blaðið - 12.08.2005, Síða 23

blaðið - 12.08.2005, Síða 23
blaðið FÖSTUDAGUR 12.ÁGÚST2005 SMÁAUGLÝSINGAR I 21 Ganga að Gvendarbnuwum -Frœðsla, hreyfing og skemmtisögur Á laugardaginn verður farin ganga frá Minjasafninu í Elliðaárdal, upp dalinn að Gvendarbrunnum. Krist- inn H. Þorsteinsson mun ásamt fleiri fræðimönnum fara fyrir göng- unni. „Þessi ganga er fræðsluganga sem er hluti af fræðslu sem við höfum verið með í Elliðaárdal. Vor, sum- ar og haust höfum við verið með fræðslu í Elliðaárdalnum og höfum verið með göngu upp allan Elliðaár- dalinn alveg frá Minjasafni og upp að Gvendarbrunni. Á gönguleið okk- ar hittum við fyrir ýmsa fræðimenn sem segja okkur eitthvað markvert sem tengist Elliðaárdal. Það er mis- munandi milli ára hvað það er en í ár munum við fræðast um rafmagn- ið eða upphaf rafmagns í Elliðaárdal. Einnig verður farið inn á fiskinn og okkur sagt frá þeim rannsóknum sem eru núna í gangi. Svo heimsækir okkur fuglaskoðari og sagt verður frá skipulagi í kringum dalinn, jarð- fræði, gróðri og ýmsu fleiru,“ segir Kristinn. „Þetta er tiltölulega létt ganga og ef það gerist að einhver þarf að stoppa eða þarf að fara til baka þá erum við í tengslum við bíl sem ekur fólki til baka. Hraðinn miðast bara við hóp- inn, við ferðumst um 12 kílómetra samanlagt,“ segir Kristinn og tekur fram að boðið verði upp á sætaferðir til baka. Fyrir þá sem ekki vita hvað Gvend- arbrunnar eru útskýrir Kristinn: „Gvendarbrunnar eru vatnstöku- svæði Reykvíkinga og 1909 var byrj- að að taka vatn þarna uppfrá. Nafn- ið kemur til af því að Guðmundur biskup blessaði þessar lindar sem voru þarna uppfrá. Við ætlum að skoða fyrsta upptökustaðinn fyrir Reykvíkinga. Fyrst förum við fram- hjá þar sem allra fyrst var tekið úr Elliðaárdalnum. Síðan förum við þar sem var tekið síðar og munum jafnframt kynnast borholunum því nú í dag er tekið djúpt í jörðu.“ Alla ferðina munu verða rifjaðar upp skemmtilegar sögur að sögn Kristins og hann lét eina flakka, svona til að þjófstarta. „Þegar ég og Einar Gunnlaugsson jarðfræðingur, sem höfum stjórnað þessum fræðsluþætti í Elliðaárdal, vorum með göngu fyrir 3-4 árum síðan þá komu Danir hjólandi inn úr Elliðahólmunum og spurðu til vegar. Danirnir höfðu villst inni í skóginum og báðu okkur vinsam- legast að hjálpa sér að rata til baka,“ segir Kristinn og segist þó aðspurð- vanir leiðsögumenn með í för. Gang- ur ekki óttast það að hópurinn muni an hefst klukkan 10:00 stundvíslega villast í skóginum á morgun enda ífyrramálið. B Perlurnar í Þjórsárveri „Þetta er reyndar ekki á því svæði sem fer undir vatn en það verður ým- is konar röskun í Þjórsárverunum og þar með talið þessu landi. Þessar framkvæmdir sem talað er um og eru í vinnslu fela það í sér að nánast öllu vatni úr farvegi Þjórsár verður veitt í burtu til austurs þannig að það Hjónunum til fulltingis verða þau Klara Þórhallsdóttir og Vigfús Páls- son sem eru þaulvanir göngugarpar. „Leiðin yfir Heljardalsheiði er verður nánast ekkert vatn eftir í far- veginum. Síðan bætist auðvitað vatn við eftir því sem kemur neðar í verið og jökulkvíslar og fleiri ár bæta í en þetta verður þannig séð ekki svipur hjá sjón. Þetta er kílómetra breiður farvegur sem verður að miklu leiti þurr og maður veit ekki hvaða áhrif niður mikinn bratta að Heljará. Það- an er fremur auðveld ganga niður í Kolbeinsdal og að Kolbeinsdalsá þar sem fólki stendur til boða að vera það mun hafa,“ segir Þóra. Þátttökugjald í ferðina er 3.500 kr. Þátttakendur sjá sér sjálfir fyrir nesti og gott er að hafa vaðstígvél eða vaðskó við höndina. Nánari upp- lýsingar er að finna á lanndvernd.is. ferjað yfir ef það vill ekki vaða ána. Hún er jökulá og getur verið mikið í henni.“ segir Guðrún Edda. „Eðli pílagrímaferða er að leita til helgra staða til að endurnæra líkama og sál.