blaðið - 25.07.2005, Side 6

blaðið - 25.07.2005, Side 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 2005 blaAÍÖ Við sendum um land allt Trampolínsalan S: 565-0313 eða 848-7632 Veðurfar: Þokunni ætti að létta á þriðjudag Að sögn veðurfræðinga á Veðurstofu íslands er von til þess að þokunni yfir suðvest- urhorninu létti á þriðjudag, þvi þá mun bæta eilítið í vind með norðaustlægri átt. Vonir standa þó til þess að henni geti létt á höfuðborgarsvæð- inu síðdegis í dag. Þokan er ekki ýkja þétt eða víðfeðm og hefur sést til sólar á Akranesi og viðar umhverfis borgina. Vangaveltur hafa verið uppi um það meðal leikmanna að veðurfar sé að hlýna hér á landi og kunni að líkjast því meira sem gerist á suðlægari slóðum. Hafa sumir jafnvel óttast að þoka kunni að verða algeng hér að sumarlagi líkt og gerist í Færeyjum en þar getur þokan legið yfir svo vikum skiptir. Veðurfræðingar telja full- snemmt að segja til um hvort hér ræði um breytt veðurfar, menn ræði yfirleitt um áratuga- langa þróun í því samhengi fremur en breytingu ár frá ári. Meðalhiti i mánuði hefur farið hækkandi síðustu 10-15 árin og það kann að gefa vís- bendingar um breytt veðurfar. Þá kann fleira að koma til, meiri gróður og hærri tré lægja vind víða í höfuðborginni og annars staðar þar sem skóg- rækt hefiir verið stunduð, en fyrir vikið kann fólki að finnast veðrið þolanlegra þó það hafi að öðru leyti ekki breyst. Millilandaflug: Þoka setur strik í reikninginn Þokan sem verið hefur yfir suðvesturhorni landsins hefur valdið sáralitlum vandræð- um í flugi en um helgina þurfti þó að beina tveimur flugvélum frá Keflavíkurflug- velli til Reykjavíkur, en þar var þokan þá ögn léttari. Á laugardagskvöld var tveimur Boeing 757 vélum lent á Reykjavflcurflugvelli með skömmu millibili en ekki þótti óhætt að lenda á Keflavíkurflugvelli vegna þoku. Reykjavíkurflug- völlur er varaflugvöllur við alþjóðaflugvölhnn á Miðnesheiði. Farþegar Icelanda- ir, sem komu með vél frá Barcelona, og farþegar Iceland Express frá Kaupmanna- höfn lentu því í Reykjavík. Að sögn þótti fæstum farþegum það verra, en fríhöfnin á Reykjavíkurflugvelli var opnuð svo menn gætu notið sömu hlunninda og suður á velli. Nýja Strcetókerfið Borðinn klipptur fyrir fyrstu ferð Strætó samkvæmt nýju leiðarkerfi Mætir harðri gagnrýni Hið nýja leiðarkerfi Strætó, sem var tekið i gagnið á laugardaginn, hefur verið gagnrýnt verulega. Helst hefur fólk kvartað yfir þvf að biðstöðvum fækki og að nýja kerfið sé flókið. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sendu frá sér tilkynningu þar sem þeir meðal annars setja út á það að nýja kerfið sé gisnara en það gamla og ekki í samræmi við byggðaþróun. Þá gagnrýna þeir að kerfinu hafi verið breytt með byltingu í stað umbóta. Vfðast hvar erlendis hafi menn lært að betra sé að vinna að umbótum á almenningssamgöngum með hægum en stöðugum breytingum í stað byltingar. Misskilningur algengur Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætó bs„ segir gagnrýnisraddir hafa verið áberandi og kannaðist við það sem gagnrýnt er. Hann segir þó að í níu af hverjum tíu tilfellum sé umkvörtunarefnið á misskilningi byggt. Gagnrýni Sjálfstæðismanna kannast Ásgeir vel við. „Við byrjuðum t.d. á því að skoða möguleika á því að hafa skiptistöð við Kringluna þar sem þar hafa sérfræðingar reiknað að þungamiðja höfuðborgarsvæðisins sé. Þær hugmyndir voru hins vegar það fýrsta sem okkar ráðgjafar settu út á þar sem þaðan er yfirleitt svo stutt eftir af ferðalagi fólks miðað við kannanir sem gerðar voru.