blaðið - 19.08.2005, Blaðsíða 6

blaðið - 19.08.2005, Blaðsíða 6
6 i INNLENDAR FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 blaöíð >. 1,11 ----------- VeirA frú 49.900 án vsk. ís-húsid 566 6000 Kjarasamningar rikisstarfs- »_2t ■ »15X5 A Samninga- IjBrHIÍIftOftÍrlltlO ferliðlangt fylgjsf með FL GrOUp Tæknival Auglýst eftir eldrafólki í vinnu Síminn hjá starfsmanna- stjóra stoppar ekki „Umsóknirnar komu í bunkum og það eru stöðugar fyrirspurnir”, segir Guðrún Kristinsdóttir, starfsmanna- stjóri Húsamiðjunnar, en fyrirtækið auglýsti á dögunum eftir eldra fólki til vinnu. „Það er búið að vera mjög mikið að gera hjá mér síðustu daga og síminn stoppar ekki“, segir hún ennfremur. Guðrún gerir ráð fyrir að um 50 umsóknir um vinnu hafi borist fyrir- tækinu frá því að auglýsingin birtist um síðustu helgi og fjölmargir hafi haft samband og spurst fyrir. Hún segir að viðbrögðin hafi verið fram- ar björtustu vonum og alltaf mjög já- kvæð. Þannig hafi meðal annars ein eldri kona fært henni blóm í gær. Eldra fólk í erfiðleikum á vinnumarkaði Blaðið sagði frá því í gær að eldra fólk ætti erfitt uppdráttar á vinnu- markaði um þessarmundir. Guðrún tekur undir það og telur að góð við- brögð megi rekja til þess. Hún telur að margir hafi notað tækifærið þeg- ar auglýsingin var birt og ákveðið að Húsasmiðjan auglýsti eftir eldra fólki í vinnu á dögunum.„Viðbrögð framar björtustu vonum"segir starfsmannastjóri kanna sína stöðu. Meirihluti þeirra sem hafi sett sig í samband við hana hafi velt því fyrir sér að skipta um vinnu af einhverjum ástæðum en ekki lagt í það sökum ástandsins á vinnumarkaði um þessar mundir. „Sumir hafa ekki talið sig gjald- genga á vinnumarkaði. Aðrir ha jafnvel sótt víða um og fengið mik afneitunum”, segir Guðrún. Hún t ur að þegar auglýsingin birtist ha margir af þessum einstaklingu ákveðið að hafa samband og kani möguleika sína. Samninganefnd ríkisins hefur lok- ið 34 af 43 kjarasamningum sem ná til rúmlega 17 þúsund ríkisstarfs- manna. Það á því eftir að ljúka níu samningum en þar af eru tvö félög með bundna samninga til ársloka, Læknafélag íslands og Landssam- band slökkviliðs- og sjúkraflutn- ingamanna. Ríkisstarfsmenn eru um 12% af vinnandi fólki í land- inu. Fjármálaráðuneytið segir að á heildina virðist launaþróun þeirra í þessari samningalotu vera að þróast með svipuðum hætti og á almenn- um markaði. ■ Kaupum sem aldrei fyrr fslendingar keyptu rúmlega 10% meira af vörum í júlí síðastliðnum en i sama mánuði i fyrra. Mest aukn- ing var í sölu á áfengi sem jókst um tæp 7% milli ára. Ennfremur var keypt um 2% meira af lyfjum í júlí en á sama tímabili í fyrra. Þetta kem- ur fram í tilkynningu frá rannsókn- arsetri verslunarinnar. Ennfremur kemur þar fram að verð á hefðbund- ini dagvöru hefur lækkað um rúm 5% síðustu tólf mánuði meðan verð á áfengi hefur staðið í stað. Hins veg- ar hefur verð á lyfjum hækkað um rétt rúmt 1 prósent. Þá kemur fram að meðalvelta síðustu þriggja mán- aða sé ennfremur umtalsvert meiri en meðalvelta sömu mánaða í fyrra. Segir að þessi veltuaukning skýrist af mikilli þenslu en einnig þykir verð á dagvöru um þessar mundir tiltölulega hagstætt neytendum. ■ taeknivai.is og taktu þátt í TOSHIBA- týpuleiknum og þú gætir unniö fartölvu. Stúikurnar f Nylon sungu í gær fyrir Breið- hyltinga og minntu um leið á að verið er að selja vinabönd merkt nafni sveitarinn- ar. Allur ágóði af sölu bandanna rennur til styrktarféiags krabbameinssjúkra barna. Þau kosta 500 krónur. I fyrradag birti FL Group uppgjör fyrri árshelmings eftir lokun Kaup- hallarinnar. Þann daginn voru hins vegar viðskipti með bréf félagsins sem námu 174 milljónum króna og hækkaði gengi þess við það um tæp fjögur prósent. I kjölfar kaupanna fór umræða af stað um að kaupin væru á vegum innherja sem vissu að uppgjörið myndi sína mesta hagnað félagsins frá upphafi. Fjármálaeftirlitið segist náttúru- lega vita af þessu máli. Á næstu dögum verður metið hvort það telji tilefni til þess að hefja sérstaka rann- sókn. Hvað það er sem þarf til þess að tilefni gefist fékkst ekki uppgefið en Fjármálaeftirlitið mun bíða eftir rannsókn Kauphallar fslands. