blaðið - 15.11.2005, Blaðsíða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Aurskriöur í
kjölfar úrhellis
Aurskriður urðu í vesturhluta Nor-
egs í gær í kjölfar mikilla rigninga.
Ein aurskriðan hreif með sér sjö
menn sem unnu að húsbyggingu í
nágrenni Bergen. Einn þeirra fannst
látinn en hinir hlutu lítilsháttar
meiðsli en eins var enn leitað í gær.
Lögreglumaður sagði að húsið hefði
farið af grunninum og væri á kafi í
skriðunni og að björgunarstarf sækt-
istþví seint.
Ymis vandamál eru rakin til rign-
inganna um allan vestanverðan
Noreg. Meðal annars lágu lestarsam-
göngur víða niðri, vegir lokuðust og
rýma þurfti að minnsta kosti 13 hús
vegna hættu á aurskriðum.
Einn íbúi á hættusvæði sagði að
bíll hefði rekist á hús hans sem aur-
skriða hefði hrifið með sér. Norska
veðurstofan reiknaði með því að
úrkoman myndi mælast allt að 180
mm. Lögregluyfirvöld í sumum
fylkjum hvöttu fólk til að halda sig
innandyra og setja sig ekki í hættu
að nauðsynjalausu. Búist var við að
það færi að stytta upp síðdegis í gær.
Aurskriða hreif heilt hús með sér í
nágrenni Bergen í Noregi í gær.
Schwarzen-
egger til Kína
Arnold Schwarzenegger, ríkis-
stjóri Kaliforníu, hélt í gær
til Kína í sex daga heimsókn.
Tilgangur ferðarinnar er meðal
annars að efla viðskipti á milli
Kahforníuríkis og Kína. Hasar-
myndahetjan, sem beið einn
stærsta ósigur á sínum stutta
stjórnmálaferli í síðustu viku
þegar kjósendur í Kaliforníu
höfnuðu tillögum hans í
allsherjaratkvæagreiðslu, mun
heimsækja Peking, Sjanghæ
og Hong Kong í ferðinni og
má hann eiga von á hlýrri
móttökum kvikmyndaunnenda
þar en hann hefur fengið að
undanförnu á heimavelli.
Til hamingju
Silvía
Nótt!
©
SKJÁRHA/A/ óskar Silvíu Nótt innilega til hamingju
með Edduverðlaunin sem hún hlaut í flokkunum
Sjónvarpsmaður ársins og Skemmtiþáttur ársins.
Ahlaup uppreisnar
manna á fangelsi
Hundruð lögreglumanna hafa verið
kallaðir út í bænum Jehanabad í norð-
urhluta Indlands eftir að uppreisnar-
menn maóista réðust inn í fangelsi
og frelsuðu meira en 300 fanga. Að
minnsta kosti fjórir létust í áhlaup-
inu á fangelsið á sunnudag. Yfirvöld
segja að um 1.000 vopnaðir uppreisn-
armenn, klæddir í lögreglubúninga,
hafi tekið þátt í árásinni og lent í
átökum við öryggisverði. Þúsundir
hafa látist í herferðum uppreisnar-
manna maóista í mið- og suðurhluta
Indlands á siðastliðnum 30 árum.
Prakash Jaiswal, innanríkis-
ráðherra Indlands, sagði í gær að
varasveitir frá nágrannahéruðum
hefðu verið sendar til bæjarins og
að búið væri að ná tökum á ástand-
inu. Flestir þeirra sem voru frelsaðir
voru úr hópi uppreisnarmanna eða
stuðningsmenn þeirra. Þar á meðal
er Ajay Kanu, leiðtogi þeirra í hérað-
inu.
Sagt er að uppreisnarmennirnir
hafi haft suma fangana á brott með
sér sem og skotfæri úr vopnageymslu
fangelsins. Meirihluti öryggisvarða
fangelsisins var við gæslu á kjörstað
í nágrenninu og því var aðeins um
tugur lögreglumanna á vakt þegar
áhilaupið átti sér stað.
Uppreisnarmenn réðust til atlögu
gegn svefnskálum lögreglu, héraðs-
dómstólnum og skrifstofu og bú-
staðs dómara á sama tíma og áhlaup-
ið átti sér stað. Var það gert í því
skyni að dreifa kröftum lögreglu og
beina athygli hennar frá fangelsinu.
Lögregla bægir fólki frá fangelsinu sem
uppreisnarmenn gerðu áhlaup á í bænum
Jehanabad á Indlandi.