“ Bylting eina lausnin Þá tók Ásgeir undir það að hægfara breytingar hefðu verið ákjósanlegri en bylting. „Þegar okkar ráðgjafar sáu hvernig gamla kerfið var og hversu miklar breytingar voru fyrirliggjandi sögðu þeir einfaldlega að ekki væri hægt annað en að gera eina stóra breytingu eins og raunin varð.“ Ásgeir segir að vissulega hafi biðstöðvum verið fækkað en að samt sem áður verði biðstöðvar við þær götur sem strætó ekur áfram. „Hins vegar hættum við að keyra sumar götur en á móti kemur að við byrjum að aka aðrar götur. Þegar í upphafi voru ákveðin viðmið um hámarksgöngufjarlægð samþykkt og þeim fórum við eftir í öllum tilfellum.“ TRAMPOLINSALAIM Trampolínin okkar eru með breiðum og þykkum kanti svo þú ert öruggari Þú finnur ekki skemmtilegri leið til að koma þér í form—já,eða skemmta þér með fjölskyldunni Skemmtilegt fyrir alla fjölskyldunna •15 feta trampolín f4,57m] •16 feta trampolín [4,88mj • Stigi fylgir með • Veídu gæóin öryggisins vegna • Eigum einnig öryggisnet á allar stærðir komdu og prófaðu Bankarnir gerast sióapostular Það hefur vakið athygli fólks að viðskiptavinir Landsbanka og Is- landsbanka geta nú ráðið útlitinu á greiðslukortum sínum. Hugsuðu sér margir gott til glóðarinnar þeg- ar fréttir af þessu bárust en urðu fyrir vonbrigðum þegar skilmálar voru skoðaðir nánar. Þó virðist ekki alveg ljóst hvað leyfist og hvað ekki í þessum málum. Til dæmis vilja bankarnir ekki gefa út kort þar sem myndin er af „þjóðþekktum persón- um“ en þrátt fyrir það er boðið upp á mynd af Birgittu Haukdal hjá ís- landsbanka og verður hún seint sögð óþekkt á íslandi. Þá opn- ar þetta möguleika fyrir alla tólf ára unglinga á því að eiga gullkort — að því er virðist — í vasanum sem áður var bara á færi efnameiri manna og kvenna landsins. Bankarnir áskilja sér rétt til þess að hafna hverri þeirri mynd sem að þeirra mati er ekki nothæf sem mynd á greiðslukorti. Sem dæmi nefna þá banna þeir að notaðar séu myndir sem túlka sjónarmið andfé- lagslegra afla, stjórnmálahreyfinga eða trúarhópa. Líklegast útilokar þetta Hitler og Karl Marx, sennilega Bush og Blair og að öllum líkindum möguleika Halldórs Ásgrímssonar og Davíðs Oddssonar á að hafa eigin myndir á sinum kortum. Að sama skapi er ekki leyft að hafa vörumerki eða áróður á kortunum en samt sem áður býður Lands- bankinn upp á táknmyndir íþróttafélaga á kortunum. Þá er ákveðin klausa í samningi um að r ir af nöktu eða r nöktu fólki séu bannaðar en ekkert útlistað hversu mikið klætt það þarf að vera. Pétur Blöndal, forstöðumaður kynningarmála hjá Islands- banka, segir að hvert kort verði skoðað áður en það verður sent frá bankanum. „Reglurnar eru settar til þess að velsæmis sé gætt og heil- brigð skynsemi verður að segja hverj- um og einum hvað á heima á svona korti" Má Geir„lceblue" Ólafsson hafa mynd af sjálfum sér á greiðslukorti, eða er hann of frægur? Hvað með Bubba?

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.