Vér mótmælum allir - 01.03.1946, Page 1

Vér mótmælum allir - 01.03.1946, Page 1
1. tbl. - Marz 1946 • Útgefendur: Háskdlastúdentar LAItDSBÓtvASAFN Jy's L65901 í ÍSLÁNUS YÉR MÓTMÆLUM ALLIR! Það er auðvitað, að einmitt vantraust á þjóð vorri, kunnáttu hennar, atorku, góð um vilja, samheldni og kjarki, er aðal- ástceða þeirra, sem ekki þora að fylgja jram rétti landsins. Jón Sigurðsson. Frá Þingvðllum. ÍSLENZKA ÞJÓÐ! MANST timana tvenna. Þú manst fornöldina, geymir minninguna urn skáldin og kaþþ- ana. En hæst i huga þér gnæfir Einar Þverœingur, sem hélt minnisstæðustu ræðu í sögu þinni. Þegar íslenzki sendimaðurinn kom með boðin um fríðindin, gullið, frá erlenda valdinu, runnu tvœr grimur á höfðingja. Þá tók hann af skarið. Hann benti á hættuna, kvað upp um af- svarið, réði þér heilt. Á Sturlungaöldinni áttir þú engan Einar Þveræing. Þá gekkst þú sjálfviljug undir erlent vald, sem virtist i upþhafi auðbært. Þessi svefnganga kostaði þig nœrfellt sjö alda baráttu við kulda og myrkur, auðnuleysi og verðgang, erlenda kúgara og alls máttuga einokunarkaupmenn. Aldrei varstu dýpra sokkin en þegar erlenda valdið hneppti þig hörðustu járnfjötrunum. Frelsi þitt nú er ávöxtur ötullar, fórnfúsrar baráttu beztu sona þinna. Þú manst reynslu niðurlægingarinnar. Með þá reynslu að baki, trúna á sjálfa big og trúna á getu þina lil að ráða sjálf málum þínum i hjarta þinu, treystir þú heit þin i lýðveldiskosning- unum fyrir tveim árum. Þú fékkst viðurkenningu stórvelda og smáþjóða á tilverurétti þinum. Nú, aðeins tveim árum seinna, risa upp menn — brot af þinu bergi — og ætla að telja úr þér kjarkinn, — brýna þig á smæð þinni og vesöld, — til þess að þú semjir á þig enn sterkari hlekki. Einar Þveræingur svaraði áður fyrir munn þjóðarinnar. Þá fór timi frelsis i hönd. Og það er trú vor og vissa, að græðikvistir þeir, sem uxu upp af starfi Jóns Sigurðssonar, muni nú ekki kulna við hjáróma raddir þeirra manna, sem meta frelsi fósturjarðar sinnar til vafasamra forgengilegra fjármuna.

x

Vér mótmælum allir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vér mótmælum allir
https://timarit.is/publication/937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.