blaðið - 11.11.2005, Blaðsíða 38

blaðið - 11.11.2005, Blaðsíða 38
381 FÓLK FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2005 blaöiö HVERMIG HEFURÐU PAÐ? Smáborgarinn var að velta því fyrir sár um daginn hvað fólk er stundum falskt og alltaf ífeluleik. Það eru eins og allir séu svo hræddir við að upplýsa hvernig þeim líður í raun og veru. Kannski vilja aðrir heldur ekki vita það. Við keppumst öll við að vera hamingjusöm, keppast við náungann því okkur finnst sem allir aðrir séu svo hamingjusamir, sem þeir eru ekkert endilega. Þannig er það að þegar við hittum gamla kunningja úti á götu og þeir spyrja hvernig hefðurðu það þá segjum við alltaf: „Ég hef það mjög gott enda gengur mér allt í hag- inn," eða eitthvað því um líkt. Sjálfur býst maður við að fá svona svar og sjálfur veit maður að aðrir vilja fá svona svar. En þetta er svo yfirborðskennt og leiðinlegt. Af hverju má Smáborgarinn ekki segja frá því ef honum líður djöf- ullega, þar sem allir finna einhvern tímann fyrir þeirri tilfinningu. Eflaust mundi viðmælanda bregða við ef hann fengi einhvern tímann heiðarlegt svar við „hvernig hefurðu það" spurningu. „Veistu, ég hef það þara helvíti skítt. Kell- ingin er að gera mig brjálaða, hún nöldr- ar út í eitt og vill stunda kynlíf allan sól- arhringinn. Krakkarnir eru sívælandi og vinnan er hundleiðinleg. Satt að segja er ég frekar þunglyndur þessa dagana." Smáborgarinn getur rétt ímyndað sér upplitið sem yrði á flestum ef þeir fengju heiðarlegt svar en mikið asskoti væri það nú skemmtilegt. Engin hræsni, ekkert mont og ekkert snobb. Allir yrðu bara á sama plani því við eigum öll við okkar vandamál að stríða, við felum það bara misvel. Allir rífast við maka sína, verða pirraðirá krökkunum sínum, þola ekki systkini sín og foreldra. Enn fleiri eiga maka sem kúga þá, foreldra og systkini sem eru háðir áfengi, börn sem eru til vandræða og svo framvegis. Enginn okkar lifir hinu fullkomna lífi sem við öll þráum svo heitt. Hitt er ann- að mál, hvernig fólk tekurá þeim vanda- málum sem lífið þýður upp á. En væri ekki töluvert auðveldara ef við yrðum bara hreinskilin við fjölskyldu og vini? Það er allt í lagi að segja að lífið sé ekki fullkomið, svo lengi sem við bara mun- um að það kemur nýr og bjartur dagur eftir þennan. HVAÐ FINNST ÞÉR? Tala Brad og Jen saman? Fólk hefur mikið verið að velta því fyrir sér hvort Jennifer Aniston og fyrrverandi eig- inmaður hennar, Brad Pitt, tali saman. Eru þau enn vinir eða ríkir fjandskapur þeirra á milli? Nú hefur Jen skýrt frá sannleikanum. „Tala ég við Brad? Já, það geri ég, við tölum saman,“ sagði Jennifer í viðtali við spjallþáttakonuna Diane Sawyer. Þegar þær voru svo að tala um skilnaði sem væru milli tannanna á fólki svaraði Jennifer: „Gallinn við skilnaðinn okkar er hvað allt er ró- legt og yfirvegað. Fólk vill að við séum í illu hræðilegu stríði og að þetta sé grunnt og farsakennt, en svo er það bara ekki.