blaðið - 18.01.2006, Side 12
12 I HEIMILI
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 2006 biaðió
Nauðsynlegt að moka snjóinn
Húseigendur hugsa ekki nógu
mikiö um viöhald eigna sinna
Gunnar Guðmundsson, múrari, er sérfrœðingur á sviði
steypuskemmda og hefur starfað við utanhússviðgerðir í
tuttugu ogfimm ár.
Snjórinn er mörgum kærkominn.
Hann veitir birtu í skammdegið
og gerir umhverfið óneitanlega
svolítið rómantískara. Ökumenn
sikk-sakka á svellinu út á dekkja-
verkstæði til að láta vetrardekk
undir bílinn - en hvað gera
húsejgendur?
Snjóþungi, frost og kuldi hafa
áhrif á meira en varirnar á okkur,
sem þorna nánast alltaf upp við
þessar aðstæður. Steypan í hús-
unum okkar bregst ekki vel við
skyndilegum breytingum í veðri.
Frýs og þiðnar til skiptis
Ef steypa er í þannig umhverfi að
hún frýs og þiðnar til skiptis, er
hætta á að hún skemmist. Þar sem
steinsteypa er í eðli sínu rakadræg,
inniheldur hún nokkurn raka í
sér, og þar sem vatn þenst um ca.
io% við að breytast í ís, þarf steypa
að hafa nægjanlegt holrými til að
vatnið geti þanist út án þess að
valda steypunni skaða.
Ekki ofmikiðvatn
Tvennt þarf að koma til, að hol-
rými séu til staðar í steypunni og
að vatnsinnihald hennar sé ekki
yfir þeim mörkun sem holrými
eru fyrir. Til að holrými séu til
staðar, og nægjanlega dreifð til að
þau komi að gagni, þarf að setja
loftblendi í steypuna, og það þarf
að vera uþb. 5-6% loft í steypu.
Einangrið steypuna ef kostur er
Til að minnka rakainnihald steypu
þarf að minnka vatnsmagnið sem
liggur að steypunni eins vel og
kostur er. Til dæmis að láta vatn
99........................
Til að minnka raka-
innihald steypu
þarfað minnka
vatnsmagnið sem
liggur að steypunni
eins vel og kostur er.
renna af láréttum flötum s.s. undir
gluggum, og minnka rakadrægni
hennar sem hægt er að gera með
málun, sílanhúðun o.fl. og einnig
að hafa vatns hlutfall lágt við
blöndun. Þá er ónefnd ein aðferð
við að hindra frostskemmdir í
steypu, en það er að koma í veg
fyrir að hún frjósi, t.d. með því að
einanagra byggingarhluta að utan
ef þess gefst kostur. ■
Mannifinnst nógu mikilfyrirhöfn
að skipta um dekk undir bílnum.
Er virkilega nauðsynlegt að moka
svalirnar líka um leið ogþað snjóar?
„Já, það er algert frumskilyrði. Hús-
eigendur eru því miður ekki nógu
meðvitaðir um viðhald fasteigna
sinna. Þó að húsið líti þokkalega út
að utan er ekki hugsað mikið um við-
haldið. Fólk hugsar til dæmis ekki
út í að losa snjóinn af svölunum, svo
hlánar og þá fer allt á flot. Það þarf
að hreinsa niðurfallið á svölunum
líka. Hella heitu vatni í vatnslása og
losa upp klakann. Frostið er nefni-
lega versti óvinur steypunnar. Ef
það er veila fyrir í plötuskilum, sér-
staklega við svalir, þá er ekki gott
að snjórinn liggi á þeim og þiðni því
þá lekur beint inn í íbúðina og jafn-
vel niður í næstu íbúð fyrir neðan.
Þá eru skemmdirnar komnar inn
í veggina og þar geta þær eyðilagt
pípulagnir og fleira. Pípurnar geta
færst til og hreinlega farið í sundur
og þá ertu kominn með mjög alvar-
legar afleiðingar sem eru því miður
mjög algengar!”
Skemmdirnar geta leynt á sér
Segjum sem svo að ég hafi gleymt
að moka svalirnar hjá mér og lendi
í dæmigerðu tjóni afþeim orsökum.
Hvernig bregst ég við?
„Viðgerðarmaðurinn kemur á stað-
inn og skoðar þetta að utan og
innan. Stundum sést ekkert að hús-
inu að utan þó að skemmdin komi
þaðan. Það eru kannski bara örlítil
ummerki um að lekinn sé kominn
( gegn og svo þegar þetta er brotið
upp kemur allt í ljós.
Skemmdirnar geta verið mismun-
andi alvarlegar, en það algengasta
er kannski að það hafi lekið lengi í
gegnum svalirnar. Svo lengi að það
sé komið í gegnum þær. Þá þarf
að setja yfirborðsefni til að loka
þeim að ofan en það efni er yfirleitt
þéttimúr.
Þegar lekur með plötuskilum þá
þarf að brjóta þau upp og þétta á ný.
Það sem er alvarlegra er þegar það
er búið að leka svo mikið í gegnum
svalirnar að það þarf fjarlægja sval-
irnar alveg í burtu og gera upp á
nýtt.“
Viðgerðin getur verið
kostnaðarsöm
Hversu mikiðgetur maður
búist við að þurfa að
borga fyrir svona viðgerð?
Þegar lekur með plötu-
skilum þá þarfað brjóta
þau upp og þétta á ný.
Það sem er alvarlegra
er þegar það er búið
að leka svo mikið í
gegnum svalirnar að
það þarffjarlægja
svalirnar alveg í burtu
og gera upp á nýtt."
,Það er ekki auðvelt að segja þar sem
þetta eru oft svo mismunandi alvar-
legar skemmdir, en svona aðgerð ,
eins og að þétta um sex fermetra
svalir getur verið frá fimmtíu upp
í hundrað þúsund og það myndi
vera ágætlega sloppið. En ef þetta
snýst um að brjóta niður svalir sem
eru orðnar handónýtar þá eru það
nokkur hundruð þúsund.
í nýlegri húsum eru svalirnar
oftast gerðar úr forsteyptum ein-
ingum. Þá eru bara plöturnar skrúf-
aðar upp og þá er mun minni hætta
á skemmdum þar sem svalirnar
eru ekkert tengdar inn í vegg. Það
er alltaf öruggara og ódýrara að
vera með léttar svalir þar sem snjó-
þyngslin geta tekið í húsin líka og
skemmt þau“
Ekki mála svalagólfið
Er eitthvað sérstakt sem maðurgetur
gert fleira til að passa svalirnar
sínar?
„Já, mín reynsla er til dæmis sú að
það eigi ekki að mála svalagólf.
Steinninn þarf að anda. Oft á tíðum
er sett epoxíð málning á þetta sem
er alveg þétt og ef hún gefur sig, þá
kemur sprunga, vatnið fer undir
og beint ofan í steypuna og þaðan
kemst vatnið ekkert nema niður.
Gufar semsagt ekki upp. Þetta er
svipað því að vera með flísalagðar
svalir. Svo gefur fúgan sig og hvert
fer vatnið þá? Beint ofan í steyp-
una...,“ segir fagmaðurinn Gunnar
Guðmundsson að lokum. ■
margret@bladid.net
TÍSKA&
SNYRTING
Mánudaginn 23. janúar
blaöió 11 .
Auglýsendur, upplýsingar veita:
margret@bladid.net
BlaSid/Steinar Hugl