blaðið - 25.07.2005, Blaðsíða 28
28 I DAGSKRÁ
MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 2005 blaðið
■ Stutt spjall: Hildur Helga Sigurðardóttir
Hildur Helga er fjölmiðlakona og er með þátt á Utvarpi Sögu alla virka, nema miðvikudaga, milli kl. 15-17.
Hvernig hefurðu það í dag?
,Ég hef það bara fínt, er einmitt á leið í vinn-
una á Útvarpi Sögu."
Hvað hefurðu unnið í fjölmiðlum lengi?
,Ég hóf störf sem blaðamaður á Morgunblað-
inu árið 1980 og hef mestmegnis starfað við
fjölmiðla síðan. Ég varfréttaritari RÚV í Bret-
landi í átta ár og vann jöfnum höndum fyrir
fréttastofur Útvarps og Sjónvarps og Rás 2.
Árið 1996var ég ritstjórnarfulltrúi á Degi-Tím-
anum og svo hófst sjónvarpstíminn aftur hjá
mér með þættinum„Þetta helst." Síðan var
ég ráðin kynningarstjóri Listasafns íslands
í eitt ár og er það eina fasta staðan sem ég
hef gegnt sem var ekki bein fjölmiðlastaða.
Undanfarið hef ég mest starfað sjálfstætt
og mikið við útvarp, stjórnaði meðal annars
þættinum I vikulokin á RÚV í fyrrasumar
og var svo með minn eigin þátt, Púlsinn á
föstudögum á RÚV í vetur sem leið. Svo er
ég fréttaritari breska blaðsinsTheTimes á
íslandi og skrifa oft fyrir þá sem og Sunday
Times og fleiri. Auk þess hef ég verið með alls
konar greinar og fasta útvarpspistla til dæm-
is í Speglinum og Samfélaginu í nærmynd.
Nú er ég semsagt nýbyrjuð á Útvarpi Sögu."
Kom eitthvað þér á óvart þegar þú byrjað-
ir f útvarpi?
„Já, það er alltaf stórt stökk að skipta um miðil.
Mér fannst til að mynda hræðilega óþægi-
legt að hlusta á röddina í sjálfri mér til að
byrja með og svo fannst mér útvarpið miklu
yfirborðskenndari miðill en blaðið enda
um mun knappari stíl að ræða, sérstaklega
í fréttum. Þetta tók þó fljótt af þegar ég fór
að gera mér grein fyrir því hvað útvarpið er
skemmtilegur miðill og býður upp á mikla
möguleika."
■ Eitthvað fyrir..
Skjár í - Center of the Universe - kl.
20.00
Nýjir, sprenghlægilegir gamanþætt-
ir um hjónin John og Kate sem hafa
verið gift í 20 ár og eru enn yfir sig
ástfangin. Líf þeirra væri vísast full-
komið ef nánustu fjölskyldumeðlimir
væru með allar skrúfurnar í hausnum
en afinn er með kynlíf á heilanum og
amman kemur í heimsókn i tíma og ótíma til að tryggja að barnabarnið fái
nóg að borða. Frændfólkið er hreint út sagt ferlegt og einkasonurinn virðist
samviskusamlega ætla að tileinka sér alla helstu galla ættarinnar. Með aðal-
hlutverk fara John Goodman, Olympia Dukakis og Jean Smart.
...stærðfræðinga
Rúv - Eiginkona Einsteins - kl. 20.15
E = mc2 er sennilega mikilvægasta
jafna eðlisfræðinnar og hugsanlega
aðalástæða þess að Albert Einstein
er enn virtur og dáður. En átti hann
einn heiðurinn að jöfnunni? Júgóslav-
inn Mileva Maric var framúrskarandi
stærðfræðingur sem var ástkona og
síðar eiginkona hins heimsfræga snillings. í heimildarmyndinni sem Sjón-
varpið sýnir í kvöld er meðal annars vitnað í ástarbréf þeirra Alberts og
Milevu þar sem minnst er á vísindasamstarf þeirra en um leið og töfrajafnan
var opinberuð var sem Mileva væri ekki lengur til. Vesturlandabúar höfðu
fyrst spurnir af Mileva Maric þegar júgóslavnesk ævisaga hennar var þýdd á
þýsku árið 1983 og um 1990 fóru að birtast getgátur um að vísindaafrek þau,
sem Einstein eru eignuð, hafi í raun verið afrakstur samstarfs þeirra hjóna.
