blaðið - 15.11.2005, Side 12
12 I WEYTENDUR
ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Mikilvœgast að leggja til hliðar
Ingólfur H. Ing-
ólfsson félags-
fræðingur er
einn þeirra sem
heldur nám-
skeiðið Fjármál
heimilanna og
segir hann að
námskeiðin
gangi ekki út á
að banna fólki
heldur að leið-
beina því um
hvernig eigi að haga málum sínum.
.Fyrstu námskeiðin voru í desember
2002,“ segir Ingólfur og bætir við
að alltaf sé góð þátttaka á námskeið-
unum. Námskeiðin eru haldin einu
sinni í fjóra tíma í senn. „Þar að auki
eru námskeiðin seld til fyrirtækja og
stéttarfélaga," segir Ingólfur. Hann
segir helstu skissuna sem fólk gerir
sé að spara ekki neitt. „Þetta er dá-
lítið merkilegt vegna þess að sparn-
aður er eina leiðin til að koma í veg
fyrir að fólk hlaði upp neysluskuld-
um,“ segir Ingólfur og bætir við að
þetta sé einnig eini útgjaldaliðurinn
sem getur búið til meiri peninga.
Hann segir marga misskilja hug-
takið sparnað og haldi að þeir sjái
ekki aftur peninga sem fara inn á
bók. „Það má skipta tekjum fólks í
þrjá flokka: Fjárfestingar, neyslu og
sparnað,“ segir Ingólfur. Hann segir
sparnaðarliðinn mjög mikilvægan
til að eiga fyrir óvæntum útgjöldum.
,Ef þvottavélin bilar þurfum við ekki
að hækka yfirdátt ef peningar eru til
á sparnaðarreikningi," segir Ingólf-
ur og bætir við að ennfremur megi
nota sparnað til að fjármagna sum-
arfríið, jólin eða annað sem til fellur.
Ingólfur segir það algengt að þeir
sem byrji á því að slá lán
lendi í því að enda með háa
greiðslubyrði og þurfi jafnvel að
fresta sumarfríinu vegna erfiðra
fjármála.
fslendingar sýna ekki óvenju-
legt neyslumynstur
Ingólfur segir íslendinga almennt
ekki eyða of miklu en þeir séu dálítið
fljótir að gleyma því sem þeir kaupa.
„Þegar visa reikningurinn kemur er
fólk búið að gleyma í hvað pening-
arnir fóru,“ segir Ingólfur. Hann
segir vandann mjög svipaðann hjá
fólki óháð tekjum. „Fólk virðist eiga
svipað eftir til ráðstöfunar óháð tekj-
um því þeir sem þéna meira eru með
hærri greiðslubyrði og því er frjáls
ráðstöfun svipuð hjá öllum launa-
hópum,“ segir Ingólfur. Hann segir
mikilvægt að kenna fólki að stýra út-
gjöldum og að greiða niður lán eins
fljótt og hægt er. „Þá kenni ég fólki
að spara óháð því hvaða tekjur það
er með,“ segir Ingólfur. Hann segir
mjög gott ráð að fólk taki ákveðinn
hluta ráðstöfunartekna, t.d. io%, og
leggi til hliðar. „Þá þarf að ráðleggja
fólki hvernig þessum io% skuli var-
ið,“ segir Ingólfur. Hann segir suma
geyma peningana í fjárfestingarsjóð-
um en þá sé hætta á að sparnaður-
inn rýrni því sjóðirnir gangi upp og
niður. „Ég mæli með lífeyrissparn-
aði þar sem fólk fær mótframlag
frá launagreiðanda,“ segir Ingólfur.
Hann segir einnig að fólk geti notað
Ingólfur H. Ingólfsson,
félagsfræðingur
þessi 10% sem það leggur fyrir mán-
aðarlega til að koma til móts við út-
gjöld eins og sumarfrí.
