blaðið

Ulloq

blaðið - 26.09.2005, Qupperneq 30

blaðið - 26.09.2005, Qupperneq 30
30 I ÍÞRÖTTIR MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 2005 blaAÍA Willum Þór Þórsson: Valsmenn glaðir með sumarið Valsmenn geta ekki annað en verið sáttir með sumarið en þeir urðu bikarmeistarar á laugardaginn. Willum Þór Þórsson þjálfari liðs- ins segir liðsheildina vera lykilinn að árangrinum. Valur varð á laugardaginn bikar- meistari eftir æsispennandi leik gegn Fram á Laugardalsvelli. Það var Baldur Aðalsteinsson sem skor- aði sigurmarkið með glæsilegu skoti af löngu færi og kampakátir Vals- menn fögnuðu sigri eftir dramatísk- an úrslitaleik. Valur lenti í öðru sæti í Landsbankadeildinni í sumar og Willum Þór Þórsson þjálfari liðsins var í skýjunum með árangurinn þeg- ar Blaðið hafði samband við hann í gær. „Já við Valsmenn erum mjög glaðir með sumarið, það er auðvitað ekki hægt annað eftir svona árang- ur.“ Valur kom upp úr í. deildinni á síðasta ári en liðið átti góðu gengi að fagna í sumar og sýndi oft á tíðum frábæra leiki og voru þeir eina liðið sem hélt í við íslandsmeistara FH eitthvað fram eftir móti. Bikarmeist- aratitilinn á laugardaginn toppaði svo sumarið: „Já þetta var mjög stór og skemmtilegur dagur, það var svo margt við þennan leik sem var skemmtilegt. Mér fannst við vinna sigur í stúkunni þarna fyrir leik þar sem við troðfylltum stúkuna Vals- megin og þar var frábær stemmning. Svo var leikurinn háður og hann var mjög spennandi. Dramatik og allt í honum og það er gaman að sigra leiki svoleiðis þegar það tekst. Förum í öll mót til að vinna Willum kom til Vals fyrir sumarið eftir dvöl hjá KR en bjóst hann við svona góðum árangri á sínu fyrsta ári með liðið? „Ekkert frekar nei. Ég hugsaði þetta eiginlega aldrei svona langt. Við förum auðvitað af fullum metnaði í öll mót til að vinna þau.“ Valsliðið er skipað mörgum góðum leikmönnum en þrátt fyrir góða einstaklinga er það liðsheildin sem skilar árangrinum: „Jú það er gríð- arlega sterk liðsheild og hugarfarið sem var mjög gott“ sagði Willum. „Menn voru mjög tilbúnir í þetta sumar og ætluðu sér hluti. Það end- urspeglaðist í stemmningunni á vellinum þar sem var mikil barátta og við náðum að nýta okkar helstu styrkleika mjög vel. Við spiluðum þétt, vörðumst vel og gátum sótt hratt sem er eitthvað sem við viljum gera.“ Deildin í sumar var ójöfn og FH rúllaði henni auðveldlega upp. Það var svo hlutskipti Fram og Þrótt- ar að falla. „Já og nei“ sagði Willum, aðspurður hvort deildin hafi spilast eins og hann bjóst við. „Ég bjóst auð- vitað við FH i toppbaráttunni en það var miður að geta ekki veitt þeim harðari keppni og lengur en ella. Þá á ég ekki bara við okkur Valsmenn heldur voru líka þarna tvö til þrjú önnur lið sem gátu vel gert eitthvað og hafa burði til þess.“ Leikmenn fara of ungir út Valur fékk Bo Henriksen til sin í sumar en hann lék fáa leiki með lið- inu og skipti síðan yfir í Fram eins og frægt er orðið. Fyrir utan Bo var Valur ekki með neinn útlending í sín- um herbúðum, ólíkt öllum öðrum liðum í deildinni. Mörgum finnst nóg um en Willum er ekki á sama máli og segir ekki vera of mikið af erlendum leikmönnum hér á landi: „Nei það er aldrei of mikið af góðum leikmönnum. Ef það koma góðir leikmenn þá hef ég ekkert út á það Fótbolti.net/Hafliöi BreiöfjörÖ að setja hvort sem það eru útlending- ar eða ekki. Þetta er alltaf svolítið vandasamt en ég held að sú þróun sé að taka við að menn verði þolinmóð- ari gagnvart því að yngri leikmenn nái að fóta sig fyrr. Mér finnst öllu alvarlegri sú staðreynd að yngri leik- menn, sem skara framúr, séu farnir að fara svona snemma út í atvinnu- mennsku. Liðin í Evrópu og Norður- löndunum eru að sækja þá full unga að mínu mati og ég vil halda þeim lengur á Islandi. Þetta eru strákar sem myndu krydda tilveruna hjá okkur. Maður getur reyndar ekkert sagt við því að menn fari út að elta drauminn, það er bara metnaður." Valur ætlar sér stóra hluti í fram- tíðinni, innan vallar sem utan en nú hefur verið hafist handa á mikilli uppbyggingu á Hliðarendasvæðinu. Willum segir það svo sannarlega vera raunhæft fyrir Val að stefna á íslandsmeistaratitilinn á næsta ári? „Það á alltaf að vera metnaðarmál fyrir félag eins og Val sem er félag sem fer alltaf í mót til að vinna það. Svo er það hitt, þú mátt ekki láta allt fara úr skorðum þó svo að þú vinnir það ekki þetta árið. Þetta er hugsun sem nær yfir lengri tíma en það.