blaðið - 26.09.2005, Síða 17
Rómantískur
sígaunastíll
næsta sumar
Helstu tískuhönnuðir heims eru
ekki þekktir fyrir að tvínóna
við hlutina og eru nú flestir
farnir að kynna línuna fyrir
vor og sumar 2006. Þær sem
vilja vera vel með á nótun-
um geta því nú þegar farið á
spá í hvernig flíkur ættu að
fylla skápana næsta sumar.
Miðað við þær sýningar sem
nú þegar hafa verið haldnar
virðast áhrif frá Suður-Ameríku
verða ríkjandi næsta sumar
og munu Aff íkuáhrifin sem
komust á flug í sumar víkja
fyrir þeim. Mussur sem minna
á vinnusloppa, síð og víð pils,
víðar skyrtur sem verða teknar
saman í mittið með breiðum
beltum - allt verður þetta í
hámæh. Rykkingar og púffer-
mar sem minna óneitanlega
á rómönsku Amerfku munu
verða eitt það allra heitasta.
Hólkvíðar buxur og hnésíð
pils halda einnig velli. Hvíti
liturinn verður áberandi, mjúkir
pastelhtir og hlutlausir Htir eins
og kremaðir og ljónsbrúnir tón-
ar - í raun alhr náttúrulegir htir.
Skyrtukjólar verða heitir
og mikil áhersla lögð á að
þeir sé þröngir í mittið til
að leyfa því að njóta sín.
Tískuhönnuðir hafa fengið
innblástur frá fyrri tímum
og næsta sumar leita þeir til
5. áratugarins. Gamaldags
blómamynstur ff á þessum tíma
verður til staðar en þó virðist
þessi tilhneiging hönnuða til að
nota þrykkt mynstur á föt vera
að minnka verulega. Mynstrin
verða náttúrulegri og einfaldari.
Á heildina htið verður tískan
ekki ósvipuð þeirri sem var
ríkjandi í sumar sem leið. Þó
verða áhrifin frá Suður-Ameríku
ennþá meira áberandi með öhu
því glingri og skarti sem fylgir.
Frjálslegur sígaunablær með
rómantískum áhrifum verður
því aUsráðandi næsta sumar.
°g
sveigðari
augnhár
Inniheldur m.a.
A og E vítamín sem
næra og móta
augnhárin.
Ilmef nalaus,
of næmisprófaður,
öruggur fyrir viðkvæm
augu og fyrir
linsunotendur.
á aðeins dögum
MAXIMUM GRQWTH*
Fæst í Hapkaupum, snyrtivöruverslunum, og apótekum
M A S C A R A