blaðið

Ulloq

blaðið - 11.11.2005, Qupperneq 30

blaðið - 11.11.2005, Qupperneq 30
30 I ÍPRÓTTIR FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2005 blaðið Samkynhneigðir og íþróttir Á morgun halda Samtökin ‘78, félag lesbía og homma á íslandi, opinnfund sem ýta á undir aukna umrœðu ogfrœðslu um samkyn- hneigð innan íslenskrar íþróttahreyfingar. I tilkynningu frá samtökunum segir að samkynhneigðir séu svo til ósýni- legir innan íþróttahreyfingarinnar. ,Við höfum þess þó fjölmörg dæmi að þeir sem hafa þorað að opinbera kynhneigð sína innan íþróttahreyf- ingarinnar hafi beinlínis hrakist úr íþrótt sinni vegna aðkasts og fordóma. Erlend ar rannsókn- Þekktir fyrirlesarar Til þess að fjalla um þessi mál hef- ur félagið boðið Inga Þór Jónssyni til landsins en hann hefur um ára- bil unnið að málefnum samkyn- 99 Þeir sem hafa þorað að opinbera kyn- hneigð sína innan íþróttahreyfingarinnar hafa beinlínis hrakist úr íþrótt sinni. fyrir bresku ríkisstjórnina að verk- efni sem nefnist „Proud Britain11 auk þess að vera andlit Evrópu fyrir heimsleika samkynhneigðra íþrótta- manna sem haldnir verða í Montréal á næsta ári. Klara Bjartmarz .starfs- maður KSÍ og fyrr- um stjórnarmaður í Samtökunum ‘78, mun auk Inga Þórs halda framsögu og ir hafa leitt í ljós að ................................................................. á eftir verða fyrir- samkynhneigðir hætta frekar í skipu- lögðum íþróttum en gagnkynhneigð- ir. Ástæða þess að brottfall innan þessa hóps er hærra er oft á tíðum for- dómar og neikvæð afstaða frá eigin liðsfélögum,“ segir í tilkynningunni. Úr þessu vilja Samtökin ‘78 bæta. hneigðra innan íþróttahreyfingar- innar í Bretlandi og hefur einnig reynslu sem keppnismaður fyrir ís- lands hönd á ólympíuleikum í sundi. Hann er aðalframkvæmdastjóri „Pride Games“ í Manchester, vinnur spurnir og umræð- ur. Fundurinn verður haldinn á Kaffi Reykjavík á morgun, þann 12. nóv- ember, og hefst klukkan 15:00. Alþjóðlegt hnitmót um helgina Iceland Express International mót- ið í badmintoni hófst í gær í TBR- húsinu við Gnoðarvog í Reykjavík og stendur til sunnudags. Alls eru 102 keppendur frá 14 löndum skráð- ir til leiks sem gerir þetta að öðru stærsta alþjóðlega móti frá upp- hafi hér á landi. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni og gefur stig á heimslista Alþjóða badminton-sam- bandsins. Keppt er um 2.500 evra peningaverðlaun á mótinu en það samsvarar rúmum 180 þúsund krón- um. Fjöldi þátttakenda kemur skipu- leggjendum mótsins töluvert á óvart. Yfirleitt eru mjög margir keppendur á ólympíuárum enda badminton- leikmenn þá í mikilli keppni um að vera nógu hátt á heimslistanum til að komast inn á leikana. I ár er hins vegar ekki ólympíuár en samt sem áður er von á 74 erlendum þátttak- endum til landsins ásamt fylgdarliði. Mikið af þeim erlendu leikmönnum sem þátt taka í mótinu hafa keppt á því áður. fslenska landsliðið í badmintoni. BlaÖiÖ/Frikki Baðinnréttingar Fataskápar Eldhusinnrettingar Þvottahusinnrettingar netto Við veitum 20% afslátt af öllum Nettoline innréttingum í tvær vikur (tmfoðið stendur til 12. nóvember). Nýttu þérgullið tilboð okkar og nýja innréttingin verður tilbúin fyrirjól. ■ Alltað 25% afsláttur af raftækjum á tilboðsdögum, þegarraftækl eru keypt með eldhúsinnréttingu. Snaigé ■Friforml Askalind 3 ■ 201 Kúpavogur • Sími: 562 1500 Opið: Mánudaga-föstudaga....kl. 9-18 Laugardaga............kl. 10-16 eitthvað klikk?" gæti Muhammad Ali verið að segja við George Bush á myndinni. Hnefaleikameistarinn tók við mestu viðurkenningu sem óbreyttir borgarar geta fengið frá forsetanum við hátíðlega athöfn í Hvíta húsinu. tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í WTA keppninni sem fer fram í Los Angeles. Hún stefndi á efsta sæti heimslistans en hefur ekki sannað sig í þessu móti. Búlgarski súmóglímumaðurinn Kotooshu æfir hér fyrir stórmót í íþróttinni sem haldið verður um helgina. Japanir neituðu útlendingum lengi vel að taka þátt í súmóglímu en hafa nú tekið þá í sátt eftir mikinn uppgang íþróttarinnar undanfarin misseri. Einn á kjammann. Aðdáendur David Beckham þekkja hann vart á þessari mynd sem tek- in var á æfingu enska landsliðsins. Englendingar eru bjartsýnir á gott gengi í Þýskalandi næsta sumar en vináttuleikur gegn Argentínu verður á morgun. Tíu fuglar dugðu ekki fyrir Tiger Woods á fyrsta degi á HSBC meistaramótinu í Shanghai. Hann kláraði fyrsta hring á 65 höggum, einu á eftir efstu mönnum, þeim Paul Lawrie, Nick Dougherty og Peter O'Malley.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.