blaðið - 19.08.2005, Síða 18
18 I HEIMILI
MIÐASALAISKIFUNNIBT AK OG SELF
www.concert.is í síma 511 2255
20% aftláttur afðllum viáburium
Conctrt tf greltt tr mtð MatterCard
Kyf«r«íð ykt U' Ultoð 09 (ónMuKUgtlirt C®ní«rl I v*t
EFTIR tvær vikur
ERTU BÚINN AÐ
FÁ ÞÉR NIIÐA?
1 UNCH
Lytta i
fataskáp
Flestir kannast við það að vanta
meira pláss í fataskápnum. Alveg
sama hve fataskápurinn er stór
þá er einungis hluti hans nýttur.
Með því að nota fatahengislyftu
er skápurinn nýttur að fullu.
Efri skápar á fataskápum eru oft
notaðir fyrir einskis nýtt dót sem
mætti alveg eins setja í geymslu.
Með fatahengislyftunni er hægt að
hafa skúffur neðst í skápnum, fata-
stöng í miðju hans og lyftuna efst.
Með því er allur skápurinn nýttur
og oftast veitir ekki af.
Fatafellan virkar
Ingimundur Hákonarson, verslunar-
stjóri Hegas, kallar lyftuna fatafellu
og segir að hún sé einstaklega hentug
og þægileg. „Fatahengislyftur eru yf-
irleitt notaðar til að nýta skápa alveg
upp í loft, allt upp í 2.50 cm á hæð.
Þetta eru mjög hentug tæki og þetta
er hægt að fá í mismunandi breiða
skápa. Þetta virkar þannig að þú tog-
ar niður stöngina og þá gengur lyft-
an fram og út úr skápnum. Lyftan er
með undirleggi þannig að hún rekst
ekki í hurðir á skápum.“
Fer vel með fötin
Það geta allir notað lyftuna sama í
hvaða hæð þeir eru og Ingimundur
staðhæfir að það fari ekkert verr
með fötin að vera á lyftunni heldur
en á fataslá. „Þetta er bara fataslá
sem þú getur dregið niður. Fötin eru
sett á herðatré og herðatrén hengd
á þetta. Það er ekkert mál að festa
lyftuna upp þar sem leiðbeiningar
fylgja og einungis þarf skrúfjárn til.“
Fatahengislyftan fæst til dæmis í He-
gas og H.G. Guðjónsson.
HPI Savage fjarstýrður bensínbíll.
Fáanlegur með þremur vélastærðum 3,5,4,1 og 4,6cc.
Tómstundahúsið
Nethyl 2,
sími 5870600,
www.tomstundahusid.is