“ Enn hefur ekkert verið staðfest með ný sambönd Brad og Jen en heyrst hefur að Brad sé með Angelinu Jolie og Jen sé með Vince Vaughn. Mér finnst þær vanhugsaðar og settar fram af þekkingarleysi. Mér finnst mál- ið í heild vera vitleysa. Hann talar til dæmis um bann við veiðum á nóttunni vegna tilkomu nætursjónauka. Að veiða gæsir með nætursjónaukum er algjör- lega út í hött og eitthvað sem enginn gerir. Þetta er mjög óheppilegt hjá þess- um góða þingmanni að gera svona og ég vona að þetta verði aldrei samþykkt. Svo er hann að hafa vit fyrir landeigendum með því að banna þeim að taka greiðslur fyrir veiðar á eigin landareign. Ég tel að hann sé kominn út á hálan ís þar. Halldór talar líka um að fuglar himinsins séu eign okkar allra, en við erum að tala um fugla sem éta upp og eyðileggja tún og akra og bændur þurfa að stemma stigu við því. Ef þeir vilja fá eitthvað í vasann í leiðinni er það bara þeirra mál finnst mér. Halldór hefur reynt að koma svona máli í gegn áður og ég á ekki von á því að þingmenn muni styðja það nú frekar en áður. Ég held að flestir líti svo á að þetta sé hálfgerður brandari." Róbert Schmidt, veiðimaður. Hvað finnst þér um hugmyndir Halldórs Blöndal um fuglaveiðar? Katie œfir sig í móðurhlutverkinu Katie Holmes er þessa dagana að æfa sig í að vera móðir. Hin 26 ára gamla leikkona, sem er ófrísk, hefur upp á síðkastið verið að njóta samvista við tvö ættleidd börn Tom Cruise. Stjarnan úr Batman Begins hefur verið að eyða miklum tíma í að vera „fótboltamóðir" og mætir á leiki Isa- bellu, sem er ættleidd dóttir Tom og Nicole Kidman. éSS&mí-: K a t i e mætti á síðasta leik í stórri hvítri skyrtu til að fela 1» stækk- andi kúluna. Hún var vel með á nótunum þar sem hún sat með Tom og syni hans Connor og stökk á fætur og klappaði þegar hiti færðist í leikinn. Hún gaf sér samt tíma til að hvíslast á við Tom og skipt- ast á nokkrum kossum við hann. Kylie klárar Oz Showgirl-tónleikaferðina Kylie Minogue áætlar að klára tónleikaferð sína á næsta ári. I dagblaðinu The Her- ald Sun, sem kemur út í Melbourne, segir að gefin verði út tilkynning um tónleik- ana síðar í mánuðinum en óstaðfestar fregnir herma að hún verði farin á síðari hluta ársins 2006. Kylie mun fara til heimabæjar síns í Melbourne í Ástralíu yfir jól- in um leið og hún hefur fengið grænt ljós frá læknum sínum, en hún er nú í krabba- meinsmeðferð vegna brjóstakrabbameins. Össur Skarphéðinsson: „Islendingar vilja ekki að stjórnvöld þeirra liggi hundflöt einsog skötur gagnvart bandarískum skálkum sem ræna fólki um hábjartan dag - stundum alsaklausu - og flytja það í leynilegar herstöðvar skuggaríkja þar sem pyntingar eru notaðar til að pína upplýsingar upp úr fólki. Aðgerðaleysi þeirra gerir Islendinga meðseka. Var ekki Irak nóg?“ www.ossur.hexia.net Björn Ingi Hrafnsson: ,,Á Alþingi íslendinga starfar þing- maður, Sigurjón Þórðarson að nafni, í umboði þjóðarinnar sem fulltrúi Frjálslynda flokksins. Og hann saup hveljur um daginn, þegar enn eitt árið kom í ljós að ísland telst vera eitt af þeim löndum í heiminum þar sem er hvað minnst spilling. Hann fagnaði því ekki, heldur mótmælti ákaft og hefur nú sent alþjóðastofn- uninni Transparency International formlegt kvörtunarbréf þar sem því er mótmælt að ísland sé land án spillingar og ýmis dæmi nefnd sem eiga að sýna fram á einmitt hið gagn- stæða.