blaðið - 19.08.2005, Side 16
16 I HELGIN
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 blaðið
Brot afþví besta á Menningarnótt
Menningarnótt haldin í tíunda sinn
.Menningarnótt var haldin í fyrsta sinn
árið 1996 og við erum því að halda hana
nú í 10. sinn í ár“, segir Sif Gunnarsdótt-
ir einn af skipuleggjendum Menningar-
nætur.
„Hún hefúr stækkað frá því að vera
nokkurþúsund mannapen borgargleði
yfir í að verða ein stærsta hátíð landsins.
Viðburðum hefur fjölgað alveg gríðar-
lega og það eru alltaf fleiri fyrirtæki,
stofnanir og félög sem vilja tengjast
hátíðinni. Samfara þessu koma auðvit-
að mun fleiri gestir. Úrvalið er líka svo
mikið og allir ættu að finna eitthvað
við sitt hæfi“, segir Sif.
„Við erum ofboðslega ánægð með dag-
skrána. Undirbúningurinn er auðvitað
mjög mikill og við byijuðum strax eftir
síðustu Menningarnótt að skipuleggja
eitthvað. Síðan var haldinn fundur í des-
ember í fyrra. Stjórn Menningarnætur
byijaði að hittast skipulega í mars“, seg-
ir Sif og bætir við að það séu margir sem
koma að hátíðinni. Miðlægt eru sex
manns að stjórna en hundruð manna
koma að henni á einn eða annan hátt.„
Hér er brot af þeirri gríðarlega fjöl-
breyttu dagskrá sem verður á morgun.
Hægt er að nálgast alla dagskrána á
www.reykjavik.is.
10.00 - Reykjavíkurmaraþon hefst.
Skemmtiskokk byrjar kl. 11:00 og mun
borgarstjóri, Steinunn Valdís Oskars-
dóttir, ræsa hlaupið. Klukkan 11:10
fer 10 kílómetra hlaup fara af stað. Öll
hlaup hefjast við íslandsbanka við Lækj-
argötu. Þar verða einnig skemmtiatriði
fyrir alla fjölskylduna.
11:00 - Litasamkeppni kátra krakka
í Eymundsson í Austurstræti. Allir
krakkar mega koma og lita myndir.
Besta myndin verður vahn klukkan
16:00.
12:00 - Útimarkaður við Kaffi
Hljómalind. Flóamarkaðsdót, léttar
veitingar og plötusnúðar.
12:00 - Jón bakari í Bakarameistaran-
um sýnir súkkulaðiskraut í Iðu á heila
tímanum til klukkan 20:00. Þá verður
brúðkaupsstertan skorin og allir fá að
smakka.
13:00 - Lærðu að búa til hljóðfæri í
Alþjóðahúsinu. Til klukkan 15:00 verð-
ur námskeið í hljóðfæragerð og geta
þátttakendur notað hljóðfærin sín í
karnivalgöngu Alþjóðahússins klukk-
an 20:00.
14:00 - Krúttslútt. Tónlistar- og
myndlistafólk sem tók þátt í listahátíð-
inni Krútt í Nýlistasafninu í ágúst mun
stíga á stokk f safninu og þar verður
mildð um fjör og skemmtun.
14:00 - Vísindagaldrar. Siggi efna-
fræðingur mun sýna börnum skemmti-
lega efnafræðigaldra við Sturlugötu í
Vatnsmýrinni.
15:00 - Ragnheiður Gröndal og Hauk-
ur Gröndal spila og syngja íslensk þjóð-
lög í eigin útsetningu við Islenska erfða-
greiningu við Sturlugötu.
16:00 - Tónleikar á Prikinu. Pönk-
bandið Rass, Lights on the Highway og
fleiri.
17:00 - Tilfinningatorgið. Gjörningar,
fyrirlestrar og tækifæri fyrir okkur öll
að tjá tilfinningar okkar. Stjórnandi El-
ísabet Jökulsdóttir. Víkurkirkjugarður,
við horn Aðalstrætis og Kirkjustrætis.
18:00 - Tónlistarveisla í Tjarnarbíói.
Dagskrá til Idukkan 22:00. Fjöldinn all-
ur af Jiljómsveitum og tónhstarmönn-
umkomafram.
19:00 - Tónleikar með tónelskum
meðlimum Hjálpræðishersins álngólfs-
torgi.
20:00 - Sígaunateboð. Töffadrykkir,
tónhst og magadans. Feng Shui tehúsið
við Frakkastlg.
21:00 - Fönksveitin Jagúar heldur
uppi stuðinu á útipallinum við Lands-
bankann.