Enginn botn hefur fengist í þá umræðu, að hluta til vegna þess að svo virðist
sem ritari Einsteins um 20 ára skeið hafi eyðilagt öll skjöl sem varpað gætu
skugga á minningu hans eftir dauða hans árið 1953. Áhugasömum er einnig
bent á vefslóðina www.pbs.org/opb/einsteinswife/.
...fréttafíkla
Stöð 2 - The Enforcers: Inside the
D.E - kl.21.55 (Fíkniefnalögreglan)
Fréttaskýringaþáttur um baráttu
bandarískra yfirvalda við eiturlyfja-
smyglara og dópsala. Heróín, kóka-
ín og önnur efni hafa löngum verið
aðgengileg þrátt fyrir öflugt eftirlit.
Forráðamenn lögreglunnar eru samt
hvergi bangnir og segja að í þessu
stríði muni þeir aldrei gefast upp.
Hvernig tónlist hlustarðu helst á?
„Ég er næstum því alæta á tónlist, hlusta á
allar tegundir. Nema helst ekki kántrý sem
mér finnst oft óttalegt holtaþokuvæl - nema
náttúrulega Patsy Cline, mér finnst hún
æðisleg."
Er gaman aö vinna í útvarpi?
„Já, verulega. Þar gerast hlutirnir oft hratt og
beint og það á vel við mig. Annars á ég það
til að liggja dálftið yfir hlutunum en í útvarpi
gefst sjaldan tími til þess."
Hefur margt breyst síðan þú byrjaðir að
vinna í útvarpi?
„Tækninni hefur að sjálfsögðu fleygt fram
en eðli miðilsins er samt hið sama. Hins
vegar er auðvitað munur á því að vinna á
stórri stöð eins og Ríkisútvarpinu og lítilli á
borð við Útvarp Sögu. Mér finnst það holl
og skemmtileg tilbreyting. Á Sögu er ekki
þessi mikla yfir- og undirbygging sem ein-
kennir stóra stofnun eins og RÚV. Hér er allt
mjög„spontant", mikill hraði og rífandi góð
stemmning, enda bráðskemmtilegt og gott
fólk á staðnum."
Hvað er framundan í þættinum þínum?
Þátturinn er sfbreytilegur, alltaf í mótun og
verður örugglega áfram því nýjar hugmyndir
eru alltaf að skjóta upp kollinum. Ég legg
áherslu á að vera með góða gesti og taka á
málefnum líðandi stundar, reyni að fræða og
skemmta jöfnum höndum. Gústaf Níelsson,
sagnfræðingur og dagskrárgerðarmaður á
Sögu, kemur í þáttinn til mín þriðjudaga og
fimmtudaga milli kl. 16 og 17 og við ræðum
málin. Það er oftast mikið fjör hjá okkur Gúst-
af og hlustendur láta svo sannarlega ekki sitt
eftir liggja þannig að þarna verða oft afar
hressileg skoðanaskipti."
6:00-13:00
M 06.58 fsland < bítiS
09.00 Bold and the Beautiful
(Glæstar vonir)
09.20 f fínu formi
(þolfimi)
09.35 Óprah Winfrey
(Memorable Guests:The Dram
atic Follow-Ups)
10.20 fsland f bítið
12.20 Neighbours
(Nágrannar)
12.45 ifínu formi
(þolfimi)
0
13:00-18:30
13.30HMísundi
Bein útsending frá keppni f undanrásum í
Montreal.
16.25 Meistaramót fslands í frjálsum íþróttum
16.50 Fótboltakvöld
Endursýndur þátturfrá sunnudagskvöldi.
