blaðið - 11.11.2005, Blaðsíða 2

blaðið - 11.11.2005, Blaðsíða 2
2 I INWLEWDAR FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2005 blaAÍÖ SUSHI OPNAR1. DESEMBER [LÆKJARGATA] Héraðsdómur: Lögbanns- krafa tekin fyrir í gær Lögbannskrafa Jónínu Bene- diktsdóttur á fréttaflutning Fréttablaðsins var tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærmorgun. Jónína fór fram á lögbann á birtingu tölvupósts úr hennar fórum sem Frétta- blaðið komst yfir. Sýslumaður féllst á kröfuna og búist er við að aðalmeðferð í málinu heíjist í héraðsdómi 29. nóvember nk.. Jónína fer fram á að henni verði borgaðar skaðabætur vegna birtingar blaðsins á tölvu- bréfunum ásamt því að Kári Jónasson, ritstjóri Fréttablaðs- ins, verði dæmdur til refsingar. íbúðalánasjóður Útlán aukast JJtlán fbúðalánasjóðs jukust um 39% í október miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu sjóðsins fýrir októbermánuð sem birt var í gær. Þar segir að heildarútlán sjóðsins í október námu 6,3 milljörðum en þar af voru tæplega 6 milljarðar sem tilheyrðu almennum útlánum og ríflega 300 millj- ónir sem tilheyrðu leiguíbúða- lánum. Sjóðurinn áætlar að heildarútlán fýrir árið 2005 muni dragast saman um 2,4 milljarða og vera alls 72,6 milljarðar. Færri lánaumsóknir og minni spenna á fasteigna- markaði eru talin vera helstu ástæður fyrir samdrættinum. Rannsóknir á erfðatengdum hjartaáföllum vekja athygli vestra Niðurstöður rannsókna íslenskrar erfðagreiningar leiða í Ijós erfðabreytileika sem stóreyk- ur líkur á hjartaáfalli í bandarískum svertingjum. Bandaríska vísindatímaritið Nat- ure Genetics birti í gær grein eftir vísindamenn og samstarfsaðila ís- lenskrar erfðagreiningar þar sem lýst er uppgötvun á erfðabreyti- leika sem tengist auknum lfkum á hjartaáföllum. Sérstaklega vekur athygli að þó þessi breytileiki sé frekar fátíður meðal bandarískra svertingja eykur hann líkur á hjartaáfalli um 250% meðal þeirra, sem hann bera. Að sögn Kára Stefánssonar, for- stjóra íslenskrar erfðagreining- ar, getur þessi uppgötvun valdið straumhvörfum í meðhöndlun þeirra í heilbrigðiskerfinu. Gera má ráð fyrir að með þessari nýju vitneskju megi lengja líf þeirra, sem hafa umræddan erfðabreyti- leika, og bæta lífsgæði þeirra. „Ég er að fara til Dallas að flytja fyrirlestur á ársfundi bandarísku hjartasamtakanna og eitt af því, sem við komum til með að gera, er að hitta fulltrúa félags svartra hjartalækna, sem hafa mikinn áhuga á þessu og vilja endilega stuðla að því að það verði gerð sérstök lyfjarannsókn á þessum áhættuhópi.“ Uppgötvunin byggir á rannsókn- um sem gerðar voru með þátttöku íslenskra hjartasjúklinga en niður- stöðurnar voru síðan staðfestar í þremur sjúklingahópum í Banda- ríkjunum. Niðurstöðurrannsóknannasýna að þessi breytileiki er algengur meðal íslendinga og hvítra Banda- ríkjamanna og tengist hjá þeim tiltölulega lítið aukinni hættu á hjartaáföllum. Þessi sami breyti- leiki er hins vegar mun sjaldgæfari meðal svartra Bandaríkjamanna en tengist meira en 250% auknum Kári Stefánsson, forstjóri (slenskrar erfða- greiningar. líkum á sjúkdómnum hjá þeim. Athyglisvert er að hann finnst ekki meðal íbúa Vestur-Afríku, þannig Fólksfjöldi: Landsbyggðin sækir í sig veðrið Fleiri einstaklingar flytja af höfuðborgarsvœðinu út á land. Alls hafa um 2.000 útlendingarflutt til landsinsþað sem afer ári. Gert er ráð fyrir að íslendingum fjölgi meira en gerst hefur í allmörg ár og er ástæðunnar helst að leita í miklum fjölda útlendinga sem flytja hingað til lands. