blaðið - 19.08.2005, Blaðsíða 24
24 I MATUR
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 blaóið
Pizzur eru ekki bara pizzur
úttekt á vinsœlasta skyndibita landans
Pizzan hefur löngum verið vin-
sælasti skyndibitamatur landans.
Flestir, ef ekki allir, hafa sína
skoðun á því hvar bestu pizzurn-
ar fást og hvaða álegg sé best. Sagt
er að fyrsta pizzan hafi verið með
tómatsósu, mozzarella-osti og
basilíkulaufum og hafi verði gerð
fyrir drottningu ftalíu, Marg-
arítu. Frá þeim degi hefur þessi
blanda verið þekkt sem Margaríta.
Pizzan kom þó heldur seinna til
íslands eða fyrir rúmlega tuttugu
árum. Síðan þá mætti í raun segja
að pizzan hafi tekið við sem þjóð-
arréttur íslendinga enda flestir
sem neyta hennar reglulega. Blað-
ið fór á flakk og bragðaði nokkrar
ljúffengar pizzur.
svanhvit@vbl.is
Rossopomodoro
Rossopomodoro er huggulegur, ítalskur veitinga-
staður að Laugavegi 4oa sem er þekktur fyr-
ir einstaklega vel heppnaðar pizzur. Á
staðnum er einnig úrval annarra rétta.
Pizzurnar eru eldaðar í ofni sem er
hlaðinn fleiri hundruð steinum úr
eldfjalli í Napolí og fengnir voru
menn þaðan sérstaklega til að
gera ofninn. Pizzurnar eru eld-
aðar eftir gamalli aðferð en
ofninn nær 8oo gráðu hita sem
gerir það að verkum að þær
bakast hratt en vel. Vinsælasta
pizzan á matseðlinum heitir
Ventura og er með Mozzarella
osti, parma hráskinku, rifnum
parmesan og klettasalati. Ventura
er einstaklega góð á bragðið, létt og
fer vel í maga. Það er í raun eins og
hvert álegg passi frábærlega saman og
úr því verður nánast hinn fullkomni biti.
Ventura kostar 1700 krónur.
Hrói Höttur
Hrói Höttur hefur fyllt maga lands-
manna í fimmtán ár og er alltaf
jafn vinsæll. Margir smökkuðu
sína fyrstu pizzu hjá Hróa og óhætt
er því að segja að Hrói Höttur eigi
marga dygga aðdáendur. Á mat-
seðli þeirra er mikið úrval
alls kyns rétta en auk
pizza má fá hamborg-
ara, fisk, lamb og
pítu. Ein vinsælasta
pizzan þeirra er hin
bragðmikla Juventus sem er
með sósu, osti, pepperoni, svepp-
um og ananas. Juventus er mjög
góð og saðsöm og ætti því að metta
flesta. Bragðið er ferskt og kryddið
fullkomnar annars frábæra pizzu.
Juventus, 15 tommu, kostar 2110 í
heimsendingu en ef hún er sótt er
40% afsláttur og kostar hún þá 1266
krónur.
Eldsmiðjan
1 Þingholtunum berst jafnan angan eldbakaðra
pizza enda hefur Eldsmiðjan séð nágrönn-
um sínum fyrir mat síðan árið 1986.
Eldsmiðjan er hrár en vinalegur
staður á Bragagötu 38a. Orðspor
Eldsmiðjunnar hefur borist
víða og viðkvæðið
an að pizzurnar frá
séu bestar. Með vinsæl-
ustu pizzunum þeirra
er Pepperoni special en
hún er með pepperoni,
jalapeno, rjómaosti, an-
anas, ólífum, hvítlauk,
sveppum og kryddi sem
er bragðgóð og má segja
að rjómaosturinn setji
punktinn yfir i-ið. Pizz-
an er hefðbundin með ljúf-
fengri sósu og enginn ætti
að vera svikinn af þessari góm-
sætupizzu. Pepperoni special, 12
tommu, kostar 1600 krónur.
Rizzo Pizzeria
Rizzo Pizzeria er ársgamall pizza-
staður að Hraunbæ 121 en hefur
samt sem áður þegar vakið athygli
fyrir bragðgóðar og ferskar pizzur.
Pizzurnar eru eldbakaðar að
ítölskum hætti og góðar
eftirþví. Ámatseðli
Rizzo Pizzeria
má sjá mikið
úrvalpizza
en sú vin-
sælasta er
Toscana. Tosc-
ana er með pepper-
oni, jalapeno, rjómaosti,
ananas, ólífum, hvítlauk,
sveppum og oregano og er einkar
bragðgóð. Botninn er þunnur og sós-
an er létt en góð. Pizzan er mjög sér-
stök en engu að síður bragðmikil og
fersk. Án efa er vert að fylgjast með
þessum nýja en ferska pizzastað.
Toscana, 16 tommu, kostar 2140
krónur.
Hornið
Hornið hefur fyrir löngu öðlast
stað í sögu Reykjavíkur enda
þjónað borgarbúum í 26
ár. Hornið er og hefur
verið staðsett að Hafn-
arstræti 15. Pizzurnar
þar eru ætíð vinsæl-
ar en auk þess er
úrval ýmissa rétta
í boði. Staðurinn
er heimilisleg-
ur með lifandi
blómum og vina-
legum andlitum.
Vinsælasta pizz-
an á Horninu er
Pizza Calzonesem
er hálfmánapizza
með osti, skinku og
sveppum. Hálfmán-
inn er góður, safaríkur
og mjúkur enda öðruvísi
en venjuleg pizza. Ákveð-
inn ferskleiki umleikur mán-
ann enda er sósan létt og sum-
arleg. Pizza Calzone, 12 tommu, kostar
1480 krónur.
Domino s pizza
Domino's pizzurnar komu á mark-
aðinn árið 1993 og segja má að þær
hafi komið af stað byltingu í heims-
endum pizzum. Flestir hafa ein-
hvern tímann bragðað Domino's
pizzu enda fyllist landinn pizzulöng-
un þegar víðfrægar mega-og gígavik-
ur skella á. Á matseðli Domino's er
mikið úrval pizza auk þess
sem hægt er að velja
sér álegg á pizzuna
sjálfur. Vinsælasta
pizzan á matseðl-
inum er Domino's
Extra sem er með •>'
gouda/mozarella
ostablöndu, papriku,
lauk, pepperoni, skinku,
nautahakki, svepþum, ólíf-
um og aukaosti. Domino's Extra
er þykk og saðsöm enda vel útilátin
og matarmikil. Grænmetið á henni
er nýtt og ferskt og sósan einkar
bragðgóð. I heildina er Domino's
Extra því góð pizza sem ætti að falla
flestum í geð. 15 tommu Domino's
Extra pizza kostar 1100 krónur nú
enda er gígavika en venjulega kostar
hún 2420 krónur.