17.05 Leiðarljós
(Guiding Light)
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Myndasafnið;
Gurra grís, Kóalabræður, Pósturinn Páll
13.00 Perfect Strangers (98:150)
(Úr bæ í borg)
13.25 Spln the Bottle
(Flöskustútur)
15.15ThirdWatch (15:22)
(Næturvaktin 6)
16.00 Barnatími Stöðvar 2
17.53 Neighbours
(Nágrannar)
18.18 íslandfdag
18.00 Cheers
18:30-21:00
18.30 Astfangnar stelpur (1:13)
(Girls in Love)
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.35 Kastljósið
19.55 Átta einfaldar reglur (45:52)
(8 Simple Rules)
20.15 Eiginkona Einsteins
(Einstein's Wife)
18.30 Fréttir Stöðvar 2
19.00 fslandídag
19.35 Simpsons
(Simpsonfjölskyldan 7)
20.00 Extreme Makeover - Home Edition (6:14)
(Hús í andlitslyftingu)
20.45 JamieOiiver (Oliver'sTwist) (16:26)
(Kokkur án klæða)
18.30 Tremors(e)
19.15 Þakyfir höfuðið (e)
19.30 Lessthan Perfect (e)
20.00 Center of the Universe - NÝTTl
20.50 Þakyfirhöfuðið
Hvað á að gera skemmtilegt í sumar?
„Ég er nú nýkomin úr frábærri þriggja vikna
fróðleiks og skemmtiferð um gjörvallt Grikk-
land sem ég fór f með ellefu ára syni mfnum,
Óðni Páli, undir leiðsögn Sigurðar A. Magn-
ússonar, rithöfundar. Það er því mestmegnis
vinna framundan í bili en vonandi kemst ég
eitthvað út á land í ágúst." g
SIRKUS
18.30 Fréttir Stöðvar 2
19.00 islenskl listinn
19.30 Friends (20:24)
(FRIENDS 1)
20.00 Friends (21:24)
(FRIENDS 1)
20.30 American Dad (5:13)
(Roger Codger)
18.30 Gillette-sportpakkinn
19.00 Motorworld
19.30 World Supercross
(Angel Stadium)
20.30 fslandsmótið i golfi 2005
06.25 City Slickers
(Fjörkálfar)
08.15 Good Morning Vietnam
(Góðan dag, Vietnam)
12.00The Big One
(Stórlaxar)
14.00 CitySlickers
(Fjörkálfar)
Ævintýralegur vestri á léttum nótum.
16.00 Good Morning Vietnam
(Góðandag,Vietnam)
18.00StuartLittle2
(Stúart litli 2) ■
20.00 TheAbyss
(Hyldýpið)
Magnþrungin spennumynd sem gerist í
undirdjúpunum. Nokkrir færir frístundakafar
ar eru tilneyddir til að vinna hættulegt sér
verkefni fyrir bandaríska flotann. Maltin gef
ur þrjár stjörnur. Aðalhlutverk: Ed Harris,
Michael Biehn, Mary Elizabeth Mastrantonio.
Leikstjóri: James Cameron. Bönnuð börnum.
■ Hvernig finnst þér innlend dagskrárgerð á Sirkus?
Bragi Þór Hinriksson
,Mér finnst hún frábær. Hún
er bæði frumleg og skemmti-
leg.“
Áslaug Alfreðsdóttir
„Ég hef ekki aðgang að Sir-
kus.“
Margrét Viðarsdóttir
Ég horfi ekki á Sirkus. Ég vil
það bara ekki.“
Lilja Hjálmarsdóttir
„Ég hef frekar lítið horft á Sir-
kus en mér finnst hún allt í
lagi.“
Inga Magnúsdóttir
„Ég hef voðalega lítið horft á
hana en mér líst vel á þetta.
Sirkus er góð viðbót.“
Bjarki Vilmarsson
„Alveg ágæt en ég horfi lítið á
sjónvarp á sumrin.“