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofan hefur látið fjár- málaráðuneytinu í té og voru birtar í vefriti ráðuney tisins í gær. Þar kem- ur fram að um 2.800 manns höfðu flutt til höfuðborgarsvæðisins frá útlöndum á fyrstu mánuðum ársins. Á sama tímabili höfðu 900 einstak- lingar flutt frá útlöndum til Austur- lands. „Þótt reiknað sé með því að mjög hátt hlutfall þeirra sem hingað koma til að vinna við stórframkvæmdirn- ar flytji aftur burt að þeim loknum, og raunar séu töluverð mannaskipti meðan á þeim stendur, þá á þetta við í mun minna mæli hjá þeim sem flytja á önnur landsvæði. Því má reikna með að hlutur erlendra ríkis- borgara meðal landsmanna fari enn vaxandi," segir í vefritinu. Margir kjósa Suðurnesin Þegar rætt hefur verið um íbúaþró- BlaÖiÖ/Gúndi www. MADE IN ICELAND .is un hér á landi undanfarin ár hefur sífellt verið talað um flótta íbúa af landsbyggðinni til höfuðborgarinn- ar. Þessi þróun hefur hins vegar snúist við. „Enda þótt höfuðborgar- svæðið hafi tekið á móti rúmlega 3.100 manns af landsbyggðinni á fyrstu níu mánuðum ársins eru þeir þó fleiri sem flytja af því svæði út á land og munar þar nokkuð á ann- að hundrað manns. Þetta er mikil breyting frá því sem var á árum áð- ur þegar mikill straumur fólks var af landsbyggðinni suður,“ segir um málið í í vefritinu. Mesti umsnún- ingurinn hefur orðið á Suðurnesj- um, en það svæði hefur fengið til sín 350 manns umfram brottflutta frá höfuðborgarsvæðinu á þessu ári. í ákveðnum landshlutum hefur hin gamla íbúaþróun þó enn ekki náð að snúast við. að ætla má að hann sé til kominn vegna kynblöndunar vestanhafs á undanförnum 300 árum. „Við erum nú að vinna að undir- búningi að þriðja og síðasta fasa prófana á lyfi sem ætlað er að minnka hættu á hjartaáföllum, með því að hafa áhrif á þetta líf- fræðilega ferli sem erfðafræðin hef- ur sagt okkur að gegni mikilvægu hlutverki í sjúkdómnum. Ef við nýtum okkur þessar niðurstöður við hönnun lyfjaprófana, er mögu- legt að þessi uppgötvun muni mjög fljótlega skila sér í bættum hag hjartasjúklinga," segir Kári og bætir við að einnig sé verið að athuga hvernig megi nota þessar niðurstöður til að þróa greining- arpróf, sem væri sérstaklega ætlað þessum áhættuhópi. ■ Dómsmál: Breyttur lífsstíll mild- aði dóm Tæplega þrítugur karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjölmörg afbrot sem hann framdi árið 2004. Maðurinn braust meðal annars inn í fyrirtæki, verslanir og bíla og stal þar ýmsu smálegu. Enn- fremur reyndi maðurinn ásamt félaga sínum að nota stolið greiðslukort í verslun 10-11. I dómnum kemur fram að maðurinn hafi verið í ýmiss konar óreglu þegar brotin áttu sér stað. Hins vegar sé hann nú fluttur út á land þar sem hann hefur búið undanfarna mánuði með það að markmiði að „vinna sig út úr þeim vítahring er hann var í“, eins og segir í dómsorði. Segir ennfremur í dómnum að maðurinn hafi náð þessu takmarki. Með hliðsjón af því var ákveðið að gefa hinum ákærða færi á skilorðsbundnum dómi. Manninum var ennfremur gert að greiða rúmlega 6.000 króna sekt til 10-11 og mál- svarnarlaun verjanda síns upp á tæpar 200.000 krónur. SKY+ Pace móttakari, með 40 GB hörðum diski. Tvöfaldur 0,3 db LNB nemi. 85 cm Penta stáldiskur. Hægt er að taka upp allt að 25 klukkutíma efni. 79.900 kr. J^eÍCO Skútuvogi 6, 104 Reykjavík Slmi 570 4700 Fax 570 4 701 eíco@eico.is www.eico.is 0 Heiðskirt 0 Léttskýjað ^ Skýjaö @ Alskýjað Rigning, litilsháttar v/s Rigning ^f) Súld c* Snjókoma Amsterdam Barcelona Berlín Chlcago Frankfurt Hamborg Helsinki Kaupmannahöfn London Madrid Mallorka Montreal New York Orlando Osló París Stokkhólmur Þórshöfn Vín Algarve Dublin Glasgow 12 17 10 03 10 11 06 11 14 14 19 -01 05 16 05 11 07 07 11 17 13 12 •r fi /> % >// Veðurtiorfur í dag kl: 18.00 Veðursíminn Byggt á upplýaingum Irá Vaðuretofu fslandi 5 5 o° Slydda 'JJ Snjóél ^j Skúr tP o * * * -r tP Á morgun * * * 2°

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.