blaðið - 25.07.2005, Blaðsíða 2
2 I ÍNNLENDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 2005 blaðiö
Olíumótmæli
í skot-
gröfunum
Atvinnubflstjórar hafa ákveðið
að mótmæla breytingu á verði
díselolíu, sem tvöfaldaðist um
síðustu mánaðamót. Þeir hafa
lýst því yfir að þeir hyggist
loka aðalumferðaræðum út
úr Reykjavík á fimmtudag
eða föstudag þegar umferð
er hvað þyngst. Þó gefa þeir
ekkert upp um nákvæma
tímasetningu aðgerðanna
eða hvernig þær munu fara
fram. Lögreglan í Reykjavík
segist vita af málinu og hyggst
beita varnaraðgerðum gegn
mótmælunum en gefur ekkert
út um hverjar þær verða. Því
má segja að málið sé komið
í skotgrafirnar þar sem báðir
aðilar skipuleggja næsta skref.
Tryggja þarf
umferð neyðarbíla
Lögreglan tekur fram að
tryggja þurfa óhefta umferð
fyrir sjúkralið, slökkviliðs
og lögreglu. Fyrirhugaðar
aðgerðir bílstjóranna brjóti á
bága við umferðalög en þar
er tilgreint að með öllu sé
óheimilt sé að tefja umferð eða
skapa vegfarendum óþægindi
eða hættu að óþarfa. Þó hafa
bílstjórar áður gripið til þessara
ráða en þeir hægðu mjög
svo á umferð í Artúnsbrekku
fyrir nokkrum misserum svo
röðin náði að gatnamótum
Miklubrautar, Snorrabrautar,
Bústaðavegs og Hringbrautar.
Fjör á Frönskum dögum
Ibúafjöldi á Fáskrúðsfirði tvöfaldað-
ist á Frönskum dögum nú um helg-
ina þar sem fólk á öllum aldri kom
saman til að skemmta sér. Skipulögð
dagskrá hófst á fimmtudagskvöld
og lauk á sunnudag. Skipuleggjend-
ur hátíðarinnar eru hæstánægðir
með góða aðsókn og segja hátíðina
hafa farið vel fram i alla staði þrátt
fyrir mikinn fólksfjölda. Líkt og áð-
ur skapaðist mikil stemmning í bæn-
um þar sem allir lögðust á eitt við að
gera hátíðina ógleymanlega þeim
sem hennar nutu. ■
Kæstur hákarl
Mesta óæti
í heimi
Ofurkokkurinn Anthony Bourdain
telur íslenskan kæstan hákarl mesta
óæti sem finna má í byggðu bóli. Sá
dómur er upp kveðinn að vandlega
yfirveguðu máli því Bourdain hefur
ferðast vítt og breitt um heiminn
við gerð nýrrar þáttaraðar, No
Reservations, þar sem sameinað-
ur er ferðaáhugi og matarást.
„Kæsti hákarlinn er það lang-
versta sem ég hef nokkru sinni
látið inn fyrir varirnar“, segir
Bourdain. „Ef gæluskjaldbakan
þín dræpist og þú myndir bíða í 30
ár með að éta hana þá myndirðu
finna um það bil sömu áferð.“
Bourdain er þó síður en svo
gagnrýninn á íslenska matar-
gerðarlist. „Maturinn á Islandi er
hreint afbragð en þeir eiga það til
að velta sér upp úr matnum sem
þeir þurftu að éta þegar það var
ekkert í matinn", segir Bourdain og
telur að þorrablótin séu eins konar
manndómsvígsla fyrir Islendinga.
Hér á landi hélt Bourdain til á
veitingastaðnum Vox. Bourdain
hefur þegar lokið tökum í París,
Nýja Sjálandi, Malasíu, Víetnam,
Borneó og Bandaríkjunum auk
Islands. Þáttaröðin hefur göngu
sína á Travel Channel í dag. ■
£
Læknar fást ekki til
starfa á taugadeild
Skortur á taugalœknum stendur heilbrigðisþjónustu fyrir þrifum, en mikið starfsálag á
taugadeild er aðalástœða þess að hceftfólk hikar við að sœkja um laus störf. Ástandið er
erfitt að öllujöfnu en á sumrin getur það orðið óþolandi.
loftkœhng
Veró fré 49.900 án vsíL
ÍS-hÚSÍð 566 6000
Heilbrigðiskerfið á í erfiðleikum
með að sinna þeim sem þurfa á hjálp
taugalækna að halda. „Við erum að
glíma við mikinn skort á læknum
og sjáum ekki með nokkru móti
fyrir endann á því. Það slæma er að
fólk upplifi álagið svo mikið að það
er tregt til þess að ráða sig hérna.
