blaðið - 18.01.2006, Síða 2
2 I ^HÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 2006 bla6Í6
blaði&—
Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur
Sími: 510 3700 * www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Þingvellir:
Valhöll verði rifin
Arkitekt segir húsið þreytt og lúið. Til greina kemur að varðveita upprunalega húsið.
Reykjavík:
Sérstakt gjald
á nagladekk?
Vínnuhópur
um notkun
nagladekkja
í Reykjavík
skilaði í gær
af sér skýrslu
til Umhverfis-
ráðs borgar-
innar. Megin
niðurstöður hennar eru þær að
aðstæður, þar sem nagladekk hafa
kosti umfram aðrar tegundir dekkja
séu fremur sjaldgæfar í Reykjavík.
Bent er á að slysatíðni hafi ekki auk-
ist svo nokkru nemi á stöðum þar
sem nagladekk hafi verið bönnuð
alfarið eins og í Japan. Hópurinn
kemst því að þeirri niðurstöðu
að hægt sé að draga verulega úr
notkun dekkjanna án þess að öryggi
fólks sé stefnt í hættu. Áætlað er að
70% ökutækja í Reykjavík séu búin
nagladekkjum á veturnar. Svifrik
er vaxandi vandamál í borginni en
upspænt malbik er 55% alls svifriks.
Samkvæmt skýrslunni þarf að
leggja um 10.000 tonn af slitlagi
árlega til endurnýjunar gatna. Til-
lögur hópsins eru meðal annars þær,
að hvatt verði til átaks til þess að
minnka nagladekkjanotkun og að
upplýsingaherferð verði hrundið af
stað. Einnig leggur vinnuhópurinn
það til að skoðuð verði takmörkun
nagladekkja með einhverjum
hætti, til dæmis með gjöldum. ■
Á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun
kynnti Halldór Ásgrímsson, forsætis-
ráðherra, skýrslu Þorsteins Gunnars-
sonar arkitekts og Ríkharðs Krist-
jánssonar verkfræðings um ástand
Hótels Valhallar á Þingvöllum. I
skýrslunni eru hugmyndir þeirra
um framtíðarstarfssemi staðarins
einnig viðraðar. Skýrsluhöfundar
leggja til að Valhöll verði rifin, að
fullu eða hluta og að reist verði ný
bygging á grunni hennar. Einnig er
lagt til að efnt verði til opinnar sam-
keppni um hönnun nýs húss þar
sem annað hvort verði gert ráð fyrir
nýju húsi, eða þá að upprunalegi
hluti Valhallar verði varðveittur og
byggt verði við hann. Við byggingu
nýs húss verði tekið tillit til hins sér-
staka gildis sem Þingvellir hafa og
að byggingin muni stuðla að ánægju-
legri upplifun gesta þjóðgarðsins.
Húsið þreytt og lúið
Þorsteinn Gunnarsson arkitekt segir
að Valhöll sé orðin „ansi þreytt og
lúin“ eins og hann orðar það. „Elsti
parturinn var byggður 1898 og þá af
töluverðum vanefnum. Þá var það
á öðrum stað, norðar á völlunum.
Síðan var byggt við húsið tvívegis
eftir efnum og ástæðum og það
síðan dregið á ís á núverandi stað
1929“ Valhöll var síðan enn stækkuð
fyrir Alþingishátíðina 1930, að sögn
Þorsteins, og síðan hefur verið byggt
við húsið í áföngum í gegnum árin.“
Þorsteinn segir Valhöll hafa ákveðið
menningarsögulegt gildi. „Húsið
er byggt í einkaframtaki nokkurra
Reykvíkinga og útaf fyrir sig er
framtakið merkilegt. En því miður
BlaOil/lngó
var þetta ekkert sérstaklega vönduð
bygging og búið að tjasla við hana.
En annar valkosturinn hjá okkur
er sá að það verði viðurkennt að
húsið hafi menningarsögulegt gildi
ög að aðalbyggingin verði áfram
varðveitt.“ ■
FL Group:
Launakjör lykilstjórnenda enn
glæsilegri en rætt hefur verið
Laun framkvœmdastjóranna hœrri en talið var og kaupréttarsamningar eru einkar
rausnarlegir.
Launakjör æðstu stjórnenda FL
Group vöktu mikla athygli eftir
að Ragnhildur Geirsdóttir lét af
störfum hjá félaginu, en starfsloka-
samningur hennar þótti einkar
rausnarlegur.
Nýlegar ráðningar til félagsins
eru hins vegar ekki síður glæsilegar,
þegar litið er til launakjara. Eru
dæmi um að kaupréttarsamningar
gefi mönnum rétt til hlutafjárkaupa
upp á 700 milljónir á þremur árum
eða tæpar 20 milljónir á mánuði. Þá
Opið prófkjör
Framsóknarflokksins
í Reykjavík 28. janúar
Björn Ingi
í l.sætið
er miðað við útboðsgengi í félaginu
í nýafstöðnu hlutafjárútboði, en
það var 13,6. Gengi félagsins hefur
hækkað gríðarlega undanfarna mán-
uði og er nú 23,10.
í þessu sambandi hefur vakið
athygli manna að í hlutafjárútboð-
inu á síðasta var gert ráð fyrir að
starfsmenn fengju að kaupa 3 millj-
arða í félaginu samkvæmt kauprétt-
arsamningum, en því var frestað að
ráði endurskoðenda. Ekki leið hins
vegar á löngu þar til tilkynnt var um
fyrrgreinda kaupréttarsamninga
lykilstarfsmanna. Þá höfðu bréfin
hækkað verulega, en fyrra gengi
látið gilda.
Launin vanmetin
Ekki hafa menn þó aðeins horft til
kaupréttarsamninga, heldur eru
launin líka rausnarleg. í umræð-
unni um áramót var þannig rætt um
að sjö framkvæmdastjórar félagsins
væru með 22 milljónir króna í laun
á ári hver og byggðu menn það á
skráningarlýsingu FL Group vegna
hlutafjárútboðs í nóvember síðast-
liðnum, þar sem fram kom að laun
þeirra væru alls 154 milljónir, en við
þá útreikninga virðast menn ekki
hafa tekið með í reikninginn að
fæstir þeirra höfðu starfað hjá félag-
inu í meira en hálft ár. Laun þeirra
eru þvi líkast til allnokkru hærri.
Samkvæmt fyrrnefndri skráning-
arlýsingu FL Group fær Hannes
Smárason, forstjóri félagsins, um
4 milljónir króna á mánuði í laun,
en hann á einnig rétt á verulegum
bónusgreiðslum, sem fara eftir ár-
angri og afrakstri og geta numið allt
að þreföldum árslaunum, eða allt
að 144 milljónir króna. Árslaun for-
stjórans geta því rokkað frá 48 millj-
ónum upp í 192 milljónir á ári. ■
o Heiðskirt 0 Léttskýjað Skýjað Alskýjað
í
Rigning, lítilsháttar /// Rigning 9 9 Súld Snjókoma
9 *
*
Slydda Snjóél
Skúr
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chlcago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
NewYork
Orlando
Osló
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vín
Algarve
Dublin
Glasgow
05
12
02
-04
03
03
-13
02
11
09
14
-02
15
15
0
08
-02
-07
04
13
11
10
-2°^
-1°
’b
*
*
*
**
*-2°
'"//
cf
// /
///
. ///
Á morgun
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veöurstofu íslands
✓ /
✓ /
✓ ✓ "3°
/ / *