blaðið - 25.07.2005, Blaðsíða 26
26 I KVIKMYNDIR
MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 2005 blaöi6
Sýndkl. 5.30,8 og 10.30 • Sýnd í lúxus kl. 5.30 og 8
Sýndkl. 3.30 og 5.45
Sýndkl. 5.20,8 og 10.40
Sýndf lúxus kl. 10.40 Bj. 16 ára
rD ^Mr^Mrs.
Sýndkl.8 B.l.14ára
Þorir þú í bió?
Sýndkl. 4
Tf/boð'
kr.Á
Sýnd kl. 6,8 og 10 B.i. 16 ára Sýnd kl. 10.20 B.i. 10 ára - Síöustu sýningar
□CJ Dolby /DD/
Thx
' BIO.IS
www.laugarasbio.is
Melódískir
rokkarar
Hljómsveitin Lights on the highway er skipuð þeim Kristó (söngur) Agga (gítar og söngur), Halla (trommur), Kalla (bassi) og Gulla (gítar).
Hljómsveitin Lights on the highway
sendi frá sér sjálftitlaða frumraun
sina í síðustu viku og hélt af því til-
efni frábæra útgáfutónleika fyrir
troðfullu húsi á Gauknum síðastlið-
inn fimmtudag. Hljómsveitin hefur
stækkað ört síðan hún var stofnuð
og hefur spilað á allt frá litlum pöb-
bum í Reykjavík til hins virta tónlei-
kastaðar Astoria í London. Hvar sem
þeir koma fram er vel tekið í melód-
ískt rokkið sem þeir spila. Kraftur-
inn sem er í hljómsveitinni á tónleik-
um skilaði sér vel inn á nýútkomnu
plötuna og féll hún vel i kramið hjá
mönnum í hlustunarpartýinu sem
hljómsveitin hélt á Dillon á dögun-
um. Þrátt fyrir að þeir höfðu varla
við að taka við lofum frá viðstödd-
um gáfu þeir sér þó tíma til að fræða
mig örlítið um hljómsveitina. Með
plötuna á fóninum ræddum við upp-
haf sveitarinnar, framtíðina og nýút-
komna breiðskífuna.
„Platan var tilbúin í byrjun mars“,
segir Aggi. „Síðan þá höfum við ver-
ið að reyna að fá hana gefna út rétt,
vel og almennilega. Eiríkur Rósberg
Eiríksson kom með pening til okk-
ar og borgaði hljóðverskostnaðinn.
Sena tók síðan plötuna þegar hún
var tilbúin og gaf hana út.“
Það hlýtur að vera mikill léttir
að vera búnir að koma plötunni
frá sérþar sem hún var tilbúinfyr-
ir svo löngu síðan.
„Þú getur rétt ímyndað þér, ég
meina, sjáðu okkur bara. Við erum
eins og pokar af spennufalli. Þetta er
það næsta sem við komumst því að
vita hvernig fæðing, andlega, er fyr-
ir kvenmann“, segir Kristó og Aggi
tekur undir það: „Ég held að ég hafi
í raun aldrei skilið hvað spennufall
er fyrr en nú.“
öll platan var tekin upp á einungis
níu dögum og því var mikil keyrsla.
Ekki gekk þó allt áfallalaust fyrir sig.
Ekki nóg með að prógrammið væri
stíft heldur gaf röddin á Kristó sig
og hann þurfti að fá læknisaðstoð
til þess að ná henni til baka. „Ég
veit hreinlega ekki hvernig við fór-
um að þessu, en þetta náðist“, segir
Kristó. Axel „Flex“ Árnason tók upp
plötuna í stúdíó Sýrland og á meðan
á hljóðblöndun stóð voru meira að
segja tekin upp tvö ný lög sem end-
uðu á plötunni. „ Axel small bara inn
í þegar við vorum í stúdíóinu og varð
í raun einn af bandinu", segir Aggi.
„Hann gerði nákvæmlega það sem
við vildum og kom með hugmyndir
sem hann vissi að við vildum en við
vissum kannski ekki af þeim sjálfir.
Hann algjörlega fullkomnaði hljóð-
ið á plötunni", bætir Kristó við.
Dúett gamalla kunningja verður
að fimm manna hljómsveit
Hljómsveitin á sér ekki langa sögu
en hefur þó gengið í gegnum miklar
breytingar frá því að hún var stofn-
uð fyrir tæpum tveimur árum síðan.
„Ég og Kristó erum aldagamlir kunn-
ingjar og við hittumst beint fyrir ut-
an Prikið á Menningarnótt árið 2003.
Ástæðan fyrir því að hann talaði við
mig var að ég var með Nirvana plötu
frá honum sem ég var eiginlega al-
veg búinn að eigna mér. Hann bað
mig að kíkja upp í stúdíó til sín sem
hann var með í láni í nokkra daga
hjá strákunum í Solid IV og þar sett-
umst við niður og spiluðum saman.
Þar varð eitthvað til innra með okk-
ur sem var ekkert hægt að stoppa
og við tókum upp fjögur lög“, segir
Aggi-
„Kalli, (Dirty Mood Booster), bætt-
ist síðar í dúettinn okkar og setti
bassalínur undir lögin sem við vor-
um búnir að gera. Hann var einmitt
það sem okkur vantaði og þá varð
hljómsveitin eiginlega til“, segir
Kristó. Þremenningarnir spiluðu á
ýmsum pöbbum í nokkurn tíma en
leituðu sér um leið að trommara og
öðrum gítarleikara. „Ég hitti Halla
á Hróarskeldu og hann sagðist vera
trommuleikari. Það lá bara beint við
að hann gengi til liðs við okkur og
við héldum fyrstu tónleikana saman
á Dillon, þremur vikum síðar", segir
Kristó. Bandið var þó ekki orðið full-
komið og enn átti eftir að bætast við.
Fimmti meðlimurinn, Gulli, fyrrum
gitarleikari hljómsveitarinnar Brain
Police, gekk í hópinn og var hljóm-
sveitin þá orðin fullmótuð.
Hvernigkom það til að Gullifór
að spila með ykkur?
„Gulli er búinn að vera vinur okkar í
mörg ár og við fengum hann til þess
að spila með okkur á plötunni“, seg-
ir Kristó og heldur áfram: „Á sama