blaðið - 30.09.2005, Blaðsíða 8
zzH?3C0Z0:<2 0'rnJ7J>íDrmi
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 blaftiö
Scttfuwb
{rfu*
adaf
ÍSLENSK BLÓM
m p s&mgm;
r
'bWL Xíjí, ■■ ivf ■: L • c i
ÞU GÆTIR FARIÐ UR KJALKALIÐU/Vl AF HLATRI
"BER HOFUÐ OG HEROAR YFIR ALLAR
GAMANMYNDIR ARSINS. ÚTKOMAN ER FRÁBÆR"
R.H.R. - MALIÐ
l m
V.J.V. - topp5.is
STEVE CARELL
FTHE 40 YEAR-OLD
www.the40yearoldvirgin.com
MEÐ STEVE CARELL ÚR "ANCHORMAN" OG "BRUCE ALMIGHTY"
KOA/IIN í BÍÓ
$r «Œ5>
Friðaráætlun lögð
fyrir kjósendur
Alsírbúar greiddu atkvœði um sáttmála sem gœti bundið enda á
borgarastríð sem geisað hefur í landinu í rúman áratug. Tillögur
um sakaruppgjöf gagnrýndar.
Móöir manns sem hvarf í borgarastríðinu í Alsír heldur á mynd af syni sínum fyrir utan
skrifstofu mannréttindasamtaka í Algeirsborg.
Alsírbúar gengu í gær til þjóðarat-
kvæðagreiðslu sem gæti bundið
enda á borgarastríð sem geisað hef-
ur í landinu í um áratug. Meira en
100.000 manns hafa farist 1 stríðinu
og ekki er vitað um afdrif þúsunda.
Meðal annars eru greidd atkvæði um
áætlanir stjórnvalda um að veita sak-
aruppgjöf föngum sem dæmdir hafa
verið fyrir drápin. Stjórnarandstöðu-
hópar hyggðust sniðganga atkvæða-
greiðsluna þar sem þeir telja að ekki
náist neinar sættir án þess að rétt-
lætinu verði fullnægt. Þeir vilja að
stjórnvöld svari fyrir hvað varð um
þúsundir manna sem hurfu á með-
an átök geisuðu. „Við viljum frið en
fyrst viljum við sannleikann,“ sagði
Malika Silet en bróðir hennar hvarf
í marsmánuði 1997 og hefur ekki
til hans spurst síðan. Vitni sögðust
hafa séð lögreglu nema hann á brott
ásamt fleiri mönnum. „Eru þeir á
lífi? Eru þeir dauðir? Hvar eru þeir?“
sagði Silet og bætti við að hún myndi
ekki taka þátt í atkvæðagreiðslunni.
Mannréttindasamtök hafa einnig
gagnrýnt forsetann fyrir að fara of
hratt í sakirnar og að ekki hafi farið
fram næg umræða um málið.
Friðarsáttmála Abdelaziz Bout-
eflika forseta er ætlað að færa landið
til nútímalegra horfs og efla tengsl
þess við Vesturlönd. Einnig er kveð-
ið á um að fjölskyldur fórnalamba
fái miskabætur. Þeir sem verða sek-
ir fundnir um fjöldamorð, nauðgan-
ir og sprengjuárásir á opinberum
svæðum fá enga sakaruppgjöf.
Ian Pannell, fréttaritari breska rík-
isútvarpsins í Algeirsborg, telur lík-
legt að sáttmálinn verði samþykktur
þar sem þjóðin og efnahagur lands-
ins er búin að fá nóg af langvinnu
borgarastríði. Hann segir að íbúum
landsins sé mjög í mun að segja skil-
ið við blóði drifna fortíðina og halda
lífinu áfram. Margir vilja þó að
glæpir og mannréttindabrot verði
upplýst, hvort sem þeir voru framd-
ir af múslímskum öfgamönnum eða
hernum.
Uppreisnin í Alsír hófst eftir að
herinn stöðvaði fjölflokka þingkosn-
ingar í landinu í ársbyrjun 1992. Þá
stefndi í að Frelsisfylking íslam ynni
sigur en sá flokkur hefur nú verið
bannaður. Innanríkisráðuneytið
telur að enn séu um þúsund virkir
uppreisnarmenn í landinu. ■
Neyöarfundur vegna
Tyrklandsmálsins
Utanríkisráðherrar aðildarríkja
Evrópusambandsins ætla að
halda neyðarfund í Lúxemborg á
sunnudag til að gera lokatilraun
til að leysa þá pattstöðu sem kom-
in er upp vegna aðildarumsóknar
Tyrkja að sambandinu. Bretar fóru
fram á fundinn eftir að sendiherr-
ar ríkjanna hjá Evrópusambandinu
mistókst að ná samkomulagi um
sameiginlegan grundvöll fyrir við-
ræður. Austurríkismenn krefjast
enn að Tyrkjum verði boðið eins
konar aukaaðild að sambandinu í
stað fullrar aðildar. Tyrkir segjast
aftur á móti frekar slíta viðræðun-
um en að semja um eitthvað minna
en fulla aðild. Aðildarviðræður við
Tyrki eiga að hefjast í Lúxemborg á
mánudag og er talið að þær muni
taka um áratug. jg
Frá Istanbúl íTyrklandi.
40 ár í
fangelsi
Ian Huntley mun eyða að minnsta
kosti 40 árum í fangelsi samkvæmt
úrskurði dómara í gær. Huntley fékk
árið 2002 tvöfaldan lífstíðardóm
fyrir morðin á stúlkunum Jessica
Chapman og Holly Wells í bænum
Soham á Englandi. Dómarinn sagði
að Huntley myndi ekki geta fengið
reynslulausn fyrr en árið 2042. Max-
ine Carr, fýrrverandi kærasta Hunt-
leys, sat í fangelsi í þrjú og hálft ár
fyrir að hindra framgang réttvís-
innar. Hún losnaði úr fangelsi í maí
á síðasta ári og hefur farið huldu
höfði síðan. ■