Ingólfur segir misjafnt í hvernig
málum fólk sé þegar það komi í ráð-
gjöf til sín en hefur ekki lent í svo
erfiðum málum að ekki sé hægt að
vinna sig út úr því. „Það skemmti-
lega er að þeir sem komu á námskeið-
ið árið 2002 eru nú að koma aftur til
að fá ráðleggingar um hvernig eigi
að verja sparnaðinum sem það er
búið að koma sér upp,“ segir Ingólf-
ur. Hann segir þá sem koma á nám-
skeiðin vera í meirihluta fólk sem
er á miðjum aldri og vill fara að sjá
fyrir endann á skuldsetningu eftir
íbúða- og bílakaup.
hugrun.sigurjonsdottir@vbl.is
76 verðbreytinffar á árinu
Eftir að hafa setið eilítið eftir í
síðustu úttekt okkar þá fylgdi Atl-
ants-olía verðbreytingum síðustu
daga samviskusamlega og eru aftur
komnir nálægt lægsta verði. Lægst
er verðið, líkt og vanalega, hjá Ork-
unni sem lækkar sig um tæpa krónu
milli vikna og er verðið á litranum
komið niður í 105,60 krónur hjá
þeim. Þeir sem eru með bensínfrelsi
Orkunnar fá síðan þriggja króna
afslátt aukalega og því er lægsta
fáanlega bensínverðið á höfuðborg-
arsvæðinu 102,6 krónur fyrir frelsi-
skorthafa. Hæsta verð er á völdum
stöðvum stóru olíufyrirtækjanna
þriggja: ESSO, Skeljungs og Olís,
þar sem líterinn af bensíni kostar í
sjálfsafgreiðslu 107,20 krónur. Sam-
kvæmt upplýsingum frá ESSO þá
eru verðlækkanir þann 11. nóvemb-
er 76. verðbrey tingarnar á viðmiðun-
arverði sem orðið hafa á árinu.
era ódýrastir?
Samanburður á verði 95 oktana bensíns
Bústaðarvegur
106,90 kr.
VOLVOS40 VOLVOV50 VOLVO S60 VOLVO V70 VOLVO S80 VOLVO XC70 AWD VOLVO XC90 AWD
VELDU VOLVO V50 FYRIR NOTAGILDID
Volvo V50 er stærðfræðileg snilld, sportlegur og fullur af
lífsorku. Hann er sparneytinn og slær keppinautum sínum
við fyrir glæsileika, aksturseiginleika og tæknibúnað. Áratuga
umhyggja Volvo fyrir öryggi fjölskyldunnar og þörfum hennar
kristallast í Volvo V50. Áhersla á markvissa hönnun skutblla
setur Volvo V50 á stall hjá fjölskyldufólki sem leitar að réttu
samræmi rýmis og hleðslu, þar sem rétt þyngdardreifing
skerðir ekki aksturseiginleika skutbílsins. Veldu sér-
hannaðan herragarðsbíl frá Volvo: Volvo V50. Þú finnur
notagildið sem hann færir þér og þínum í leik og starfi.
Mikill staðalbúnaður einkennir Voivo
Þú færð mikinn staðalbúnað I Volvo V50: WHIPS bak-
hnykksvörn, SIPS hliðarárekstrarvarnarkerfi, stöðugleikasfyr-
ingu og spólvörn, ABS hemlakerfi með EBD hemlajöfnun,
4 loftpúða auk hliðarloftpúða, tölvustýrða loftkælingu með
hitastýringu, hágæða hljómflutningstæki með 8 hátölurum,
rafdrifnar rúður, upphituð sæti, 16“ álfelgur og margt fleira.
Þú velur um skemmtilegar vélar í Volvo V50. Hinar geysi-
öflugu 170 og 220 hestafla vélar mörkuðu tímamót I bíl-
greininni fyrir nýstárlega hönnun og tæknibúnað. Nú færðu
Volvo V50 með óvenjusprækri 125 hestafla 1,8 lítra vél og
enn meiri búnaði en áður. Komdu I Brimborg.
Heimsbíll ársins í fyrsta sinn í sögunni
Volvo V50 var tilnefndur sem „Heimsbíl ársins 2005“ og
bætist tilnefningin við flóru viðurkenninga Volvo V50 og
Volvo S40 en Volvo S40 er m.a. bíll ársins á íslandi. Öryggi
er lúxus. Veldu Volvo!
Komdu í Brimborg. Spurðu söluráðgjafa Volvo á íslandi um
verð og gæði. Við gerum þér gott tilboð um staðgreiðsluverð
fyrir gamla bílinn.
Finndu fegurðina sem býrígæðum einfaldleikans. Skoðaðu nýtt
stjórnborðið sem ekki átti að vera hægt að framleiða.
WORLD
CAK CJI
THE YEAR
AWARDS
Volvo V50 bensin.
Veró frá 2.545.000 kr.*
Volvo V50 dísil.
Veró frá 2.845.000 kr.*
* Brimborg og Volvo áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara og að auki er kaupverð háð gengi. Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Brimborgar.