blaðið - 27.07.2005, Side 32
32 I MENNING
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2005 blaöiö
Hádegistónleikar í sumartónleikaröð Hallgrímskirkju:
íslensk ættjarðarlög í nýju ljósi
Sigurður Flosason og Gunnar Gunn-
arsson leika á hádegistónleikum í
Hallgrímskirkju nk. fimmtudag, 28.
júlí, og flytja íslensk ættjarðarlög
í eigin útsetningum þar sem spun-
inn gegnir stóru hlutverki. Tónleik-
arnir hefjast kl. 12 og standa í um
hálfa klukkustund. Á efnisskránni
eru hefðbundin ættjarðarlög, Land
míns /öðwreftir Þórarin Guðmunds-
son, Hver á sér fegra föðurland eft-
ir Emil Thoroddsen og Lofsöngur
Sveinbjörns Sveinbjörnssonar. Einn-
ig leika þeir íslensk einsöngslög,
Draumalandið eftir Sigfús Einars-
son og Nótt eftir Árna Thorsteins-
son. Þá eru flutt dægurlög sem á
síðari árum hafa fest sig í sessi sem
ættjarðarlög, ísland er land þitt
eftir Magnús Þór Sigmundsson og
Fylgd eftir Sigurð Rúnar Jónsson.
Sigurður Flosason og Gunnar Gunnars-
son. Leika á hádegistónleikum í Hallgríms-
kirkju næstkomandi fimmtudag
99..................
Öllþessi lög erað
finna á hljómdiski sem
kom út í fyrra með leik
Sigurðar og Gunnars og
nefnist Draumalandið.
Öll þessi lög er að finna á hljómdiski
sem kom út í fyrra með leik Sigurðar
og Gunnars og nefnist Draumaland-
ið. Hann var hljóðritaður í Laugar-
neskirkju og tilnefndur til íslensku
tónlistarverðlaunanna.
Sigurður Flosason og Gunnar
Gunnarsson hafa áður vakið athygli
fyrir diska sína, „Sálma lífsins“ og
„Sálma jólanná', en báðir nutu mik-
illa vinsælda og hlutu jákvæða dóma.
Gunnar og Sigurður hafa auk þess
báðir gefið út diska í eigin nafni og
leikið inn á fjölda diska með öðrum.
Fjölhæfur tónlistarmaður
Sigurður Flosason lauk einleikara-
prófi á saxófón frá Tónlistarskólan-
um í Reykjavík 1983. Hann stundaði
framhaldsnám í klassískum sax-
ófónleik og jazzfræðum við Indiana
University i Bandaríkjunum og lauk
þaðan bachelorsprófi 1986 og mast-
ersprófi 1988. Sigurður stundaði
einkanám hjá George Coleman í
NewYorkveturinn 1988-1989. Hann
var ráðinn aðstoðarskólastjóri og yf-
irmaður jazzdeildar Tónlistarskóla
FÍH 1989 og hefur gegnt því starfi
síðan.
Sigurður er meðal þekktustu og
fjölhæfustu jazztónlistarmönnum
íslands. Hann hefur leikið inn á
fjölda geisladiska, tvisvar hefur
hann verið kjörinn jazzleikari árs-
ins á íslensku tónlistarverðlaunun-
um og tvívegis verið tilnefndur til
Tónlistarverðlauna Norðurlanda-
ráðs. Samstarf þeirra Gunnars hófst
árið 1999 og hafa þeir gefið út tvo
geisladiska.
Vínartónleikar
í Klink og Bank
Fimmtudaginn 28.júlí verður raftón-
listarveisla í Klink og Bank, Brautar-
holti. Veislugestir eru: hinn þýski
Binaer, Austurríkismaðurinn Franz
Pomassl, Product 8, Auxpan og hin-
ir landsþekktu Reptilicus. Binaer
er heitasti og eftirsóttasti DJ Vínar-
borgar um þessar mundir og Franz
Pomassl hefur vakið mikla athygli
með kraftmiklum framkomum og
er eitt stærsta nafn í raftónlistargeir-
anum um þessar mundir. Auk þess
að vera „cult“ maður í tónlistinni er
hann þekktur fyrir að vera fyrrum
ástmaður Ninu Hagen. Auxpan og
Product 8 þarf ekki að kynna fyrir
raftónlistaráhugamönnum.
Tónleikarnir á fimmtudaginn
hefjast kl. 21 í Klink og Bank, Braut-
arholti 1. Aðgangseyrir er 500 kr.
