blaðið - 30.09.2005, Blaðsíða 30
30 I ÍPRÖTTIR
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 bla6ÍA
Hver verða valin best annað kvöld?
Knattspyrnumenn, konur jafnt
sem karlar, hittast annað kvöld á
veitingastaðnum Broadway í hinu
árlega uppgjöri liðanna. Á lokahóf-
inu verður kunngjört val á liði árs-
ins í karla- og kvennaflokki og þá
fá markahæstu leikmennirnir sín
verðlaun fyrir gott tímabil. Aðal
viðurkenningarnar verða svo veitt-
ar þegar tilkynnt verður um val
leikmanna á efnilegasta og besta
leikmanni ársins í karla- og kvenna-
flokki. Fastlega er búist við að valið
standi á milli FH-inganna Allan
Borgwardt og Auðuns Helgasonar
í vali á leikmanni ársins í Lands-
bankadeild karla. Það er þó búist
við harðari keppni þegar valið kem-
ur að efnilegasta leikmanninum en
þar eru margir sem koma til greina.
Þar hefur nafn Harðar Sveinssonar
Keflvíkings komið sterkt inn sem
og nafn Davíðs Þórs Viðarssonar
FH-ings. Það gæti því farið svo að
FH-ingar tækju báðar viðurkenning-
arnar í karlaflokki.
I kvennaflokki er búist við að
baráttan standi á milli þriggja leik-
manna í vali á leikmanni ársins.
Þóra B. Helgadóttir, markvörður
Breiðabliks, átti afburðarleiktíð
sem og Laufey Ólafsdóttir úr Val og
Guðlaug Jónsdóttir úr Breiðabliki.
Það þykir næsta öruggt að hin 18 ára
stúlka úr Breiðabliki, Gréta Mjöll
Samúelsdóttir, hljóti viðurkenning-
una efnilegasti leikmaður Lands-
bankadeildar kvenna. „Hún sprakk
út í sumar eins og falleg rós,” sagði
einn viðmælandi Blaðsins í gær um
Grétu Mjöll sem er dóttir Samúels
Arnar Erlingssonar, íþróttafrétta-
manns, og Ástu B. Gunnlaugsdóttur
sem er ein fremsta knattspyrnukona
sem ísland hefur eignast.
Heimir Guðjónsson var valinn
besti leikmaður Landsbankadeildar
karla í fyrra og Allan Borgvardt var
valinn sá besti fyrir tveimur árum
en hann er talinn mjög líklegur til
að hreppa þessa nafnbót í ár. Efnileg-
asti leikmaðurinn í fyrra var valinn
Emil Hallfreðsson sem nú er á mála
hjá enska úrvalsdeildarliðinu Totten-
ham.
Besti leikmaður Landsbankadeild-
ar kvenna í fyrra var valin Laufey
Ólafsdóttir úr Val og hún þykir einn-
ig líkleg í ár. Ásthildur Helgadóttir
hefur þrisvar sinnum verið valin sú
besta, 1996, 2002 og 2003 en Ásthild-
ur hefur oftast verið valinn besti
leikmaður íslandsmótsins í kvenna-
flokki. Margrét Lára Viðarsdóttir,
markahæsti leikmaður deildarinnar
í sumar, var valin efnilegasti leikmað-
urinn í fyrra sem og árið 2003.
Leikmenn í efstu deild í karla-
flokki hafa verið með þessa kosningu
á hverju ári síðan 1984 þegar Bjarni
Sigurðsson, markvörður, var kjörinn
sá besti og Guðni Bergsson var val-
inn efnilegastur. Hjá konunum byrj-
aði þessi kosning árið 1986 og þá var
Kristín Arnþórsdóttir Valsari valin
besti leikmaðurinn og Halldóra Gylfa-
dóttir var valin efnilegust.
Hljómsveitin Á móti sól leikur
fyrir dansi og kynnir kvöldsins verð-
ur hinn eini sanni Hemmi Gunn og
meðal skemmtiatriða verður Le Sing
söngskemmtunin. Húsið opnar fyrir
almenning á miðnætti. ■
KOMIN I BIO!
Fyrstl hluti af þríleik. Diindur fótboltarfiynd
sem híttir í mark og miklu meira en þjað.
SERHVER DRAUMUR
Á SÉR UPPHAF
REYKJAVIK • KEFLAVIK • AKUREYRI
Enski boltinn um helgina:
Verður Liverpool fyrst liða
til að vinna Chelsea?
Á morgun og á sunnudag verður heil
umferð leikin í ensku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu. Áttunda umferð
fer þá fram og hæst ber án efa leikur
Liverpool og Chelsea sem fer fram á
Anfield, heimavelli Liverpool. Á mið-
vikudag gerðu liðin markalaust jafn-
tefli á heimavelli Liverpool í meistara-
deildinni í frekar leiðinlegum leik en
hvort lið átti tvö skot sem hittu mark
andstæðingsins. Chelsea hefur unnið
alla sína sjö leiki til þessa á leiktíðnni
og hefur í þeim skorað 14 mörk og
fengið á sig eitt. Liverpool hefur aftur
á móti aðeins leikið 5 leiki og fengið í
þeim 7 stig. Liverpool hefur skorað 3
mörk og fengið á sig 2, unnið einn leik
og gert fjögur jafntefli. í leik liðanna
í meistaradeildinni sýndi Liverpool
mun betri leik en hinir bláklæddu
Chelsea-menn sem vörðust af afli síð-
ustu mínútur leiksins. Rafael Benitez,
framkvæmdastjóri Liverpool, hefur
látið hafa eftir sér að tapi Liverpool
leiknum á sunnudag þá séu vonir
þeirra um meistaratitilinn foknar
út í veður og vind. Leikur liðanna
á sunnudag hefst klukkan 15.00 og
verður sýndur á sjónvarpsstöðinni
enska boltanum. Við hér á Blaðinu
spáðum Liverpool sigri í meistara-
deildinni í vikunni en það gekk ekki
alveg eftir en við vorum nálægt því.
Við erum þverir og spáum Liverpool
sigri í leiknum á sunnudag -1-0.
Aðrir leikir um helgina eru þessir:
Á laugardag leika Portsmouth-Newc-
astle, Fulham-Manchester United,
Charlton-Tottenham og Blackburn
tekur á móti W.B.A. Sunderland og
West Ham United mætast svo klukk-
an 16.15 á laugardeginum.
Á sunnudeginum hefst fjörið um
hádegi með leik Arsenal og Birming-
ham, aðrir leikir eru Wigan-Bolton,
Aston Villa-Middlesbrough, Man-
chester City-Everton og svo að sjálf-
sögðu Liverpool-Chelsea sem hefst
eins og áður sagði klukkan 15.00.
Allir leikirnir verða sýndir á fótbolta-
stöðinni enski boltinn.