“ F'átba/ti Hreiðar lagði grunninn að sigri KA KA gerði góða ferð suður í gær þegar liðið bar sigurorð af ÍR í Austurberginu. Hreiðar Guð- mundsson markmaður KA gerði sínum gömlu félögum lífið leitt og lagði grunninn að 32-25 sigri sinna manna. Magnús Stefánsson var markahæstur í góðu liði KA en hann skoraði átta mörk og Jónatan Magnússon skoraði sex. Olafur Sig- urjónsson og Tryggvi Haraldsson skoruðu báðir sex mörk fyrir ÍR en Gísli Guðmundsson varði 19 skot. Hreiðar gekk til liðs við Akureyr- arfélagið fyrir tímabilið en hann hafði leikið með ÍR við góðan orð- stír og hann sannaði mátt sinn og megin með frábærum leik í Breið- holtinu. „ Já það gekk fínt, ég get ekki annað en verið sáttur með minn leik. Ég fann mig vel og datt í gírinn eftir smá hikst í byrjun en þetta var mjög gott“ sagði Hreiðar í samtali við Blaðið eftir leikinn. KA eru með hörkulið sem er til alls líklegt í vetur og var Hreiðar sammála því að nauðsynlegt væri að hirða stig af liðunum sem eru líkleg til að vera í kringum KA á töflunni: „Já það er hrikalega mik- ilvægt. Þegar maður stefnir á að vera i toppbaráttunni þá verður maður að vinna þessa leiki. Það hefur mikið verið rætt hjá KA að laga útileikjaformið sem mér skilst að hafi ekki verið nægilega gott á síðasta ári og það er eitthvað sem við stefnum á að gera í vetur. Því er mjög gott að byrja útileikina í deildinni í ár með sigri hér gegn ÍR.“ Eins og áður sagði lék Hreið- ar áður með IR og honum leidd- ist ekki endurkoman. „Já það var virkilega fínt að koma hérna aftur. ÍR er flottur klúbbur og ég átti frábæra tíma hérna og ég vona að þeim gangi allt í haginn." Ahyggjur af dómurum Mikið hefur verið rætt um dómara í handboltanum í byrjun timabils og skortur á þeim er orðið alvar- legt vandamál. Dómgæslan í Aust- urberginu í gær var ekki upp á marga fiska og veldur það miklum áhyggjum hversu margir slakir dómarar dæma meðal þeirra bestu hér á landi. Hafsteinn Ingason og Ólafur Sigurjónsson fengu báðir að líta rautt spjald í leiknum í gær, heimamönnum til mikilla ama. Hafsteinn fékk beint rautt spjald fyrir að slá í andlit mótherja sem flestir voru sammála um að væri óviljaverk sem verðskuldaði engan veginn neitt annað en gult spjald. Ólafur fékk aftur á móti reisupass- ann þegar hann fékk sína þriðju brottvísun. Hreiðar vildi sem minnst tala um dómarana en við- urkenndi að hallað hefði á heima- menn í leiknum: „Ég ætla nú ekki að tjá mig um dómarana. Sumt fannst mér þó ansi vafasamt og ég verð að viðurkenna að það hallaði eitthvað á ÍR-inga þessi dómgæsla hér í dag. Eins og rauða spjaldið hjá Hafsteini, þetta var ekki óvilja- verk og hann gæti fengið tveggja leikja bann sem væri bara tómt bull. Það er alltaf leiðinlegt þegar svona kemur fyrir.“ ■ > se.vWa Meistari Alonso Spánverjinn Fernando Alonso varð í gær yngsti heimsmeistari í Formúlu 1 kappakstrinum þegar hann lyfti titlinum í Brasilíu. Alonso er 24 ára gamall og ekur fýrir Renault en hann endaði í þriða sæti i keppninni sem engu að síður var nóg til að tryggja honum sjálfan heimsmeistaratitilinn. Það var aftur á móti Juan Pablo Montoya sem hrósaði sigri í keppninni en liðsfélagi hans hjá McLaren, Kimi Raikkonen varð annar. Ferill Alonso í Formúlunni byrjaði árið 2001 þegar smáliðið Minardi fékk hann til sín. Hann náði engum stigum en þótti þó sýna lipra takta undir stýri. Hann fór til Renault sem reynsluökumaður árið 2002 og keppti hann því ekki í eitt ár en öðlaðist í staðinn dýrmæta reynslu áður en hann varð ökumaður liðsins árið 2003. Ferill hans þar byrjaði vel, hann komst oft á verðlaunapall og vann meðal annars eftirminnilegan sigur í Ungveijalandi. Árið 2004 olh þó vonbrigðum. Jarno Trulh Uðsfélagi hans skákaði honum hvað eftir annað á fyrri helmingi tímabUsins en tók sig svo á án þess þó að vinna mót. Hjóhn fóru svo virkilega sð snúast á þessu ári. Renault hefúr áreiðanlegasta bUinn og Alonso halar inn stigunum. McLaren ökumennirnir sóttu fast að Alonso en hann nýtti sér ítrekuð mistök þeirra og vann hverja keppnina á fætur annarri og er einstaklega vel að tithnum kominn. ■ AÐ LEIKSLOKUM í KVÖLD KL. 21.00 4 (, Knattspyrnusérfræðingarnir Willum og Gummi Torfa fara yfir mestu tilþrifin ásamt mistökunum sem áttu sér stað í leikjum helgarinnar. TRYGGÐU PER ASKRIFT (Sl'MA 800 7000, Á WWW.ENSKI.IS EÐA í NÆSTU VERSLUN SÍMANS. Ensm % B OL T I N

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.