Við höfum auglýst en fengið fáa
umsækjendur, jafnvel fólk sem ætti
samkvæmt öllu að sækja um treystir
sér ekki til þess þar sem það telur
vinnuálagið of mikið“, segir Elías
Ólafsson, yfirlæknir á taugadeild
Landspítala-Háskólasjúkrahúss.
Stór sjúklingahópur
„Það er engin spurning um að
þessu þarf að kippa í liðinn', segir
Elías. „Hér er margt fólk sem þyrfti
að eiga mildu greiðari aðgang að
taugalæknum. Þörfin er mikil, það
er margt fólk sem fær slag, margt
fólk með parkinssonsjúkdóminn,
MS og flogaveiki. Svo ekki sé minnst
á fólkið með langvarandi höfuðverki
og migreni og slíkt. Þetta eru
stórir sjúklingahópar sem vilja og
þurfa að geta leitað til taugalækna."
99....................
Fólk upplifir álagið svo
mikið að það er tregt
til þess að ráða sig
SigurbjörgÁrmannsdóttir.formaður
MS-félagsins, er sama sinnis og segir
að það geti reynst læknum erfitt að
koma sjúklingum sinum í meðferð.
Þá höfðu þeir sjúklingar sem Blaðið
talaði við sömu sögu að segja, að
gífurlega erfitt væri að fá tíma hjá
taugalæknum, og þá sérstaklega á
sumrin.
Kári létti undir
Það vakti athygli í fréttum síðustu
viku þegar Kári Stefánsson, forstjóri
Islenskrar erfðagreiningar, dró
fram læknasloppinn til þess að taka
nokkrar vaktir á taugadeildinni.
Elías segirþað hafa verið nauðsynlegt
til þess að létta undir, þó að það væri
ekki nema til fjögurra daga. Þá er
von á öðrum manni erlendis frá til
þess að standa vaktina þessa vikuna
og hjálpa til meðan álagið er mikið.
„Flestir vilja fara í sumarfrí þessa
dagana og þá er afar þunnskipað hér
á deildinni.“
Vaxandi vandamál
Sumir sjúklingarnir komast ekki
neitt þar sem læknarnir eru alltof
fáir. Elías segir þetta vaxandi
vandamál. „Við erum að mörgu leyti
verr sett með þetta en fyrir fimmtán
árum síðan. Þjóðin stækkar og eldist
þannig að þeir hópar sem fá þessa
sjúkdóma fara stækkandi."
Innifalið í verði:
Flug, 4 stjörnu hótel m/morgunmat, akstur til og frá flugvelli, íslensk
fararstjórn og skattar.
Verð 49.900 kr.
Ferðin er frá 12.-16. október
Tallinn hefur breyst í nútímaborg með alþjóðlegu yfirbragði á sfðustu 10
árum. Þrátt fyrir það eru ibúarnir stoltastir af gamla bæjarhlutanum. Þar
eru götur steini lagðar og við þær standa vel varðveittar stórkostlegar
byggingarfrá 11-15 öld. Þá setja markaðirnir mikinn svip á borgina.
Tallinn hefur verið bætt við á heimslista UNESCO sem ein best varðveitta
miðaldarborg N-Evrópu. Menningarllf 1 Talllinn stendur með miklum
blóma og geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. í Tallinn er hægt að gera
góð kaup. Þar er ódýrt að versla og matur á veitingahúsum er ódýr. Þá er,
næturlifið fjörugt, barir, skemmtistaðir og kaffihús á hverju götuhorni.
Tallinn er borg sem fangar, borg sem skilur eitthvað eftir, löngu eftir að
komið er heim.
Spennandi skoðunarferðir I boði með fslenskri fararstjórn
Trans-Atlantic
Sími 5888900 www.transatlantic.is
O Heiískirt 0LémkfiaS ^ Skýjað Q Alskýjaö /f Rigning,titilsháttar '// Rigning Súld SnJSkoma Slydda \jj Snjóél
Skúr
Amsterdam 19
Barcelona 28
Beriín 18
Chicago 26
Frankfurt 23
Hamborg 19
Helsinki 19
Kaupmannahöfn 20
London 18
Madríd 31
Maliorka 29
Montreai 19
New York 27
Orlando 26
Osló 15
Paris 22
Stokkhólmur 19
Þórshöfn 11
Vín 25
Algarve 24
Dublin 16
Glasgow 15
r'lo°
ii°
%
8°'
13°
12^
13
0
0^012“
Veðurhorfur í dag kl: 18.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
150
0
10°
I morgun
8°
14°®