Þær eru til andlegrar uppbyggingar og reyna á líkamann á leiðinni, eru til gagns fyrir likama og sál,“ segir Guðrún Edda. Leiðin er 27 kílómetrar frá Atla- stöðum heim að Hólum. „Við reiknum með svona 8-9 tím- um í göngu. Leggjum af stað klukk- an 9 frá Atlastöðum og vonumst til að verða komin í aftansöng klukkan sex á Hólum þar sem tekið verður á móti hópnum. Það verður auðvitað áð með hóflegu millibili. Á þeim stöðum verður lesið úr Biblíunni eða eitthvað uppbyggilegt. Það eru 17 manns búnir að skrá sig nú þegar og allir eru velkomnir,“ segir Guð- rún Edda. „Það er hægt að fara að Hólum og vera í tjaldgistingu aðfararnótt laug- ardagsins og svo er rútuferð frá Hól- um að Atlastöðum kl. 7 um morgun- inn. Svo verður kvöldverður á Hólum eftir aftansöng. Það á að grilla úti og hafa það gott saman,“segir Guðrún Edda og bendir á að auðvitað verði að vera 1 góðu skótaui, vel búinn með nesti og hlýjan fatnað. ■ Asunnudaginn verður farin dagsferð um Þjórsárver á vegum Ferðafélags Islands og Landverndar. Þóra Ellen Þór- hallsdóttir grasafræðingur er ein af fararstjórum ferðarinnar. „Það verður kvöldvaka í Árnesi í Gnúpverjahreppi á laugardags- kvöldið fyrir þá sem vilja. Það verð- ur margt gott fólk með í för. Helgi Björnsson jöklafræðingur kynnir Hofsjökul og rannsóknir á honum og landið undir honum. Ég verð með kynningu á gróðri og landslagi í Þjórsárverum. Gísli Már Gíslason vatnalíffræðingur talar um vatnið, árnar, dýralíf og fugla. Sigþrúður Jónsdóttir beitarfræðingur sem er heimamaður í Gnúpverjahreppi talar um kynni og upplifun heima- manna á þessum afrétti þeirra, hvernig hann hefur verið nýttur og þar fram eftir götunum," segir Þóra. Áður hafa verið farnar slíkar ferð- ir þar sem gengið er þvert yfir Þjórs- árver en slíkar ferðir hafa tekið 4-5 daga. Þetta er í fyrsta sinn, að sögn Þóru, sem dagsferð er farin yfir þetta svæði. „Þeim sem ekki verða á kvöldvök- unni er boðið upp á leggja af stað klukkan sjö á sunnudagsmorgun frá Reykjavík. Þessir hópar hittast síðan í Árnesi. Þá verður ekið upp í Eyvindarver, og gengið að Eyvind- arkofa. Síðan ætlum við að fara í Þúfuver og skoða þessar margbreyti- legu sífrerarústir sem að þar eru og huga að gróðri og skötuormi í tjörn- unum. Síðan verður gengið upp á Biskupsþúfu, sem sagt þvert yfir Þúfuver. Þar mun Axel, sóknarprest- ur á Gnúpi í Gnúpverjahreppi halda messu og síðan göngum við um Þúfuverið. Um kvöldið verður hald- ið til Reykjavíkur," segir Þóra. Vitað er að Kárahnjúkastíflun sem verið er að byggja mun hafa mikil áhrifá dýralíf oggróður hálendisins, hvað með þetta svæði sem gengið verður um ogskoðað íferðinni? Pilagrimaganga -til andlegrar uppbyggingar Guðrún Edda Gunnarsdóttir, sókn- arprestur í Þingeyrarprestakalli og eiginmaður hennar Einar Sigur- björnsson, prófessor munu leiða hóp fólks í pílagrímagöngu til Hóla á morgun. Lagt verður af stað frá Atla- stöðum í Svarfaðardal og gengið yfir Heljadalsheiði að Hólum í Hjaltadal. gömul þjóðleið milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar og er mjög mikið geng- in á sumrin sem og farin á hestum. Ég hef gengið þessa leið tvisvar sinn- um áður og er hún mjög skemmtileg og falleg. Farið er fram innsta hluta Svarfaðardals, upp brattar brekkur upp í skarð á háheiðinni og síðan Við leitum að skemmtilegu fólki. Tðkum daglega við umsóknum. Vilt þú vinna á KFC ? Drum & bass á Gauknum Annað kvöld verður heljarinn- ar drum & bass veisla á Gauki á Stöng þar sem aðalstjarnan er tónlistarmaðurinn og plötusnúðurinn D-Bridge. D-Bridge hefur allt ffá upphafi 10. áratugarins verið viðriðinn danstónlistarsenu Bretlands en það var þó undir lok aldarinnar sem ff ægðarsól hans tók að rísa og enn sér ekki fyrir endann á ferh hans. Breakbeat.is hefur veg og vanda af komu D-Bridge tH landsins og auk hans koma fram Kalli, Lelli og Gunni Ewok. Aðgöngueyrir er 1000 krón- ur og 20 ára aldurstakmark. Herlegheitin byrja á miðnætti. Listvinafé- lagið Skúli Laugardaginn 13. ágúst 2005 opnar Listvinafélagið Skúli í Túni vinnustofusýningu að Skúlatúni 4, á þriðju hæð. Sýningin er sú fyrsta í röð sýninga sem félagið ætlar að halda á verkum meðlima sinna og annarra sem fengnir verða til að vera með sýningar eða uppákom- ur í rými vinnustofunnar. Félagið telur sem stendur 10 meðlimi en þeir sem taka þátt í sýningunni eru: María Kjartansdóttir, Anna Leif El- ídóttir, Heiða Harðardóttir, Karl Bergmann ómarsson, Þóra Gunnarsdóttir, Anna María, Hye Joung Park, María Hrönn Gunnarsdóttir og Ásta Kristín Hauksdóttir. Á sýningunni verða málverk, skúlptúrar, textaverk, ljósmynd- ir og vídeóverk. Sýningin ber nafnið Deputering, sem er“ís- lenskun” á enska orðinu deput. Sem flestir eru hvattir til að koma á opnunina til að kynna sér starfssemi Skúla um leið og að njóta grasrótar íslensks lista- lífs. Vinnustofusýningin opnar kl. 15 laugardaginn 13. ágúst en almennur opnunartími sýn- ingarinnar er fimmtudaga til sunnudaga frá 14-17. Sýningin stendur til 28. ágúst.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.