Dagsbrún - 31.05.1957, Blaðsíða 4

Dagsbrún - 31.05.1957, Blaðsíða 4
4 DAGSBRUN Skýrsla lögilds endurskoöanda Ég hefi endurskoðað bækur og skjöl fé- lagsins fyrir árið 1956 og samið framan- skráða rekstrar- og efnahagsreikninga. Vil ég leyfa mér að taka fram: Laun kr. 151.704.00 sundurliðist þannig: Hannes M. Stephensen .... JCr. 50.568.00 Eðvarð Sigurðsson ....... — 50.568.00 Guðmundur J. Guðmundsson — 50.568.00 Kr. 151.704.00 Skattar, eftirstöðvar frá 1955 kr. 3.063.50, sundurliðast þannig: Alþýðusamband íslands........ Kr. 2.215.50 Fulltrúaráð verkalýðsfél. í Rvík — 424.00 Styrktarsjóður verkamanna og sjómanna í Reykjavík .. — 424.00 Kr. 3.063.50 Félagsgjöld: í sambandi við þexman tekjulið skal tekið fram, að stjórn félagsins hefir samþykkt að færa hvorki til tekna né eignar í reikn- ingunum ógreidd félagsgjöld. Samkvæmt þessu eru útistandandi félagsgjöld 31/12 1956 færð til gjalda og hins vegar útistandandi félagsgjöld í árslok 1956 ekki færð til tekna. Vísast hér til samþykktar á stjórnarfundi 24 janúar 1957. Inntökugjöld kr. 3.775.00: Tekjur þessar eru samkvæmt innborgana- bók, en ekki sannreyndar að öðru leyti. Vextir: Eins og undanfarin ár hefir ekki verið tek- ið tillit til vaxta af innlánsskirteinum og viðskiptabókum, sem ekki voru fallnir í gjalddaga í árslok. Tap kr. 14.963.19: Til skýringar á því, að reikningarnir sýna tap á Félagssjóði kr. 14.963.19, skal bent á hinn sérstaka kostnað vegna 50 ára afmælis félagsins kr. 47.726.79, afmælisblaðið kr. 22.- 285.95, eftirstöðvar af sköttum frá 1955 kr. 3.063.50 og samþykktar stjórnarinnar að fella niður úr reikningunum ógreidd félagsgjöld í árslok, en þau hefðu samkvæmt fyrri venju numið kr. 61.650.00. Hefðu reikningarnir verið færðir á sama hátt og undanfarin ár, hefði orðið hagnaður á Félagssjóði kr. 46.686.81, þrátt fyrir hinn óvenjulega kostnað á árinu. Sjóður, bankainnstæður og verðbréfaeign: Hinn 27. janúar 1957 framkvæmdi ég sjóðs- og bankaeftirlit hjá félaginu og yfirfór verð- bréfaeign. Reyndust sjóðsbirgðir fyrir hendi í vörzlu formanns, Hannesar M. Stephensens, ásamt sparisjóðsbók nr. 4 við Landsbanka Islands. Aðrar bankabækur, innlánsskrírteini og verðbréf voru í geymsluhólfi nr. 24 í Út- vegsbanka íslands h.f., og eru innstæður þeirra í samræmi við efnahagsreikninginn. Stofnskrá Verkamannafélags Dagsbrúnar var sömuleiðis geymd í hólfinu. Lyklarnir að geymsluhólfinu voru í vörzlu gjaldkera Vilhjálms Þorsteinssonar og fjár- málaritara Guðmundar .J. Guðmundssonar. Bókasafn: Hinn 26. janúar 1956 gaf frú Guðrún Páls- dóttir félaginu bókasafn látins eiginmanns síns, Héðins Valdimarssonar, fyrrum for- manns félagsins. Er bókasafnið gefið til minningar um Héðinn í tilefni af 50 ára af- mæh félagsins. Bókasafnið var afhent án nokkurra skilyrða frá hendi gefandans, en það er ósk hans, „að safnið verði aldrei selt og að stjórnendur Dagsbrúnar gæti þess vel og hafi það í lesstofu en láni það ekki út.