blaðið - 12.08.2005, Blaðsíða 16

blaðið - 12.08.2005, Blaðsíða 16
16 I VIÐTAL FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2005 bla6ió Veruleikinn e BlaÖiÖ/SteinarHugi Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor er önnum kafinn þessa dagana við að undirbúa ráðstefnu Mont Pelerin samtakanna sem haldin verður hér á landi 21.-24. ág- úst. Þetta eru samtök frjálshyggju- manna úr öllum heimshornum, sem stofnuð voru af Nóbelsverð- launahöfunum Friedrich von Hayek og Milton Friedman. Á ráðstefnuna mætir fjöldi erlendra og innlendra hagfræðinga og stjórnmálamanna og rætt verður um frelsi og eignarétt ánýrriöld. Meðalþátttakendaverða Andrei Illarionov efnahagsráðgjafi Pútins Rússlandsforseta, Mart Laar, fyrrum forsætisráðherra Eistlands, Vaclav Klaus, forseti Tékklands og Davíð Oddsson utanríkisráðherra, svo einungis örfáir séu nefndir. Hannes Hólmsteinn hefur verið fé- lagi í samtökunum síðan 1984 og sótti fyrsta fundinn að frumkvæði Hayek. Hannes segist vera vel kunnur flest- um þátttakendum á ráðstefnunni í ár. Er reyndin að þú sért í meiri metum erlendis en hér á landi sem stjórnmála- fræðingur ogfrœðimaður? „Ég held að ég sé í góðum metum hjá ýmsum hérlendis en litlum metum hjá öðrum og allir geta sagt sér hvaða hópar þetta eru. Ég kvarta ekki und- an þeim viðtökum sem ég hef fengið erlendis en það var stór ákvörðun á sín- um tíma að setjast að á í slandi að námi loknu og hasla sér völl en ég sé ekki eftir því. Ég held að framlag mitt hefði ekki orðið eins gagnlegt ef ég hefði til dæmis orðið kennari við bandarísk- an háskóla og einbeitt mér að því að skrifa lærðar ritgerðir í fræðileg tíma- rit fremur en að koma til íslands og aðstoða þá ágætu forystumenn sem hér hafa verið síðustu áratugina við að gera ísland að frjálsara, blómlegra og ríkara landi." Þarf að vernda kapítalismann fyrir kapítalistunum Þú ert þá ánægður með árangurinn í landsstjórninni? „Árangurinn hefur verið framar öllum vonum. Island hefur blómgast, hér ríkir velmegun, fjölbreytni og val- frelsi. En þótt einkennilegt megi virð- ast þá þarf að vernda kapítalismann fyrir kapítalistunum. Kapítalistarnir verða að gæta stillingar og hófs og leggja ekki allt undir sig hver á sínu sviði. Þeir þurfa að styðja kapítalis- mann í reynd. Ég furða mig á því hvað íslenskir kapítalistar eru góðir við andstæðinga sína og styrkja þá leynt og ljóst. Ágæt- ur kunningi minn, Jón Ásgeir Jóhann- esson, hefur afhent vinstri öflunum á Islandi fjölmiðlana sem hann á. Með því er Jón Ásgeir að grafa undan ís- lenskum kapítahsma. Ef menn eiga að vera bandamenn í að skapa frjálsara ísland, þá verða þeir að geta upplifað hvern annan sem bandamenn. Það þurfa allir frjálslyndir menn að leggjast á eitt að afstýra vinstri stjórn með verðbólgu, skattahækkunum, skuldasöfnun og endalausum um- ræðustjórnmálum. Mér finnst margt ógert. Til dæmis eru fbúðalánasjóður og Lánasjóður íslenskra námsmanna enn ríkisreknir, orkufyrirtækin líka, og skattar á einstaklinga eru allt of háir; þeir verða að lækka niður í það, sem þeir eru á fyrirtæki. Við þurfum líka að lækka matvælaverð með því að opna fyrir innflutning; það er orðið löngu tímabært." Þú ert dálkahöfundur í Fréttablað- inu, sem samkvæmt orðum þínum áð- an er vinstra blað. Af hverju skrifarðu iþað? „Svarið er einfalt. Fréttablaðið er eina blaðið sem hefur boðið mér að skrifa fast í það. Mér fannst líka ekld veita af smámótvægi við nöldurskjóð- 99................. Ég held að það sé ekki mjög skynsamlegt að reyna að hefna sín á þeim sem höggva til manns. Maður á frekar að herða róðurinn og fara fram úrþeim. urnar og Davíðshatarana sem skrifa þar allir sömu greinina í hverri viku.“ Vináttan við Davíð Þú nefndir áðan aðstoð þína við for- ystumenn landsins. Þú ert mikill vinur Davíðs Oddssonar. Leitar hann mikið til þín? „Mér finnst heldur snaudegt þegar ég er fyrst og fremst kynntur sem vin-

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.