blaðið - 19.12.2005, Síða 16
16 I VIÐTAL
MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2005 bla6iö
99.................
„Þetta er til dæmis
mikiivægt fyrir fólk
sem ferðast um
vegna vinnu eða er af
einhverjum orsökum
ekki staðbundið dags
daglega. Þáþarfekkert
annað en jógadýnuna
til að stunda mjög
öfluga líkamsrækt"
Ingibjörg Stefánsdóttir veit allt umjóga:
BlaÖiÖ/SteinarHugi
Ekki gleyma þér í stressinu
Það er óþarfi að drukkna í stressi yfir jólin. Það er líka óþarfi að gleyma sjálfum eða sjálfri sér í miðju öngþveitinu. Til
að losa um stress getur verið mjög gott að gera jógaæfingar og Ingibjörg Stefánsdóttir veit allt um þær.
Nýlega opnaði Ingibjörg jógastöðina
Yoga Shala. Stöðin er til húsa við
Engjateig 5, nánar tiltekið við hliðina
á Listdansskóla Islands. Ingibjörg
leggur sérstaka áherslu á Ashtanga
Winyasa jóga, en það er sérstök
tegund af Hatha jóga. „Hatha jóga
gengur m.a. út á líkamsæfingar og
ashtanga jóga er angi út frá því. Ash-
tanga byggir á því að fara í ákveðnar
stellingar og teygjur í ákveðinni röð
sem maður lærir svo með tímanum.
Af því að þetta er svona sería sem
maður lærir þá hættir maður á end-
anum að þurfa að spekúlera í því
hvað verið er að gera og þetta gefur af
sér mjög góða einbeitingu, eitthvað
sem maður gæti kallað hreyfi hug-
leiðslu. Þar fyrir utan eru æfingarnar
alveg ofboðslega styrkjandi fyrir
líkamann og liðkandi, en stundum
vill það gleymast í hefðbundnum lík-
amsæfingum. Á milli æfinganna eru
engar pásur þannig að fólk svitnar
við þetta og það fer fram brennsla og
hreinsun í leiðinni."
Hvernig kynntist þú þessu?
„I gegnum leiklistina. Ég lærði þetta
jóga í leiklistarskóla sem ég fór í, í
New York. Þar var einn danskennari
sem notaði Asthanga jóga í tímum.
Bæði til að hita upp fyrir tíma og
teygja á eftir þá. Ég kolféll fyrir
þessu alveg um leið og hef ekki hætt
síðan, en þetta var fyrir sjö árum
síðan. Svo hef ég reglulega stundað
Ashtanga jóga og fer alltaf annað
slagið erlendis til að læra meira og
auka við þekkingu mína. Ég er búin
að fara tvisvar sinnum til Indlands
og er að fara aftur núna í febrúar.
Fyrst hitti ég sérstakan Ashtanga
gúrú sem er níræður Indverji. Sá er
enn að ferðast um heiminn og kenna
jóga þannig að það mætti segja að
fólk sem stundar þetta eldist vel.
Hjá honum verð ég í einn mánuð,
svo fer ég á jóga námskeið þar sem
allir helstu Ashtanga jógakennarar
heims verða samankomnir til að
deila reynslu sinni og þekkingu."
Er ekki eitthvað frægt fólk á kafi í
þessu?
„Jú, vissulega, og margir ófrægir
líka. Madonna var líklegast sú sem
kom þessu á kortið hjá almenningi
og hún samdi meira að segja lag þar
sem hún notar möntru sem fólk fer
með fyrir tímann. Mjög gott lag.
Svo er Gwyneth Palthrow líka á kafi
í þessu og Sting svo einhver nöfn
séu nefnd. Geri Halliwell sýndi líka
og sannaði hvernig ástundun Ash-
tanga jóga getur haft jákvæð áhrif á
líkamann, en margir tóku eftir því
hvernig hún breyttist á sínum tíma.
Sumir halda að ástundun jóga gangi
mestmegnis út á að sitja og anda og
það er gott og blessað, en Ashtanga
jóga er svo miklu meira. Með því
er maður t.d. að styrkja djúpvöðva.
Stundum kemur fólk sem telst í mjög
góðu formi í jógatíma og það verður
steinhissa þegar það uppgötvar að
það vantar kannski heilmikið upp
á styrkinn til að fara í sumar stell-
ingar. Svo er það hitt, að eftir að fólk
er búið að koma sér í gott líkamlegt
form, þá fyrst hefur það getuna til
þess að sitja og íhuga. Ef styrkurinn
er ekki til staðar í líkamanum þá
verður andinn bara mjög eirðarlaus
eftir smá tíma.“
Hvaðfinnst þér um jólastressið?
,Ég hef tekið eftir því að fólk hættir
svo mikið að sinna sér og hreyfa sig
yfir hátiðarnar. Það gleymir alveg
sjálfu sér í þessari ös og stressið
verður því enn meira. Það myndi
losa mikið um að gefa sér, þó ekki
væri nema klukkutími á dag, til að
hreyfa sig svolítið.
Hlaða batteríin, slaka á og byggja
upp jafnvægi til þess að takast betur
á við annríkið.
Það er mikil synd að fólki skuli yfir-
sjást þetta af því eftir jólin þá mætir
það í jóga og segir -Oh, ég vildi að
ég hefði munað eftir því að hreyfa
mig.“
Hvernig verður opið yfirjólin?
,Ég mun hafa opið til 22 des. Á milli
jóla og nýárs hef ég einn tíma mið-
vikudaginn 28 des þar sem allir geta
komið milli 17-19 og gert rútínuna
sína. Þetta er kallað mysor style,
þ.e.a.s. þegar fólk er farið að gera
þetta alveg sjálft, en að sjálfssögðu
er ég á staðnum þar sem ég geng á
milli fólks, laga stöður og leiðrétti.
Ég opna svo aftur eftir áramótin
þann 9 jan, þar sem fyrsta vika árs-
ins fer í að skrá fólk á ný námskeið.
Ég nota þá aðferð að koma fólki upp
á lagið með að stunda jóga hvar sem
er og hvenær sem er þannig að það
geti sinnt þessu sjálft og þurfi ekki
að vera háð jógastöðinni til að geta
stundað sína heilsurækt. Þetta er
til dæmis mikilvægt fyrir fólk sem
ferðast um vegna vinnu eða er af ein-
hverjum orsökum ekki staðbundið
dags daglega. Þá þarf ekkert annað
en jógadýnuna til að stunda mjög öfl-
uga líkamsrækt."
Hvernig verður námskeiðum háttað
hjá þér?
„Ég er með eitt námskeið á mánuði,
sem er byrjendanámskeið og eftir
það hefur fólk ótakmarkaðan að-
gang að stöðinni. Ég mun reyndar
vera með sérstök meðgöngujóga
námskeið og svo hatha jóga nám-
skeið, mjúka og rólega tíma. Teygjur
og slökun. Allt fyrir alla. Svo er
ég reyndar líka með tvo nuddara
hérna sem taka fólk m.a. í ayruveda
nudd og fleira. Nuddið kostar 5000
krónur fyrir tvo klukkutíma og það
er nuddað með höndum og fótum
og svo teygjur inn á milli. Það er
reyndar opið fyrir nuddið á milli
jóla og nýárs og fólk getur pantað
tíma í það, enda eflaust rosalega gott
að taka góða slökun svona beint eftir
hasarinn,“ segir þessi geðþekka leik-
kona að lokum.
margret@vbl.is