“ Starfsmannasjóður, gjöf kr. 10.000.00: Gjöf þessi er frá Alþýðuhúsi Reykjavíkur h.f. „í tilefni af því að tuttugu ár eru liðin síðan vígsla Alþýðuhússins við Hverfisgötu og Ingólfsstræti fór fram og til minningar um Odd Ólafsson formann og framkvæmda- stjóra Alþýðuhúss Reykjavíkur“, er lézt á árinu. í bréfi gefandans segir, að tilgangur- inn með gjöfinni sé „að stuðla að menning- arauka starfsmanna félagsins með utanferð- um eða öðru að dómi félagsstjórnar". Tekjur: Tekjur félagsins í heild hafa verið á árinu 1956, sem hér segir: Félagsgjöld aðalmeðlima .. Kr. 336.033.75 Árgjöld aukameðlima......... — 168.760.00 Inntökugjöld ................. — 3.775.00 Vextir og arður............... — 37.109.44 Gjafir .................... — 31.200.00 Kr. 576.878.19 Gjöld: Gjöldin hafa numið .. Kr. 399.830.84 Styrkveitingar úr Styrktarsj. Dabsbr.m. — 18.600.00 Kr. 418.430.84 Nettó ágóði félagsins á árinu 1956 er því ............. — 158.447.35 sem skiptist þannig á sjóðina: Vinnudeilusjóður ........... Kr. 111.709.93 Styrktarsj. Dagsbrúnarm. .. — 28.334.07 Landnám Dagsbrúnar ......... — 2.941.01 Byggingarsjóður ........... — 20.425.53 Starfsmannasjóður ........ — 10.000.00 Kr. 173.410.54 4- Tap á félagssjóði ......... — 14.963.19 Kr. 158.447.35 Skuldlaus eign félagsins í árslok 1956 er ......... Kr. 1.036.870.01 og skiptist þannig niður á sjóðina: Félagssjóður ............... Kr. 184.622.11 Vinnudeilusjóður .......... — 614.697.64 Styrktarsj. Dagsbrúnarm. — 126.830.98 Landnám Ðagsbrúnar .... — 80.293.75 Byggingarsjóður ............. — 20.425.53 Starfsmannasjóður ........... — 10.000.00 Kr. 1.036.870.01 Reykjavík, 4. febrúar 1957. Sigurður Stefánsson löggiltur endurskoðandi. Guðm. Magnússon. Alþingi veitii 100 þús. ki. til bókasafns Dagsbiúnai Eins og skýrt er frá í skýrslu stjórnarinnar sótti Dagsbrún um styrk til Alþingis til að koma upp bókasafni Héðins Valdimarssonar, sem félaginu var gefið á 50 ára afmælinu í fyrra. Alþingi varð við þessari beiðni og sam- þykkti 100 þús. kr. fjárveitingu á fjárlögum í þessu skyni. Dagsbrúnarmenn eru þakklát- ir fyrir þá aðstoð, sem þeim er veitt með þessu til að koma upp hinu ágæta bókasafni. Stjórn félagsins hefur gert ráðstafanir til að fá gott húsnæði fyrir safnið á hentugum stað og standa vonir til að það takist og ætti þá ekki að líða allt of langur tími þar til hægt verður að opna það til afnota. EIN MILLJÓN KRÓNA TIL ORLOFSHEIMILIS Ríkisstjórnin gaf 1 vetur það fyrirheit að veitt skyldi á fjárlögum ein milljón króna til orlofsheimilis verkalýgssamtakanna. Við afgreiðslu fjárlaganna á Alþingi var þetta samþykkt og mun nú miðstjórn Alþýðusam- bandsins vinna að því að hrynda máli þessu í framkvæmd. DAGSBRÚN Útgefandi: Verkamannafélagið Dagsbrún Utanáskrift: Verkamannafélagið Dagsbrún, Reykjavik — Pósthólf 792. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. v------------------------------- -f- Styrkveitingar . — 18.600.00 — 126.830.98 Landnám Dagsbrúnar 1/1 1956 . . Kr. 77.352.74 Gjöf . 1.000.00 Vextir • 1.941.01 — 80.293.75 Byggingarsjóður: Gjafir . Kr. 20.200.00 Vextir • 508.08 Kr. 20.708.08 -r- Prentun á kvittanaheftum — 282.55 — 20.425.53 S tarf smannas jóffur: Gjöf......................................... — 10.000.00 Kr. 1.039.370.01 Viðvíkjandi framanskráðum rekstrar- og efnahagsreikningi vís- ast til meðfylgjandi endurskoðunarskýrslu. Reykjavík, 4. febrúar 1957. Sig. Stefánsson. löggiltur endurskoðandi. Guðm. Magnússon.

x

Dagsbrún

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/936

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.