Austurrikismaðurinn Franz Pomassl
kemur fram á tónleikum i Klink og Bank
THE VERY
HUNGRY
lATKKPILLAR
by Kri. (.írlí-
Ein þeirra bóka sem
bresk börn fá að gjöf
frá ríkisstjórninni.
Breska ríkisstjórnin
gefur börnum bœknr
Breska ríkisstjórnin hefur ákveðið
að gera átak í lestri meðal ungra
barna. Börn frá nokkurra vikna
aldri til þriggja ára aldurs munu fá
að gjöf bókastafla frá ríkinu. Talið
er að þetta muni stuðla að því að for-
eldrar lesi fyrir börn sín og tryggi að
þeir beri menntun barna sinna fyr-
ir brjósti allt frá byrjun. Þótt þessi
áætlun hljómi vel er búist við að hún
muni kosta nokkra gagnrýni. Ekki
er ólíklegt að einhverjir muni rísa
upp og halda því fram að verið sé
að eyða skattpeningum borgaranna
og að ríkið sé að velja bækur ofan í
ungviði. Rithöfundar og útgefendur
sem ekki eiga bækur á hinum út-
valda lista munu örugglega líka láta
í sér heyra. ■
Fjölbreytilegur tónlistarflutningur
Gunnar Gunnarsson hóf tónlistar-
nám á Akureyri og lauk kantors-
prófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar
1988 og lokaprófi frá Tónfræðadeild
Tónlistarskólans í Reykjavík 1989.
Um árabil kenndi hann við Tónlist-
arskólann á Akureyri, lék í hljóm-
sveitum norðanlands og var jafn-
framt kirkjuorganisti. Frá árinu
1995 hefur hann verið organisti við
Laugarneskirkju í Reykjavík.
Gunnar hefur getið sér gott orð
fyrir fjölbreytilegan tónlistarflutn-
ing og víða komið fram á tónleikum
innan lands og utan. Auk starfs síns
sem kirkjuorganisti hefur hann lagt
sig eftir að útsetja og flytja trúar-
lega tónlist með nýstárlegum hætti.
Einnig hefur hann leikið á píanó
með mörgum þekktum tónlistar-
mönnum og átt þátt í útsetningum
og hljóðritunum á jazztónlist og
þjóðlegri tónlist. Á undanförnum
árum hefur Gunnar í auknu mæli
útsett tónlist fyrir kóra og sönghópa
og hafa útsetningar hans á kirkju-
tónlist komið út hjá Skálholtsútgáf-
unni. ■
ÚTSALA!
DÖMUSKÓR - HERRASKÓR - BARNASKÓR - SANDALAR
60%
AFSLÁTTUR!
m ecco ara llwvu zTnda
Söngleikur um Lennon
Söngleikur um John Lennon verð-
ur frumsýndur á Broadway 4. ág-
úst. Nokkrir leikarar skiptast á að
fara með hlutverk Lennons en Paul
McCartney er leikinn af blökku-
manni. Ekkja Lennons, Yoko Ono,
hefur lagt blessun sína yfir handrit-
ið. Fyrrum ástkona Lennons, May
Pang, er hins vegar afar ósátt. Pang
varð ástkona Lennons þegar vand-
ræði steðjuðu að hjónabandi hans
og Yoko. Sambandið þeirra stóð í
tæp tvö ár og nú er Pang að skrifa
bók um mánuðina með Lennon en
hún segir þau hafa verið að íhuga
endurfundi þegar Lennon var skot-
inn til bana árið 1980.
Pang fór á forsýningu á söng-
leiknum og kvartar undan þvi að
hún og Paul, George og Ringo komi
þar vart við sögu en mikið sé gert
úr hlutverki Yoko. Pang er ekki ein
um gagnrýnina því á netinu eru að
finna kvartanir þeirra sem séð hafa
söngleikinn. „Þar er of mikið af at-
riðum þar sem Yoko segir við John:
„Ég sagði þér þetta“, segir einn net-
verji og bætir við: „Það fær mann til
að giuna að Yoko hafi raunverulega
eyðilagt Bítlana.“
Framleiðendur segja ósanngjarnt
að gagnrýna söngleik sem enn er í
mótun. Ætlunin sé að heiðra John
Lennon í söngleiknum, ekki grafa
hann.
OPIÐ; MÁN. - FÖS. 10 - 18, LAU. 10 - 16
John og Yoko. Söngleikur um Lennon verður frumsýndur í ágúst á Broadway.