 1955 dundu yfir
óhóflegar verðhækkanir, sem færðu kaup-
sýslustéttinni og öðrum miUihðum mikinn
gróða. Fyrverandi ríkisstjórn aðhafðist ekk-
ert til að hindra þessar verðhækkanir, heldur
þvert á móti ýtti hún undir þær og kenndi
verkfalhnu um, þótt í mörgum tilfellum væri
þar ekkert samband á milh. Um áramótin í
fyrra var svo skellt á miklum tolla- og skatta-
Hátíðafundur Dagsbrúnar í Austurbæjarbíói 26. janú-
ar 1956 í tilefni 50 ára afmælis félagsins.