blaðið - 27.07.2005, Síða 30
30 I ÍPRÖTTIR
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2005 blaðið
Glæsileg aðstaða risin í Vík í Mýrdal ^
l'Tti P nm ®i ■H --•
E ^V*»IBÍS«8Si(íl
,
HMísundhJakob
Jóhann í 33. sæti
Sundkappinn Jakob Jóhann Sveins-
son varð í áttunda og síðasta sæti
í sínum riðli í 50 metra bringu-
sundi á heimsmeistaramótinu
í Montreal í Kanada. Jakob var
mjög nálægt sínum besta árangri
en það dugði honum skammt því
hann varð í 33. sæti af 38 kep-
Íiendum. Jakob Jóhann var eini
slendingurinn sem keppti í gær.
Örn Arnarson synti í fyrradag
í 100 metra baksundi á tímanum
57.43 sekúndum og var langt
frá sínu besta. Hann hafnaði
í 33. sæti af 75 keppendum.
Annars hefur íslenska sund-
fólkið verið að gera ágæta hluti á
mótinu og nægir í því sambandi
að nefna tvö ný íslandsmet. Örn
Arnarson bætti íslandsmetið í 50
metra flugsundi þegar hann kom í
mark á tímanum 24.56 sekúndum
og bætti gamla metið sem Hjörtur
Már Reynisson átti um 45/100 úr
sekúndu. Örn lauk keppni í 25. sæti
af 104 keppendum. Jakob Jóhann
Sveinsson bætti eigið Islandsmet í
100 metra bringusundi um 51/100
úr sekúndu þegar hann synti á
tímanum 1:02,32 mínútum. Hann
endaði í 15. sæti af 88 keppendum. ■
Unglingalandsmótið, það áttunda
í röðinni, verður haldið í Vík í Mýr-
dal um verslunarmannahelgina.
Mikill og vel skipulagður undirbún-
ingur framkvæmdaaðila í Vík hefur
staðið yfir í nokkra mánuði og nú er
risin í þessu 300 manna samfélagi
stórglæsileg íþróttaaðstaða sem nýt-
ast mun um ókomin ár. Það hefur
vakið verðskuldaða athygli hvað
samheldni ibúa hefur verið einstök.
Allir sem vettlingi geta valdið hafa
unnið ómetanlegt sjálfboðaliða-
starf og létt mikið undir með fram-
kvæmdaaðilum. I Vík hefur verið
reist stærsta tjald landsins en það er
um 1300 fermetrar að stærð og hýsir
það nokkrar uppákomur mótsins.
Unglingalandsmótin eru fjöl-
skylduhátíð þar sem íþróttir og
unglingar eru í fyrirrúmi. Lögð er
áhersla á að öll fjölskyldan komi
saman og eigi góðar minningar frá
dvölinni í Vík. Unglingalandsmótin
hafa hvarvetna vakið mikla athygli
og þeir fjölmörgu sem þau hafa sótt
hafa verið öðrum til mikillar fyrir-
myndar með framkomu hvort sem
er í leik eða keppni.
Björn Bjarndal Jónsson, formað-
ur Ungmennafélags Islands, sagði í
samtali við Blaðið að sér lítist mjög
vel á allar aðstæður í Vík og raunar
væri framkvæmdin og umgjörðin
öll komin fram úr hans björtustu
vonum.
8-10 þúsund manns á Ung-
lingalandsmótinu íVík
„Það er stórkostlegt að hafa fylgst
með þeirri uppbyggingu sem átt
hefur sér stað í Vík. Máttur fólksins
í ekki stærra bæjarfélagi er alveg
ótrúlegur og hann á örugglega eftir
að skila sér alla leið. Undirbúningur
og allur aðdragandi fyrir þetta mót
í Vík hefur verið sérlega skemmtileg-
ur. í Vík hefur verið byggð upp frá-
bær íþróttaaðstaða sem nýtast mun
fólkinu í sýslunni sem og annars
staðar frá í nánustu framtíð. Ég er
mjög bjartsýnn á gott og vel haldið
mót og er sjálfur farinn að hlakka
mikið til“, sagði Björn Bjarndal for-
maður UMFÍ.
Aðspurður hvað hann byggist við
mörgum gestum á unglingalands-
mótið sagði hann erfitt að spá fyrir
um slíkt en það færi að sjálfsögðu
eftir veðrinu.
„Ég myndi telja raunhæft að tala
um 8-10 þúsund gesti en það er sú
stærð sem við ráðum vel við. Það
er allt að verða klárt í Vík og fram-
kvæmdir eru á lokastigi. Ég er viss
um að fjölskyldan getur átt frábærar
samverustundir á Unglinglandsmót-
inu í Vík”, sagði Björn Bjarndal.
Fyrir utan keppnina sjálfa stendur
fólki heilmargt til boða og má í því
sambandi nefna göngukeppni fjöl-
skyldunnar, gönguferðir með leið-
sögn og ekki síst jaðargreinar sem
krakkarnir geta spreytt sig á. Þá
verður settur upp leiktækjagarður
og ýmsir leikir verða að auki í gangi.
Skráning keppenda er í fullum
gangi en hægt er skrá sig í gegnum
heimasíðu mótsins sem er www.
ulm.is.
Hildur Vala, Idolstjarna Islands,
syngur við setningarathöfn Ung-
lingalandsmótsins á föstududags-
kvöldinu 29. júlí. Aðrar hljómsveitir
sem koma fram á mótinu eru Á móti
sól, ísafold og Svitabandið. ■
Sexvoruteknir
ílyfjapróf
Effir leik KR og Vals í VISA-bi-
karkeppni karla í síðustu viku voru
sex leikmenn teknir í lyfjapróf, þrír
úr hvoru hði. Lyfjaeftirlitsnefnd
ÍSl fylgdist með leiknum og frá
KR voru Tryggvi Sveinn Bjarnason,
Ágúst Þór Gylfason og Grétar Ólafur
Hjartarson teknir í próf að leik lok-
num og hjá Val voru þeir Steinþór
Gíslason, Sigurbjörn Hreiðarsson
og Matthías Guðmundsson teknir
í próf. Niðurstöðu er að vænta frá
lyfjaeftirlitsnefndinni eftir 2-3 vikur.
Nistelrooy í
ryskingum í Kína
Hollendingurinn Ruud van Ni-
stelrooy sem leikur með enska úr-
valsdeildarliðinu Manchester Un-
ited lenti í smá ryskingum þegar
United var að leika gegn Guoan í
Peking f Kína. Nistelrooy var tæklað-
ur mjög illa í þessum æfingaleik af
Zhang Shuai (til hægri á myndinni).
Nistlerooy brást eðlilega ilía við en
þó missti hann sig helst til um of
og upphófust miklar ryskingar. Allt
fór þó vel að lokum og Manchester
United sem er á keppnisferðalagi í
Kína vann Guoan 3-0. Liðið á eftir
að leika tvo leiki í Asíuför sinni áður
en haldið verður á ný til Englands
og það er gegn japönsku liðunum
Kashima Antlers og Urawa Red Di-
amonds.