blaðið - 19.08.2005, Blaðsíða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 MaöíA
Fyrsta opinbera heimsókn páfa
Óblíðar móttökur veðurguða þegar BenediktXVI hélt til Kölnar í sínafyrstu erlendu heim-
sókn síðan hann tók við embœtti.
Benedikt XVI páfi kom til Kölnar í
heimalandi sínu Þýskalandi í gær til
þess að vera viðstaddur ungmenna-
hátíð kaþólikka þar í borg. Mikill
fjöldi hafði safnast saman á flugvell-
inum til að fagna páfanum við kom-
una. Þá tóku kanslari Þýskalands,
Gerhard Schroeder, og forsetinn,
Horst Koehler, á móti honum og
fylgdu honum úr flugvélinni. Um
er að ræða fyrstu opinberu erlendu
heimsókn páfans frá því hann tók
við embætti í apríl síðastliðnum.
Upphaflega hafði verið fyrirhugað
að forveri Benedikts, Jóhannes Páll
II, yrði viðstaddur athöfnina en
hann lést sem kunnugt er fyrr á ár-
inu.
Kollhúfan fauk af
Þegar páfinn sté úr flugvél sinni
fauk kollhúfa hans af honum en
mikill vindur var í Köln í gær. Hann
svipaðist um eftir húfunni nokkrar
sekúndur en gekk svo af stað niður
flugbrautina. Slæða hans feyktist
þó í sífellu fyrir andlit hans og þótti
mörgum atvikið afar neyðarlegt.
Ýmsum þótti og athyglisvert að páf-
inn var íklæddur rauðum skóm við
hinn hefðbundna hvíta kufl sinn.
Páfinn kyssti ekki jörðina við kom-
una eins og Jóhannes Páll II gerði
frægt í heimsóknum sínum. Hann
veifaði hins vegar og brosti til mann-
fjöldans sem fagnaði dyggilega og
hrópaði nafn hans á ítölsku, Bene-
detto. Þegar Benedikt XVI ávarp-
aði mannfjöldann kvaðst hann
hæstánægður með móttökurnar og
talaði um Þýskaland sem ástkært
heimaland sitt.
Ungmennahátíð kaþólikka var
sett á laggirnar af Jóhannesi Páli II
og er haldin á þriggja ára fresti. Þús-
undir ungra kaþólikka hafa safnast
saman i Köln um þessar mundir til
að taka þátt í hátíðarhöldunum. Há-
punktur hátíðarinnar verður fjölda-
messa undir berum himni á sunnu-
dag sem páfinn mun stýra. Búist
er við því að allt að milljón manns
verði viðstaddir messuna.
Bylgja nýrrar trúar
Páfinn hefur iðulega lýst yfir hryggð
sinni á sífellt minnkandi hlutverki
kirkjunnar í Evrópu. Segist hann
vonast til að heimsókn hans til Þýska-
lands eigi þátt í því að snúa við þeirri
þróun og koma af stað bylgju nýrrar
trúar meðal ungs fólks, sérstaídega
æskunnar í Þýskalandi og Evrópu.
Páfinn hyggst einnig hitta leiðtoga
úr röðum annarra trúarhópa í ferð
sinni, m.a. múslima og gyðinga.
Heimsókn hans í samkunduhús
gyðinga í Köln, sem var endurbyggt
eftir síðari heimsstyrjöldina, verður
aðeins önnur heimsókn leiðtoga kaþ-
ólsku kirkjunnar í trúarhús gyðinga
í sögunni.
Fjölmiðlar hafa fjallað um að
hinn nýkjörni páfi sé mun feimnari
persóna en Jóhannes Páll II og segja
hann ekki kunna vel við sig í miíd-
um fjölda. Eru menn því spenntir
að sjá hvernig Benedikt XVI, áður
Joseph Ratzinger kardináli, tekst til
i Þýskalandi. ■
Kollhúfa Benedikts XVI fauk af honum er
hann sté úr flugvél sinni.
Hvass vindur feykti hettu páfa fyrir andlit
hans svo útsýnið var ekki burðugt þegar
hann gekk eftir rauða dreglinum.
Útsalan hefst í daq
SICATABUÐIN
FERÐAVERSL UN
Foxafeni 6 • 108 Reykjovfk • sími 534 2727 • e-moil: skotobudin@skolobudin.tom • www.skotabudin.ton
Krókódílar lækn-
ingin við HIV?
Vísindamenn í Ástralíu hafa upp-
götvað að krókódílar bera í sér
mótefni sem getur drepið HlV-veir-
una. Eru nú hafnar umfangsmiklar
rannsóknir vegna þessa með það
fyrir augum að geta unnið mótefn-
ið úr krókódílunum svo hægt sé að
lækna menn af veirunni. Onæmis-
kerfi krókódíla er mun sterkara en
manna og hindrar það að sjúkdóm-
ar, sem reynast öðrum dýrum ban-
vænir, hafi áhrif á þá.
Upprunalegu rannsóknirnar á
ónæmiskerfi krókódíla frá 1998
sýndu að mótefni í líkama þeirra
drápu bakteríur sem ekki var hægt
að drepa með pensillíni. „Ef þú tek-
ur tilraunaglas með HlV-veirunni
og bætir í það blóðvatni úr krókódíl
mun það hafa miklu meiri áhrif en
blóðvatn úr manni. Það getur drepið
miklu fleiri HIV-veirur“, sagði ástr-
alski vísindamaðurinn Adam Brit-
ton við Reuters-fréttastofuna. Brit-
ton sagði að ónæmiskerfi krókódíla
starfaði öðruvísi en ónæmiskerfi
manna að því leyti að það réðist sam-
stundis beint að veirunni eftir að
sýking hefði borist í líkamann.
Undanfarnar tvær vikur hafa
Britton og rannsóknarhópur hans
safnað blóði úr villtum fönguðum
krókódílum, jafnt ferskvatns- sem
saltvatnstegundum. Eftir að krókó-
díll hefur verið fangaður og kjálkar
hans ólaðir saman er vísindamönn-
um kleift að taka úr þeim blóð
úr stórri æð, svonefndri bugðu, á
hnakka dýrsins. Vísindamennirn-
ir vonast eftir að geta safnað nægu
blóði úr krókódilum til að geta ein-
angrað mótefnið og út frá þvi þróað
lyf til notkunar fyrir menn. Britton
varaði þó við of mikilli bjarstýni
strax. „Það er enn mikið verk óunn-
ið. Það gæti tekið nokkur ár áður en
við komumst á það stig að geta sett
eitthvað á markað“, sagði hann. ■