“ www.bjorningi.is Úr bréfi Sigurjóns Þórðarsonar til spillingarstofnunarinnar, Transparency International: „In other words, Iceland’s entire rat- ing was based mostly on how well foreign investors can expect to do in our country. That being the crit- erion, it’s easy to see how some of the largest examples of corruption in Iceland managed to slip through the net. “ Sigurjón endar bréfið svohljóð- andi: „This is not to say that there is much more corruption in Iceland than in other countries. But it can hardly be one of the least corrupt countri- es, and there is certainly room for improvement. And studies which make broad assessments based on narrow evidence certainly don’t help.“ http://www.althingi.is/sigurjon/ „Eg þurfti að setja sjö nýjar fyllingar í þig vinstra megin." HEYRST HEFUR... Innkaupaæði íslendinga á sér fá takmörk. Þannig seg- ir af fullri vél af íslendingum sem fóru til Nýfundnalands fyrir skömmu. Tekið var á móti landanum með viðhöfn, heima- menn buðu upp á kökur með íslenska fánanum um leið og dreift var bæklingum með upp- lýsingum um helstu verslanir - og auðvitað voru bæklingarn- ir á íslensku. Fjórum dögum síð- ar átti vélin síðan lað hefja sig á loft S aftur til Islands ■; en þá kom í ljós að farangurinn var helmingi þyngri en heimilt var að setja í vélina. Ófáar töskur urðu því eftir á Nýfundnalandi auk þess sem heimferðinni seinkaði um fjórar klukku- stundir. Vasar Baugs er djúpir # eins og alþjóð veit. Seðlavesk- ið hefur nokkr- um sinnum verið tekið upp til að borga fyrir glænýjan milljónabúnað sem keyptur hefur verið fyrir Nýju fréttastöðina sem hefur út- sendingar eftir nokkra daga. Engu hefur verið til sparað en í stúdíóum myndversins verða aðallega fjarstýrðar myndavél- ar sem að vísu bjóða upp á tak- markaðri myndvinnslu en þeg- ar mannshöndin sér um verkið. Baugsmenn munu vera tilbúnir til að tapa allmiklum upphæð- um á þessu nýja gæluverkefni, en væntanlega þurfa hluthafar Dagsbrúnar að borga brúsann á endanum. Sjúklingar og elli- lífeyrisþegar fagna þó ákaft enda eru þeir nú viðurkenndur markhópur, að minnsta kosti bróðurpart dagsinsl Mýjasta æðið í bænum er að skrifa spennu- og glæpasögur enda vilja allir verða rikir og frægir eins og Arnaldur Indriða- son. Fjölmargar slíkar sögur eru að koma út fyrir jólin og eru fyrstu dómarnir vægast sagt misjafn- ir. Auðvitað fer þetta misjafnlega í höfund- ana. Þannig segir af einum þeirra sem ________ skrifaði ekki færri en fjóra tölvupósta til yfirstjórnar eins dagblaðsins í borginni þar sem hann krafð- ist þess að ónefndum gagnrýn- anda hjá blaðinu yrði sagt upp. Ástæðan var sú að gagnrýn- andinn hafði ekki farið nógu lofsamlegum orðum um bók viðkomandi aðila. Flestir muna gg gg eftir hinni ótrúlegu upp- sveiflu sem varð í ^ * félagi framsóknar- kvenna í Kópavogi forðum þeg- ar skyndilega birtust hundruð kvenna sem gengu í flokkinn og sóru honum hollustu sína. Nú hefur þessi „framsóknar- flensa“ smitast um allan bæ og það eru eigi færri en sex sem bjóða sig fram í fyrsta sæti hjá flokknum í prófkjöri nú um helgina. Þarna hefur ótrú- legasta fólk komið út úr skápn- um - og kannski ekki nema von. Fyrsta sæti hjá Framsókn- arflokknum í Kópavogi hefur nánast sjálfkrafa þýtt bæjar- stjórastól, þar sem miklir kær- leikar hafa verið með Sjálfstæð- isflokki og Framsóknarflokki í Kópavogi um árabil. Það er bara spurning hvað Gunnar Birgisson segir.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.