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar fslands, sagði í gær að viðskipti miðvikudagsins yrðu ræki- lega könnuð með tilliti til hugsan- legra innherjaviðskipta. Viðskiptin í gær eru þó undir mörkum Kaup- hallarinnar um tilkynningarskyld viðskipti. Uppgjörið undir væntingum Þrátt fyrir að uppgjör FL Group hafi sýnt mesta hagnað félagsins frá upp- hafi er það undir væntingum grein- ingardeildar fslandsbanka. Frávikið skýrist nær alfarið af minni tekjum af ferðaþjónustu á fjórðungnum en reiknað var með. Þessi tekjuliður lækkaði um 4,7% á milli ára en hafði hækkað á milli ára á síðustu átta árs- irvæntingumLandsbankansþannig fjórðungum. að greinilega bjuggust fjármálafyrir- KB banki segir hagnaðinn í takt við væntingar greiningardeildar sinnar. Af- koma af ferðaþjónustunni var þó mun lakari en bankinn gerði ráð fyrir. Framlegð og afkoma hins hefð- bundna rekstrarhluta FL Group er því undir spá bankans. Uppgjör FL Group var einnig und- tækin við meiru af fé- laginu. Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri FL Group, sagði í viðtali við Ríkisútvarpið í gær að hún kannaðist ekki við að innherjaviðskipti hafi verið með bréf í félaginu. ■ Bensín oft dýrara Hjá fjármálaráðuneytinu hafa menn komist að því að bens- ínverð hefur oft verið dýrara en það er um þessar mundir. Reyndar er sagt að bensín hafi verið dýrara að raunvirði, þ.e. miðað við laun í landinu. Þá er sagt að á síðustu fimm árum hafi raunverð á bensíni farið mjög lækkandi og að árið 2003 hafi það verið lægst miðað við síðustu fimmtán árin á undan. Síðan þá hafi verð hækkað nokkuð en ekki umtalsvert. Er bent á að meðaleyðsla á bensíni á hvern ekinn kíló- metra hafi minnkað með tilkomu sparneytnari bifreiða. Þannig hafi meðaleyðsla heimilanna vegna aksturs minnkað meira en sem nemur raunlækkun á bensínverði Jafnframt hafi akstur á hvern bíl minnkað enda eru þeir orðnir fleiri en ökumenn. Verðbólga yf- ir 4% á næstu mánuðum? Þar sem útlit er fyrir að elds- neytisverð og íbúðaverð haldi áfram að hækka næsta mánuð, sem og að útsölum er að ljúka, spáir Islandsbanki því að vísitala neysluverðs hækki um 0.7% milli ágúst og september. Segir bankinn að ef spáin gangi eftir muni verðbólga hækka lítilsháttar og að údit sé fyrir að hún fari yfir 4% tímabundið á næstu mánuðum. Góðu frétt- irnar eru hinsvegar að hækkun á íbúðaverði hefur verið önnur af tveimur stóru ástæðum verð- bólgu að undanfhrnu. Nú er gert ráð fyrir að verð íbúða nái ákveðnu jafnvægi á næstu mán- uðum og muni standa í stað og því ekki leiða til hækkunar verðbólgu. Slæmu fréttirnar eru að hinn stóri þátturinn í verðbólgunni er eldsneytis- verð sem gæti haldið áfram að hækka á næstu mánuðum. I ljósi þessa spáir Islandsbanki því að verðbólga muni mælast í kringum 3% í lok þessa árs. HVAÐA TYPA ERT ÞU? Toshiba Satellite M40X-105 er mín týpa Verb: 2.569 kr. ámán.* Verð: 89.700 kr. TM tölvukaupalán 100% lán til allt að 36 /^jiÍNmánaöa á 9,5% '<S' vöxtum. Einnig býðst fartölvutrygging fyrir lántakendur. Eg vil að tölva sé ekki bara tæki sem nýtist mér í skólanum. Fyrir utan allt þetta hefðbundna þá get ég einnig horft á DVD myndir á WideScreen skjá, tekið bæði Ijósmyndir og videóskrár beint inn á minniskortalesarann í tölvunni og brennt þetta svo á geisladisk. Þetta er flott vél á góðu verði. Kaupauki: Fartölvubakpokí, mús og MS OneNote fylgir öllum Toshibatölvum. » Kiktu a i) loftkœling

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.