22:00 - Tangódiskótek í Iðnó við Von-
arstræti ■
Draugar
i miðbæ
Reykjavíkur
Á Menningarnótt mun Trygging-
armiðstöðin bjóða ungum sem
öldnum til ferðar um sögu íslenskra
drauga f Aðalstræti 6 í samstarfi
við Draugasetrið á Stokkseyri.
Djákninn á Myrká, uppvakningar
og sjódraugar ásamt móra og skottu
munu mæta f eina mögnuðustu
draugasýningu sem haldin hefur
verið hérlendis. Og gætið ykkar:
Þetta er engin lognmolla heldur
ferð um hýbýli alvöru drauga. Þér
gæti átt eftir að bregða hastarlega og
hárin gætu risið á hnakkanum.
Að gefnu tilefni eru viðkvæmar
sálir varaðar við sýningunni
og einnig er mælt með því að
hjartveikir láti hana framhjá sér
fara. Börn yngri en 8 ára verða að
vera í fylgd með fullorðnum.
Draugahúsið verður opið frá kl. 13
til 21 og er aðgangur ókeypis. ■
FULLT STARF
Domino's Pizza óskar eftir bílstjórum í fullt
starf. Um er að ræða störf í verslunum okkar
og í Þjónustuveri.
Lögð er áhersla á aö skapa öllum starfsmönnum öruggt og
þægilegt umhverfi þar sem hver starfsmaður fær að njóta sín.
Miklir möguleikar eru á starfsþróun innan fyrirtækisins og allir
vegir færir fyrir duglega og áhugasama einstaklinga.
Frábær starfsandi og skemmtilegur
vinnustaðurfyrirduglega og hressa
einstaklinga.
Hægt er að sækja um í verslunum eða á
heimasíðu Domino's, www.dominos.is.
Umsækjendur þurfa að
vera 18 ára eða eldri.
Gaman að dansa
-vantar dansmenningu á sumrin
WWW.ynja.is Hamraborg 7, Kópavogi, Sími 544 4088
undirfataverslun
fyrirallarkonur
NÝ SENDING
af Vanity Fair
Frábær verð og gæði.
Persónuleg þjónusta
Danshópurinn Street Style
mun troða upp víðs vegar
um borgina á morgun í til-
efni Menningarnætur.
„Ég kalla þetta Urban dans sem
er í raun sambland af street dansi,
smá hipp-hopp, svo notum við ele-
ment úr nútímadansi”, segir Eva
Rós Guðmundsdóttir, frumkvöðull
danshópsins. Hún lærir nú dans í
Englandi og útskrifast næsta vor.
„Eg er hlynnt því að dansinn sé
hafður eins fjölbreyttur og mögu-
legt er og hreyfingar hafðar ólíkar.
Við höfum samið sjö mínútna dans
þar sem ég gerði mestu „kóreógraf-
íuna.“ Annars vil ég að allir komi
með sínar hugmyndir. Stelpurnar í
hópnum heita Sigurrós, Eyrún, Vala,
Þorgerður og Sigyn”, segir Eva.
Hún segir þær stöllur hafa fengið
þessa hugmynd að stofna dansflokk
vegna áhuga á því að sýna dans og
skort á dansmenningu hér á landi á
sumrin.
„Okkur finnst svo gaman að dansa
en það er bara ekki Soðið upp á mik-
inn dans hér á sumrin. Núna erum
við að vinna í því að fá flotta bún-
ingaþví dans erþrískiptur; dansinn
sjálfur, búningar og svo tónlistin.
Við erum aðallega með Missy Elliot
mix við þennan dans og tvö önnur
lög“, segir Eva.
Áhugasamir geta séð Street Style
dansa á eftirfarandi stöðum á morg-
un:
Ingólfstorgi, kl. 13:45
Skífan, kl. 17:30
Sólon, kl. 18:30
Skífan, kl. 19:30
Sólon, kl. 20:30
Nasa, kl. 23:30 ■
Utibíó á Menningarnótt
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykja- úr bæjarlífi Reykjavíkur frá seinni kvikmyndagerðarmaður, var einn
vík stendur fyrir útibíói á Menning- hluta fimmta áratugarins. Myndin helsti brautryðjandi íslenskrar kvik-
arnótt. Heimildarmyndinni Reykja- er án hljóðs en tvær ungar hljóm- myndagerðar og eftir hann liggur
vík vorra daga eftir Óskar Gíslason sveitir voru fengnar til að semja tón- fjöldi kvikmynda sem varðveita
verður varpað á Héraðsdómshúsið list við myndina, rokkhljómsveitin mikilvægar heimildir fyrir íslenska
við Lækjargötu frá klukkan 21.00 til Bob og rafdúóið Atli og Leó. menningu.
23.00. í myndinni má sjá myndskot Óskar Gíslason, ljósmyndari og