blaðið - 11.11.2005, Blaðsíða 24

blaðið - 11.11.2005, Blaðsíða 24
24 I TÍSKA FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2005 blaöiö Árleg tískusýning í New York Kjólar og írakkar úr súkkulaði Þann 8. nóvember síðastliðinn var haldin glæsileg en óvenjuleg tískusýning í New York. Tískusýningin var óvenjuleg fyrir þær sakir að þetta var súkkulaðisýning en hún er haldin ár hvert. Súkkulaðisýningin tengir saman helstu tískuhönnuði iðnaðarins og meistarakokka til að skapa tísku sem örvar öll skilningarvit. Á sýn- ingunni mátti sjá allt frá brúðarkjólum til herrafrakka, allt þakið súkkulaði. Sumir hönnuðir notuðu súkkulaði sem skraut en aðrir bjuggu til flíkur úr súkkulaði. Sýn- ingin var til styrktar alnæmissamtökum tískunnar hið vestra og á henni sýndu til dæmis topphönnuðirnir Austin Scarlett, Victor de Souza og Holly Kristen. hÉÉÉiÉÉÉAÉÉftÉAÉÉÉÍÉAÍ : Leöurhanskar : Vandaðir leöurhanskar í flestum litum Á aðeins kr.1990,- Allt Smart Laugavegi 46 Sóni: 551-1040. svanhvit@vbl.is Ótrúlega flott pils úr hvítu súkkulaöi og taska í stíl. Súkkulaðisætur töffari í jakka úrsúkku- laði, efni og leðri. Þessi fallegi kjóll er að mestu gerður úr súkkulaði. Snyrtilegur súkkulaðikjóll sem hægt væri að gæða sér á. Höfuðfat og kjóll úr súkkulaði, nammi namm.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.